Skolfið á beinunum? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 28. febrúar 2026 11:30 Merkileg grein birtist í gær á Vísi eftir Sverri Pál Einarsson, forseta ungliðahreyfingar Viðreisnar, þar sem hann sagði andstæðinga inngöngu í Evrópusambandið skjálfa á beinunum vegna fyrirhugaðs þjóðaratkvæðis um Evrópumálin á sama tíma og hann kaus sjálfur að grípa til þess örþrifaráðs að uppnefna þá og saka um annarlegar hvatir í stað þess að færa efnisleg rök fyrir eigin málstað. Seint verður þannig sagt að greinaskrifin séu til marks um mikla yfirvegun. Við Sverrir hittumst síðasta haust í Spursmálum á mbl.is þar sem við tókumst á um það hvort rétt væri fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið. Vel fór á með okkur, bæði fyrir þáttinn og eftir hann sem og þegar við skiptumst á rökum á meðan á upptökunni stóð. Kom hann mér fyrir sjónir sem yfirvegaður og málefnalegur ungur maður og hafði ég það á orði við hann eftir þáttinn. Tók hann því hrósi vel. Greinin í gær er hins vegar algerlega í mótsögn við þá upplifun, Fyrir það fyrsta kallaði Sverrir þá sem ekki vilja ganga í Evrópusambandið einangrunarsinna. Á sama tíma vill hann loka Ísland inni í áhrifaleysi í gamaldags tollabandalagi, andstöðuna við frjáls milliríkjaviðskipti, sem stefnir að því að verða sambandsríki eins og forystumenn innan sambandsins hafa ítrekað bent á í gegnum tíðina. Kæmi til inngöngu í Evrópusambandið færi vægi landsins við ákvarðanatöku aðallega eftir íbúafjölda þess í samræmi við reglur sambandsins. Sakaði Sverrir pólitíska andstæðinga sína enn fremur um að vera leigupennar án alls rökstuðnings. Fylgir hann þar forskrift flokksformanns síns Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur sem sakaði mig um slíkt síðasta haust á mbl.is eftir að hafa neitað að bregðast efnislega við tilteknum skrifum mínum á Stjórnmálin.is. Ég hef aldrei fengið greitt fyrir umrædd skrif en eins og ágætur vinur minn benti á þýddi það auðvitað ekki að ég hefði rangt fyrir mér jafnvel þó svo væri. Sverrir sagði andstæðinga inngöngu í Evrópusambandið ekki vilja þjóðaratkvæðið vegna þess að þeir vissu að samningur við sambandið yrði góður. Því fer hins vegar fjarri. Til dæmis er alveg ljóst að engar varanlegar undanþágur frá yfirstjórn Evrópusambandsins, til dæmis í sjávarútvegsmálum, yrðu í boði og ekki yrði samið sig frá því að sömu reglur giltu um vægi landsins innan sambandsins og annarra ríkja þess. Það er að miðað væri einkum við íbúafjölda. Hins vegar var rúsínan í pylsuendanum fullyrðing Sverris um að þjóðin myndi samþykkja inngöngusamning kæmi til hans. Eða eins og hann orðaði það: „Þjóðin mun því vilja ganga í Evrópusambandið þegar samningurinn liggur fyrir. Það er staðreynd sem leigupennarnir vilja ekki horfast í augu við.“ Staðreynd já? Væri nú ekki nær að þjóðin einfaldlega fengi að taka sínar ákvarðanir í þessum efnum í stað þess að verið sé að ákveðið fyrir fram hver niðurstaða hennar verður? Með framgöngu sem þessari er vitanlega verið að reyna að vega ómaklega að trúverðugleika fólks vegna þess að málefnalegum rökum er ekki fyrir að fara. Ef þeim væri til að dreifa þyrfti auðvitað ekki að grípa til slíkra óyndisúrræða í örvæntingu sinni. Sem pólitískur andstæðingur Sverris í Evrópumálunum hvet ég hann og skoðanasystkini hans eindregið til þess að skrifa fleiri slíkar greinar. Sem einhver sem kann vel við hann ráðlegg ég honum að gera það ekki Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Mest lesið Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar