Nóg komið af lóðabraski og okri fjárfesta – Stofnum Byggingafélag Reykjavíkur Jón Ferdínand Estherarson skrifar 16. febrúar 2026 23:01 Gömul saga og ný, fjárfestar kaupa lóðir á uppsprengdu verði af Reykjavíkurborg, sitja á þeim og lyfta ekki fingri og selja þær til næsta fjárfestis og mokgræða. Ef íbúðir eru byggðar enda þær svo óheyrilega dýrar vegna lóðaverðanna og öfgakenndrar hagnaðarþarfar fjárfestanna að flestir geta aðeins látið sig dreyma um að kaupa sér heimili. Smásíli eins og Pétur Marteinsson, nýr oddviti og borgarstjóraefni Samfylkingarinnar, græddi tugi milljóna á sínu lóðabraski. Stórlaxar eins og fjárfestafélagið Þorpið – þau titla sig víst sjálf sem “vistfélag”, hvað svo sem það þýðir – hækkuðu verðmiðann á lóðum á Ártúnshöfða um marga milljarða, högnuðust sjálf um tvo milljarða, en byggðu ekki einn fermetra. Nú hefur meirihlutinn í borginni heimilað Þorpinu enn annað lóðaframsal (fína orð pólitíkusanna yfir lóðabrask) á enn annarri lóð í Elliðavogi án þess að byggja nokkurn skapaðan hlut. Þetta þarf ekki að vera svona Lóðabrask og húsnæðisuppbygging til ofurhagnaðar örfárra á kostnað okkar allra hinna er ekki náttúrulögmál. Það er vel hægt að fara aðra leið. Það er þess vegna sem Sósíalistar leggja til að stofna Byggingafélag Reykjavíkur. Byggingafélag Reykjavíkur getur ákveðið sjálft hvað skal byggja í stað þess að bíða í von og óvon eftir loforðum einkaaðila. Þannig er hægt að byggja raunverulega fjölbreyttar íbúðir sem henta raunþörfum fólks. Litlar og hagkvæmar fyrir ungt og eldra fólk, stærri og rýmri fyrir barnafjölskyldur. Byggja má með raunveruleg gæði í forgrunni, öfugt við nýbyggðar íbúðir síðustu ára þar sem 40% af húsfélögum þeirra hafa þurft að bera allt að tugmilljóna kostnað vegna galla og lélegs frágangs eins og nýleg rannsókn við HÍ sýndi fram á. Selja má hluta íbúða Byggingafélags Reykjavíkur á kostnaðarverði í stað froðuverðlagningar, þar sem forgangsréttur verður til fyrstu kaupenda og lágtekjufólks. Megnið af íbúðum færi beint í óhagnaðardrifna útleigu þar sem leigjendur fá kost á langþráðu húsnæðisöryggi, lægri leigukostnaði og geta þannig loksins náð endum saman og safnað sparifé. Leigjendur Bjargs, óhagnaðardrifna leigufélagsins, borga að meðaltali 30-40% lægri leigu en á okurmarkaði leigusalanna og eru hæstánægðir með stöðu sína, eðlilega. Til að tryggja lágt leiguverð myndi Byggingafélag Reykjavíkur nota viðmiðunarverð Leigjendasamtakanna sem leiguþak, einfalt hlutfall sem byggir á brunabótamati (ekki fasteignaverði eins og gróðadrifnir leigusalar gera) sem skilar allt að 40% lægri leigu. Byggingafélag Reykjavíkur getur svo afhent hluta íbúða að kostnaðarlausu beint til Félagsbústaða, aukið íbúðafjölda þar og tryggt fjárhagsstöðu félagsins. Félagsbústaðir gætu þannig loksins haft svigrúm til að verða að félagslegu úrræði þar sem leiguverð myndi miðast að greiðslugetu viðkvæmra hópa. Því er þveröfugt farið með stöðuna í dag þar sem fólkið sem þar býr – margir viðkvæmustu hópar samfélagsins – borgar hærri leigu en þau ráða við til að mæta rekstrarkostnaði félagsins. Galið fyrirkomulag. Þetta er auðvelt að framkvæma – Reykjavík hefur val Við getum haldið áfram á núverandi vegferð þar sem við seljum lóðir til hæstbjóðenda, aðila sem ýmist byggja ekki neitt og græða á lóðabraski þess í stað eða aðila sem byggja en vilja hámarka gróða sinn með lúxusíbúðum eða verja sem minnstu í gæði og að mæta raunþörfum íbúa. Við getum treyst á markaðinn sem hefur aldrei tekist að byggja nægilegt magn þeirra íbúða sem þörf er á og okrar á okkur við hvert tækifæri. Þetta er stefna sem meirihlutinn í Reykjavík hefur keyrt á í áratugi til að hámarka tekjur borgarinnar svo bókhaldið líti nú vel út ár frá ári, alveg sama þótt að sá kostnaður endi að lokum á Reykvíkingum sjálfum. Það er stefna ábyrgðarleysis og fjárfestadekurs. Eða við veljum þann kost að byggja beint og án hagnaðardrifinna milliliða með Byggingafélagi Reykjavíkur á risastórum skala sem mætir uppsafnaðri þörf. Við getum valið að úthluta öllum lóðum algerlega frítt í slík verkefni (einnig til Bjargs og annarra óhagnaðardrifinna og félagslegra verkefna), stórlækkað þannig kostnaðinn við uppbyggingu, skapað stöðugt framboð óháð dyntóttum hvötum markaðarins, veitt sanngjarnari leiguverð og raunverulegt langtímahúsnæðisöryggi. Slík stefna er framsýn, hún er skynsamleg og hún tekur á margþættum vandamálum samfélagsins á sama tíma. Leysir húsnæðisskortinn, býr til örugg, ódýr, góð og fjölbreytt heimili fyrir lágtekjufólk og börn og tekur með beinum hætti á verðbólgunni og þar með lífskjarakrísu okkar allra, enda er húsnæðisliðurinn þar þrálátur skaðvaldur. Þetta er pólitískt val og Sósíalistar eru tilbúnir í þetta verkefni. Hvað með þig? Höfundur er í 5. sæti á framboðslista Sósíalistaflokksins í Reykjavík og formaður Sósíalistafélags Reykjavíkur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sósíalistaflokkurinn Mest lesið Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun