Veljum sterkan leiðtoga Aron Ólafsson skrifar 14. febrúar 2026 10:00 Við í Framsókn kjósum okkur formann á sunnudaginn. Þá ræðst hvort okkur framsóknarfólki beri gæfa til að kjósa öflugan leiðtoga til þess að leiða flokkinnn úr þeim djúpa dal sem hann er í dag. Nýjum formanni bíður það hlutverk að færa flokkinn aftur að samvinnu rótum hans um leið og hún svarar kalli nútímans um skýrt hlutverk. Við stuðningsfólk flokksins höfum oft ekki verið ánægð með hvernig skilaboð hafa komið frá flokknum og þingflokknum. Við höfum jafnvel ekki skilið þau né tengt við þau í okkar tryggu rótum. Þetta á þó ekki við skilaboð Lilju Daggar Alfreðsdóttur. Hún hefur sýnt einbeitingu og festu í þeim málum sem hún hefur tekið að sér. Lilja er föst fyrir en um leið snjöll að leiða fram lausnir. Slíka formann þurfum við í stjórnmálinn í dag bæði Framsókn sem og Ísland. Lilja talar skýrt um okkar mikilvægustu mál og þess vegna vitum við hvar hún stendur í efnahagsmálum, menntamálum, jafnrétti og samvinnuhugsjón. Hún er skýr andstæðingur aðild Íslands að Evrópusambandinu og við vitum að bókun 35 er henni ekki að skapi. Efnahagsmál, alþjóðamál, lífsgæði, nauðsyn fæðuöryggis, menningarmál, landbúnaðar og byggðar um allt land allt þetta tengir Lilja saman í framsýna heildarsýn fyrir Ísland. Við höfum undanfarið séð að Lilja hefur ekki farið í manninn í baráttunni. Hún er málefnaleg og ber yfirbragð trausts. Engin stjórnmálamaður utan þings hefur verið jafn áberandi og Lilja í fjölmiðlum síðustu misseri og það skýrist af því að hún hefur eitthvað að segja og boða um þá heimsmynd sem nú blasir við okkur. Staða flokksins og verkefnin framundan eru slík að formaður flokksins þarf að geta verið frjálsari við í uppbyggingunni og þá er kostur að vera ekki bundin við atkvæðagreiðslur í stjórnarandstöðu. Það sem skiptir ekki síður máli er að Lilja Dögg Alfreðsdóttir er frábær í að hvetja fólk áfram til dáða og ekki skemmir fyrir hvað hún er skemmtileg manneskja. Hún er virt af öðrum stjórnmálamönnum fyrir sína festu og skilning á grunnstoðum Íslands. Til að byggja flokkin aftur upp þurfum við formann sem við og ekki síður aðrir geta treyst og þar ber Lilja af. Framsóknarfólk, veljum okkur sterkan og framsýnan leiðtoga! Höfundur er Framsóknarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Flokksþing Framsóknar 2026 Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar