Vangaveltur um „fólkið sem hvarf“ Skírnir Garðarsson skrifar 9. febrúar 2026 13:45 Ég hef nýlega lokið við að lesa bók Vals Gunnarssonar um endalok samfélags Íslendinga á Grænlandi, en það mál kom upp seint á 15. öldinni , og hafði þá búsetan staðið lengi þar, allavega 4 til 5 hundruð ár. Bókin er mjög athyglisverð. Allmikil leynd opg margar gróusögur hafa gegnum tíðina verið uppi um málið, en þegar biskupinn í Noregi kom að vísitera einn góðan veðurdag voru allir á bak og burt, skildu eftir sig fjöldann allan af byggingum og húsdýr voru á vappi á nokkrum stöðum. Íslendingarnir Kolbeinn Þorleifsson og Ketill Larsen dvöldu á Grænlandi á sínum tíma og rannsökuðuðu málið. Niðurstaða þeirra er ekki einhlít, en þeir staðfestu að gamalt fólk á Grænlandi hefði sagt að norræna fólkinu hafi smá fækkað, fæðingum hefði fækkað, áhugi fólks á líkamlegri vinnu hefði hrakað smátt og smátt og fólkið svo loks horfið Lítum aðeins á samtímaheimildir. Vitað er að íslendingarnir í Eystribyggð, sem kölluð var, voru stórir í sniðum, byggðu stór hús, stóra kirkju, ræktuðu stót tún, héldu stórar veislur og voru í það heila mjög stórtækir. Sagt er frá gríðarlegum veisluhöldum, brúðkaupum og erfidrykkjum, sem jafnvel enduðu svo með ofbeldi og mannvígum, allavega skeftur fóstbræðrasaga ekki af hlutunum, en hún gerist að hluta til á Grænlandi. Þá er Bárðar saga Snæfellsáss og fleiri heimildir trúverðugar. Í byrjun 15 aldar voru veislur enn haldnar og eru brúðhjón nafngreind, þótti fínt að gifta sig á Grænlandi, þó sigling þangað væri ekki áhættulaus. Að manni læðist sú tilfinning að ofmetnaður og dramb, flottræfilsháttur og fleira hafi oftar en ekki ráðið úrslitum, en fleiri og fleiri fóru að hverfa sísvona, rétt eins og okkar eigin Eggert Ólafsson, sem hlustði ekkert á fortölur og veðurspá, heldur sigldi í staðinn bara inn í eilifðina á Breiðafirði í den, ásamt eiginkonu sinni og þau nýgift. Þegar áðurnefndur biskup kannaði svæðið kringum Bröttuhlíð sem kölluð var, var þar engin norræn sál lengur, en einu tók hann eftir. Kirkjuþakið var horfið, hafði sennilega verið rifið sundur og notað tíl skipasmíða og síðustu íbúarnir svo siglt sinn sjó. Það þarf ekki nema meðalgreind til að sjá hliðstæður í okkar nútímasamfélagi, nokkuð sem má skilgreinast sem hnignun. Það setur að manni hroll. Ég tek undir með frænda mínum Geir Haarde sem sagði á sínum tíma. „Guð blessi Ísland“. Höfundur er prestur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Skoðun Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar