Ljósadýrð loftin gyllir Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar 27. desember 2025 08:01 Senn nálgast áramót og þá hefur skapast sú hefð að kveðja gamla árið með ljósadýrð og hvelli. Í hugum margra eru flugeldar ómissandi hluti af áramótunum en þeir eru ekki hættulausir og mikilvægt að fara að öllu með gát svo gleðin snúist ekki í angist þegar nýtt ár gengur í garð. Fjöldi útkalla vegna flugelda hefur stóraukist Athygli vekur að samkvæmt upplýsingum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur fjöldi útkalla slökkviliða vegna flugelda stóraukist en um síðustu áramót var 50% hækkun í útköllum vegna flugelda ef horft er til síðustu tveggja ára á undan. Þar má helst horfa til tvöföldunar á útköllum vegna elds utan bygginga, s.s. í gámum, sorptunnum og álíka stöðum. Mikilvægt er að gæta þess að slökkt sé í flugeldum áður en þeim er hent og leiðbeiningum um notkun fylgt til að tryggja öryggi viðstaddra. Ekki skal skilja eftir ósprungna flugelda og flugeldarusl á víðavangi, slíkt getur valdið slysum og einnig hlýst af því sóðaskapur. Aðgát skal höfð í nærveru flugelda Mikilvægt er að gæta þess að vera aldrei í skotlínunni þegar kveikt er í flugeldum. Ávallt skal nota hlífðargleraugu (flugeldagleraugu) og einnig er gott að hafa vettlinga eða hanska til að hlífa höndum. Aldrei skal kveikja í flugeldum á meðan haldið er á þeim. Það má eingöngu halda á sérmerktum handblysum og jafnvel þá þarf að fara varlega og vera í hönskum. Einnig er nauðsynlegt að halda hæfilegri fjarlægð þegar kveikt er í flugeldum og aldrei má halla sér yfir þegar kveikt er í. Velja þarf trausta undirstöðu þegar skotið er upp og best er að skjóta upp flugeldum á opnu svæði í a.m.k. 20 metra fjarlægð frá húsum, bifreiðum og fólki. Hafa ber í huga að flugeldar eru ekki leikföng. Oft gleymist að flugeldar eru í raun sprengiefni og flest alvarlegustu slysin verða þegar fiktað er við flugelda eða þeir teknir í sundur. Foreldrar og forráðamenn þurfa að hafa þetta í huga, brýna fyrir börnum að fikta ekki í flugeldum og fylgjast vel með þegar kveikt er í flugeldum. Hjá Öryggisakademíu Landsbjargar eru margar góðar ábendingar og skemmtileg myndbönd fyrir yngri kynslóðina en í gátlistanum fyrir öryggisfulltrúa er talað um að einhver fullorðinn taki að sér hlutverk skotstjóra. Vert er að nefna að áfengi og flugeldar fara aldrei saman. Geymsla flugelda Flugelda á að geyma á þurrum stað þar sem börn ná ekki til. Ekki er gott að geyma flugelda lengi og ekki er mælt með að geyma þá milli ára. Ef um mikið magn er að ræða þarf að geyma þá í traustum geymslum. Hægt er að fara með flugeldarusl og flugelda í endurvinnslustöðvar Sorpu til förgunar og setja þá í spilliefnagám. Svifryksmengun hefur áhrif á heilsufar Flugeldum fylgir loftmengun og svifryk sem myndast við sprengingar flugelda veldur mestum heilsufarsáhrifum. Þeir einstaklingar sem eru viðkvæmastir fyrir loftmengun eru aldraðir, börn og fólk með undirliggjandi öndunarfærasjúkdóma og hjarta- og æðasjúkdóma. Æskilegast er fyrir viðkvæma að vera innandyra þegar mestu sprengingarnar eru og loka gluggum. Veður hefur mikil áhrif á hvort mengunin safnist upp eða ekki og ef veður er stillt og úrkomulaust geta loftgæði orðið mjög léleg. Þá er enn meiri ástæða fyrir þau sem eru viðkvæm fyrir loftmengun að vera innandyra. Í flugeldum eru ýmiss konar efni sem berast út í umhverfið og því er gott að spyrja seljendur hvort flugeldarnir standist kröfur um efnainnihald og athuga hvort þeir séu CE merktir, en einungis er leyfilegt að selja CE merkta flugelda á Íslandi. Hugum vel að dýrunum Mikilvægt er að hlúa vel að dýrum um áramótin en hávaðinn sem myndast við sprengingar flugelda getur gert þau skelfingu lostin. Fjöldamörg dæmi eru um að hestar, hundar og kettir hafi fælst við flugelda og hlaupið af stað til fjalla eða í veg fyrir bílaumferð. Dýraeigendur eru því hvattir til að kynna sér hvað sé hægt að gera til að draga úr vanlíðan dýra og slysahættu á þessum tíma. Best er að halda köttum inni dagana í kringum áramót og hafa hunda ávallt í taumi þegar þeir fara út, jafnvel þótt það sé aðeins út í garð. Best er að viðra hunda snemma dags í birtu svo þeir verði þreyttir um kvöldið og ef þeir eru mjög hræddir þá getur verið gott að fara í göngu fjarri þéttbýli. Ef dýr sýna mikla hræðslu á ekki að skilja þau ein eftir og gott getur verið að hafa tónlist í gangi og ljósin kveikt til að draga úr ljósaglömpum. Einnig er hægt að fá lyktarhormón sem ætlað er að draga úr streitu og kvíða. Sýna þarf sérstaka aðgát með ung dýr sem eru að upplifa sín fyrstu áramót. Frekari ráðleggingar er m.a. að finna á vef MAST og hjá dýralæknastofum, Kattholti, Dýrfinnu og fleiri aðilum sem láta sig velferð dýra varða. Vert er að minna á að einnig er mikilvægt að fylgja reglugerð stjórnvalda um notkun flugelda en þá má aðeins sprengja dagana 28. desember til 6. janúar. Á því tímabili sem almenn notkun skotelda er leyfð er meðferð þeirra þó alltaf bönnuð frá kl. 22.00 til kl. 10.00 daginn eftir að undanskilinni nýársnótt. Gleðilegt nýtt ár Ef við tökum öll höndum saman og hugum að öryggi og góðri umgengni stuðlar það að ánægjulegu upphafi komandi árs. Sölustaðir Slysavarnafélagsins Landsbjargar opna 28. desember nk. og rennur ágóði af flugeldasölu til styrktar mikilvægu starfi björgunvarsveita um land allt. Flugeldasala er mikilvæg fjáröflun fyrir björgunarsveitir landsins en fyrir þau sem kjósa að sleppa flugeldum en vilja styrkja þetta mikilvæga starf má m.a. benda á Rótarskot Landsbjargar sem gefur af sér tré sem er gróðursett í samstarfi við Skógræktarfélag Íslands. Gleðilegt nýtt ár með ósk um ánægjuleg áramót. Höfundur er verkefnastjóri forvarna hjá Sjóvá. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hrefna Sigurjónsdóttir Flugeldar Áramót Slysavarnir Mest lesið Hættulegasta fitan er ekki sú sem sést utan á líkamanum Anna Lind Fells Skoðun Engar samningaviðræður lengur - einungis sótt um inngöngu. Þollý Rósmundsdóttir Skoðun „Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun Rangt svar við raunverulegum vanda Sandra Hlín Guðmundsdóttir Skoðun Er búið að lofa áfengisiðnaðinum atkvæðagreiðslu til að freista þess að stöðva dómsmál? Siv Friðleifsdóttir Skoðun Efnahagslegur raunveruleiki: Ísland dregst enn frekar aftur úr smáríkjum innan Evrópusambandsins Kristján Reykjalín Vigfússon Skoðun Mjallhvít og dvergarnir sjö Ingibjörg Gunnlaugsdóttir Skoðun Óveðrið tekur undir með atvinnulífinu Hugrún Elvarsdóttir,Katrín Helga Hallgrímsdóttir Skoðun Áskorun til Þingvallanefndar Álfheiður Ingadóttir Skoðun Gervigreind, ábyrgð og framtíð samfélags okkar Halla Tómasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að fordæma stríðið í Íran, Líbanon og Gaza Einar Baldvin Árnason skrifar Skoðun Sterk viska í stafni íslenskrar kjarabaráttu Freyr Snorrason skrifar Skoðun Gervigreind, ábyrgð og framtíð samfélags okkar Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Mjallhvít og dvergarnir sjö Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Óveðrið tekur undir með atvinnulífinu Hugrún Elvarsdóttir,Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Er búið að lofa áfengisiðnaðinum atkvæðagreiðslu til að freista þess að stöðva dómsmál? Siv Friðleifsdóttir skrifar Skoðun Viljum við virða mannréttindi fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Maístjörnur verkalýðsins, riddarar hringborðsins eða konungsríki fárra – við viljum von, trú og kærleika Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Kvenheilsa, læknisfræðilegt kannabis og lýðheilsa — tækifæri fyrir Ísland Magnús Þórsson skrifar Skoðun Hættulegasta fitan er ekki sú sem sést utan á líkamanum Anna Lind Fells skrifar Skoðun Nýjar lausnir í húsnæðismálum eru nauðsyn, ekki val Ellen Calmon skrifar Skoðun Málefni eldra fólks Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Menntun Helgu Völu er fjárfesting – ekki gjöf Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Opið bréf til Barna og fjölskyldustofu Steindór Þórarinsson,Jón K. Jacobsen skrifar Skoðun Er okkur sama um unga fólkið okkar? Hvar á það að vera? Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Að setja puttana í eyrun og kalla það stefnu Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Viðvera, frammistaða og vellíðan á vinnustöðum: Við búum á Íslandi – og þurfum að vinna með það Böðvar Bjarnason,Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Áskorun til Þingvallanefndar Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Er hlustað á þig? Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Rangt svar við raunverulegum vanda Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Engar samningaviðræður lengur - einungis sótt um inngöngu. Þollý Rósmundsdóttir skrifar Skoðun Tala þvert á það sem ESB sjálft segir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Efnahagslegur raunveruleiki: Ísland dregst enn frekar aftur úr smáríkjum innan Evrópusambandsins Kristján Reykjalín Vigfússon skrifar Skoðun Íran og Hormuz-sund Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Samfélagið treystir á öfluga fráveitu Brynja Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Heiðarleiki og raunhæfar lausnir Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Sundlaugar Reykjavíkur þurfa málefnalega pólitíska umræðu Brá Guðmundsdóttir,Björn Berg Pálsson,Drífa Magnúsdóttir,Ellen Elísabet Bergsdóttir,Hafliði Páll Guðjónsson,Sigríður Ásdís Þórhallsdóttir,Snorri Örn Arnaldsson,Vala Bjarney Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að vera rétt tengdur eða bara „íbúi“? Guðrún M. Njálsdóttir skrifar Skoðun Um siðferði og veiði Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Bærinn okkar allra - Af hverju skiptir hann máli? Ester Bíbí Ásgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun
Er búið að lofa áfengisiðnaðinum atkvæðagreiðslu til að freista þess að stöðva dómsmál? Siv Friðleifsdóttir Skoðun
Efnahagslegur raunveruleiki: Ísland dregst enn frekar aftur úr smáríkjum innan Evrópusambandsins Kristján Reykjalín Vigfússon Skoðun
Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að fordæma stríðið í Íran, Líbanon og Gaza Einar Baldvin Árnason skrifar
Skoðun Óveðrið tekur undir með atvinnulífinu Hugrún Elvarsdóttir,Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar
Skoðun Er búið að lofa áfengisiðnaðinum atkvæðagreiðslu til að freista þess að stöðva dómsmál? Siv Friðleifsdóttir skrifar
Skoðun Maístjörnur verkalýðsins, riddarar hringborðsins eða konungsríki fárra – við viljum von, trú og kærleika Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar
Skoðun Kvenheilsa, læknisfræðilegt kannabis og lýðheilsa — tækifæri fyrir Ísland Magnús Þórsson skrifar
Skoðun Viðvera, frammistaða og vellíðan á vinnustöðum: Við búum á Íslandi – og þurfum að vinna með það Böðvar Bjarnason,Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Efnahagslegur raunveruleiki: Ísland dregst enn frekar aftur úr smáríkjum innan Evrópusambandsins Kristján Reykjalín Vigfússon skrifar
Skoðun Sundlaugar Reykjavíkur þurfa málefnalega pólitíska umræðu Brá Guðmundsdóttir,Björn Berg Pálsson,Drífa Magnúsdóttir,Ellen Elísabet Bergsdóttir,Hafliði Páll Guðjónsson,Sigríður Ásdís Þórhallsdóttir,Snorri Örn Arnaldsson,Vala Bjarney Gunnarsdóttir skrifar
„Ég kýs að kjósa ekki“ Silja Sóley Birgisdóttir,Sigrún E. Unnsteinsdóttir ,Rósa Guðný Arnardóttir,Jökull Sólberg Auðunsson,Júnía Líf M. Sigurjónsdóttir,Jón Ferdínand Estherarson,Hannes Pétursson,Halldór Ólafsson,Geirdís Hanna Kristjánsdóttir,Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun
Er búið að lofa áfengisiðnaðinum atkvæðagreiðslu til að freista þess að stöðva dómsmál? Siv Friðleifsdóttir Skoðun
Efnahagslegur raunveruleiki: Ísland dregst enn frekar aftur úr smáríkjum innan Evrópusambandsins Kristján Reykjalín Vigfússon Skoðun