Stefna að því að opna deiliþjónustu bílferða fljótlega Rakel Sveinsdóttir skrifar 29. maí 2025 07:01 Stofnendur HuddleHop; Anoop A Nair, Ahmad Iftikhar Khan og Moses Osabutey sem stefna að því að opna deiliþjónustu bílferða fljótlega. Fólk getur þá tengst í gegnum app eða vefsíðu og skipulagt að vera samferða í einum bíl. Vísir/Anton Brink Það verða eflaust margir ánægðir að heyra af appi og vefsíðu sem styttist í að opni og mun bjóða upp á deiliþjónustu bílferða; HuddleHop.
Þar sem fólk getur tengst saman til þess að samnýta ferðir og deila kostnaði. Hvort sem er innan Reykjavíkur, austur fyrir fjall eða á Keflavíkurflugvöll. Enda þörfin svo sannarlega til staðar, segja þeir Ahmad Iftikhar Khan, Moses Osabutey og Anoop A Nair, stofnendur HuddleHop. „Á Facebook eru nú þegar fullt af hópum sem eru að sinna þessari þjónustu. Fólk að leita eftir fari hjá hvort öðru. Samtals eru um fjörtíu þúsund manns í þessum Facebook grúppum,“ segir Anoop. „Það er hins vegar ekki nógu skilvirkt að treysta á þetta á Facebook. Því þar getur til dæmis einhver boðið upp á ferð, en er síðan upptekin og sér ekki þegar áhugasamur lætur vita af sér og svo framvegis,“ segir Ahmad. „Markhópurinn fyrir svona deiliþjónstu er líka mjög stór. Árið 2025 er til dæmis áætlað að um 2,2 milljónir ferðamanna muni heimsækja Ísland,“ segir Moses. Í gær og í dag segir Atvinnulífið frá fyrirtækjum sem tóku þátt í Hringiðu+ viðskiptahraðli KLAKS í vor, sem beinir sjónunum að nýjum grænum lausnum. Öðruvísi reglur á Íslandi Félagarnir þrír segja þjónustu svipaða og HuddleHop svo sem þekkta víða erlendis. Í Evrópu þekkja til dæmis margir fyrirtækið Blabla cars, þar sem fólk getur í gegnum app og vefsíður tengt sig við annað fólk sem er að fara sömu leið; Bókað sig saman í ferð og deilt kostnaði. Þjónustulaun Blabla cars nema frá 18-21% sem fólk þarf þá að gera ráð fyrir til viðbótar við kostnað vegna bílsins. Blabla cars rekur líka rútuþjónustu á sumum stöðum. Í Danmörku er ágætlega þekkt fyrirtæki sem heitir GoMore og gengur líka út á að fólk deili bifreiðum. Þó aðeins öðruvísi módel því hjá GoMore leigir fólk einkabíl til afnota af öðru fólki á vægu verði. Félagarnir segja leikreglurnar á Íslandi þó vera þess eðlis að hvorugt þessara fyrirtækja gætu starfað hér. „Mér skilst að samgöngulögin á Íslandi séu þannig að einstaklingar mega ekki hagnast beint af deiliþjónustu eins og þessari. Sem þýðir að eitt af því sem við þurftum að hugsa og útfæra fyrir HuddleHop er tekjulíkan sem er ólíkt því sem þekkist erlendis,“ segir Moses. „Þar erum við bæði að horfa til auglýsingatekna því til Íslands koma rúmlega tvær milljónir ferðamanna á ári,“ segir Moses og vísar þar til ferðamannafjöldans sem áætlaður er til Íslands aðeins á þessu ári. „En við erum líka að hugsa um áskriftartekjur af premium útgáfu appsins.“ „Allt gengur þetta þó út á það sama: Fólk vill auðvelda sér leiðina á milli staða með því að deila bílum. Umferðin í Reykjavík er til dæmis þannig að oft getur verið mjög erfitt að komast á milli staða því traffíkin er einfaldlega svo mikil,“ segir Ahmad en bætir við: En við erum ekki bara að horfa á deiliþjónustu á höfuðborgarsvæðið heldur einnig að fólk nýti sér deiliþjónustuna fyrir lengri ferðir. Daglega fara til dæmis um 40 þúsund bílar á milli Reykjavíkur og Keflavíkur. Það gæti heilmikið sparast við það að deila bílunum þar á milli í meira mæli.“ Svo ekki sé talað um umhverfisáhrifin. Félagarnir segja þörfina fyrir deiliþjónustu bílferða nú þegar til staðar. Til dæmis séu um 40 þúsund manns í hópum á Facebook þar sem fólk er að skipuleggja að vera samferða. Það sé hins vegar ekki nógu skilvirkt að bóka ferðir í gegnum Facebook.Vísir/Anton Brink Kynntust í háskólanum Saga félaganna er reyndar skemmtileg saga líka. Því allir koma þeir frá sitthvoru heimalandinu en kynntust í Háskóla Íslands. „Við þekktumst ekki en sátum nokkra kúrsa saman og vorum oft í sömu hópum, fórum því smátt og smátt að kynnast hvor öðrum og komumst þá meðal annars af því að við erum allir hugbúnaðarverkfræðingar sem höfum mjög gaman af því að forrita,“ segir Ahmad. Anoop er sá sem hefur verið á Íslandi lengst; Kom hingað í rannsóknarverkefni fyrir doktorsnámið sitt. Moses hefur verið hér í um tvö ár og Ahmad skemur en eitt ár. Það sem leiddi þá síðan saman að hugmyndinni um HuddleHop var hakkaþon sem haldið var í HÍ. „Það eru svo margir námsmenn í vandræðum með að koma sér á milli staða og í byrjun vorum við því að hugsa um hvernig hægt væri að leysa úr því,“ segir Anoop en bætir við: „Síðan komumst við inn í Gulleggið þar sem hugmyndin að HuddleHop þróaðist enn meir. Að taka þátt í Gullegginu var mikil hvatning. Síðar tókum við þátt í Hringiðu+ hraðlinum hjá KLAK en allt hefur þetta gerst á fjórum mánuðum.“ Að taka þátt í svona viðskiptahraðli eins og Hringiðu segja strákarnir að hafi gefist þeim mjög vel. „Lögfræðiþjónusta er til dæmis mjög dýr en í gegnum Hringiðu fengum við aðgang að slíkri þjónustu, sem við þurftum einmitt á að halda til þess að vera vissir um að starfsemi HuddleHop yrði örugglega í samræmi við íslensk lög,“ segir Anoop. Appið og vefsíðan er nánast tilbúin og nú þegar komin í prófanir hjá nokkrum notendum. Næstu skref er að finna fjárfesta og segja félagarnir að sú vinna sé nú þegar hafin. „Við vonumst þó til þess að HuddleHop verði komið í gagnið á þessu ári,“ segir Moses. En hvað með upplýsingar fyrir notendur; Til dæmis um bílstjóra eða samferðarmenn sem fólk er að bóka sig með í ferðir, hvernig bíllinn er eða hvort bíllinn sé undirbúinn undir snjó og slyddu austur fyrir fjall og svo framvegis? Jú svara félagarnir; Fyrst er að koma HuddleHop í gagnið en um leið og fólk fer að nota það í meira mæli gefst því kostur á að gefa umsagnir og endurgjöf með einkunnargjöf (e. ratings). En hvernig ætlið þið að fá fólk til að skrá sig sem bílaeigendur sem bjóða upp á far? „Við munum byrja á því að leita til þeirra sem eru nú þegar á Facebook því þetta eru svo margir sem eru í þeim hópum. Að gera það sama í gegnum HuddleHop verður miklu notendavænna og minni hætta á að tilkynningar eða samskiptaboð berist ekki á milli fólks,“ svarar Ahmad. Er þetta meira yngra fólk en eldra fólk sem vill svona þjónustu eða hver er markhópurinn? „Hann er mjög fjölbreyttur. Námsmenn og skiptinemar leitast mikið í þetta en eins líka eldra fólk sem er til dæmis að keyra lengri ferðir og finnst gaman að fá félagsskap í bílinn,“ svarar Moses. Sjáið þið fyrir ykkur að HuddleHop stækki og vaxi út fyrir landsteinana? „Já,“ svara félagarnir ákveðið. „Við byrjum á Íslandi en síðan er hugmyndin að horfa til Norðurlandanna og Evrópu.“
Nýsköpun Samgöngur Tengdar fréttir Hringrásin: „Ég er með blæti fyrir gömlu timbri“ Við skulum byrja á því að sjá fyrir okkur eftirfarandi staðreynd: 28. maí 2025 07:00 Hittust á stefnumótaappi og blása nú lífi í týndar sögur „Við erum að blása lífi í allar þessar týndu sögur,“ segir Jón Orri Sigurðarson annar af tveimur stofnendum fyrirtækisins Guyde sem nú vinnur að því að þróa leiðsöguapp sem svo sannarlega gæti komið Íslendingum og öðrum til góða á ferðalögum um landið. 12. desember 2024 07:03 Skemmtilegir úlpustrákar: Vinir sem urðu viðskipta-vinir Það er gaman að taka spjallið við þá Sveinbjörn Traustason og Davíð Örn Ingimarsson, æskufélaga sem ákváðu að gerast frumkvöðlar og stofna fyrirtæki sem leigir útlendingum úlpur og annan útivistafatnað, gönguskó og útilegubúnað. 11. desember 2024 07:01 „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ „Já ég myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum,“ segir Elva Sara Ingvarsdóttir og hlær. 26. september 2024 07:01 „Fjárfestar eru bara venjulegt fólk“ „Ég viðurkenni að fyrst var ég mjög óöruggur. Velti fyrir mér hvort ég væri nógu góður. Hvort varan mín væri nógu góð. Fjárfestar virka einhvern veginn á mann eins og þeir hljóti að vera einhverjir svakalegir risar,“ segir Geoffrey Stekelenburg, stofnandi Neurotic sprotafyrirtækis sem starfrækt er í Grósku. 25. september 2024 07:02 Mest lesið Gervigreindin og vaxandi vítahringur nýútskrifaðra Atvinnulíf Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Shein ginni neytendur til skyndikaupa Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Stefna að því að opna deiliþjónustu bílferða fljótlega Atvinnulíf „Þetta er ekki mjög töff en ég get ekki að þessu gert“ Atvinnulíf Dómstóll ógilti tollahækkanir Trump Viðskipti erlent Annar banki býður betra verð en hinn með sömu eigendur Viðskipti innlent Sameining við Kviku banka mun taka langan tíma Viðskipti innlent ESB skammar Shein: Falskir afslættir og villandi upplýsingar Neytendur Fleiri fréttir Gervigreindin og vaxandi vítahringur nýútskrifaðra Stefna að því að opna deiliþjónustu bílferða fljótlega Hringrásin: „Ég er með blæti fyrir gömlu timbri“ „Þetta er ekki mjög töff en ég get ekki að þessu gert“ Besti svefninn níu mínúturnar á milli snúsa Láttu rétta fólkið taka eftir þér í vinnunni Mannauðsmál lögreglunnar: Ljótu málin taka á Stjórnun þarf ekki bara að breytast heldur „gerbreytast” „Við getum fengið Boga Ágústs til að gera og segja hvað sem er“ Að sofna yfir sjónvarpinu á kvöldin telst ekki með Að nýta kvíðann sem styrkleika og okkur til framdráttar „Já veistu Gummi, þetta gæti verið eitthvað“ Vikan sem vex og vex: „Magatilfinningin er jafnvel mikilvægust“ Hrósæfingar fyrir vinnustaði, gryfjur og góð ráð Bankastjóri Íslandsbanka: Syngur hástöfum fjölskyldunni til hryllings Að segja upp án þess að brenna brýr Breytist hratt næstu árin hvaða fyrirtæki teljast stærst og best „Gróskuhugarfarið hjálpar okkur líka að viðurkenna mistök” Reyndist ekki rétt: „Reykvíkingar munu aldrei koma“ „Var með skipt í miðju og notaði óhóflegt magn af geli“ Gervigreindin: Stjórnendur framtíðarinnar verði þjálfarar Hressilega kaótískir morgnar sem eiga það til að klikka smá Starfsfólk truflað á tveggja mínútna fresti Frumkvöðlar í áratugi: „Launalaus sjálfboðavinna fyrstu árin“ Að komast aftur í vinnugírinn eftir geggjað páskafrí Elskar kaffi að ítölskum sið og línulega dagskrá Systkinin öll verið forsetar: „Tvö félög, tvöfalt stuð!“ Boða alvöru breytingar í jafnréttismálum efnahags- og atvinnulífs Hundurinn tannlaus og unglingarnir vaktir með diskaglamri Að tilkynna vinnufélaga til lögreglu Sjá meira
Hringrásin: „Ég er með blæti fyrir gömlu timbri“ Við skulum byrja á því að sjá fyrir okkur eftirfarandi staðreynd: 28. maí 2025 07:00
Hittust á stefnumótaappi og blása nú lífi í týndar sögur „Við erum að blása lífi í allar þessar týndu sögur,“ segir Jón Orri Sigurðarson annar af tveimur stofnendum fyrirtækisins Guyde sem nú vinnur að því að þróa leiðsöguapp sem svo sannarlega gæti komið Íslendingum og öðrum til góða á ferðalögum um landið. 12. desember 2024 07:03
Skemmtilegir úlpustrákar: Vinir sem urðu viðskipta-vinir Það er gaman að taka spjallið við þá Sveinbjörn Traustason og Davíð Örn Ingimarsson, æskufélaga sem ákváðu að gerast frumkvöðlar og stofna fyrirtæki sem leigir útlendingum úlpur og annan útivistafatnað, gönguskó og útilegubúnað. 11. desember 2024 07:01
„Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ „Já ég myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum,“ segir Elva Sara Ingvarsdóttir og hlær. 26. september 2024 07:01
„Fjárfestar eru bara venjulegt fólk“ „Ég viðurkenni að fyrst var ég mjög óöruggur. Velti fyrir mér hvort ég væri nógu góður. Hvort varan mín væri nógu góð. Fjárfestar virka einhvern veginn á mann eins og þeir hljóti að vera einhverjir svakalegir risar,“ segir Geoffrey Stekelenburg, stofnandi Neurotic sprotafyrirtækis sem starfrækt er í Grósku. 25. september 2024 07:02