Arnaldur Indriðason er áfram í efsta sæti heildarlistans með Ferðalok sín en Yrsa Sigurðardóttir stekkur upp í annað sætið með spennusöguna Ég læt sem ég sofi. Geir H. Haarde sem gerði sig líklegan til að veita Arnaldi keppni í síðustu viku hefur gefið eftir og eru þau glæpasagnakóngur og drottning nú að kljást á toppnum. Glæpasögurnar eru að sækja í sig veðrið á ný en því var spáð að velmektartími þeirra á sölulistum væri senn á enda. En Arnaldur er ekki með glæpasögu að þessu sinni þannig að athyglisvert verður að sjá hvernig fer.
Ekki er að sjá að tilnefningar til hinna Íslensku bókmenntaverðlauna hafi teljandi áhrif á áhuga íslenskra bókakaupenda. Arnaldur er vissulega meðal hinna tilnefndu og situr í efsta sæti á lista, en það hefur hann svo sem alltaf gert, bókmenntaverðlaun eða engin bókmenntaverðlaun.
Hástökkvarar vikunnar
Hástökkvari vikunnar er Hulda eftir Ragnar Jónasson sem fer upp um sjö sæti, úr því tólfta og upp í fimmta sæti. Aðrir hástökkvarar vikunnar eru Bjarni Fritzson með Orra óstöðvandi – Heimsfrægur á Íslandi og Guðrún Eva Mínervudóttir með skáldsöguna Í skugga trjánna.
„Sé litið til skáldverkalistans þá er enn mikil hreyfing á titlum upp og niður listann. Spennusögurnar gera sig meira gildandi en í síðustu viku, af fimm efstu skáldverkunum eru fjórar glæpasögur. Þá koma nú fjögur íslensk skáldverk ný inn á listann,“ segir Bryndís Loftsdóttir framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda (Fíbút).

Þar ber fyrst að nefna hástökkvarann, Nönnu Rögnvaldardóttur með glæpasöguna Þegar sannleikurinn sefur sem mér segir svo hugur að einhverjir bóksalar standist ekki freistinguna að raða við hlið Ég læt sem ég sofi eftir Yrsu. Bækurnar Rétt áðan eftir Illuga Jökulsson, Kul eftir Sunnu Dís Másdóttur og Í djúpinu eftir Margréti S. Höskuldsdóttur eru einnig nýjar á listanum auk ljóðabókarinnar, Jarðljós eftir Gerði Kristnýju sem skríður inn á topp 20 lista yfir seld skáldverk.
Brauðtertubókin einn af óvæntari smellum ársins
Óttar Sveinsson heldur sínu og vel það. Eins og ávallt. Útkall í ofsabrimi er ný í fyrsta sæti fræðibókalistans, fast á hæla hennar kemur Geir Haarde með Ævisögu og Stóra brauðtertubókin sem gerir sig líklega til að verða ein af óvæntari smellum ársins.
„Sala barnabóka virðist fara hægar af stað en áður, af tíu mest seldu bókum vikunnar eru til dæmis bara tvær barnabækur. Það getur reyndar líka verið merki þess að salan sé að dreifast meira á fleiri titla. En Orri óstöðvandi – Heimsfrægur og Íslandi eftir Bjarna Frizson er ný í fyrsta sæti barnabókalistans. Bækur Birgittu Haukdal, Lára fer á fótboltamót og Atli eignast gæludýr sitja þar í öðru og þriðja sæti.“
Bryndís bendir á að þó að listinn telji yfir 80 titla þá sé það aðeins lítið brot af útgáfunni í ár. „Við hvetjum lesendur til þess að kynna sér úrvalið og auðvitað að halda í hefðina og gefa bækur í jólagjafir,“ segir Bryndís. En ekki hvað?
Bóksölulistinn 1.-8. desember
- Ferðalok - Arnaldur Indriðason
- Ég læt sem ég sofi - Yrsa Sigurðardóttir
- Útkall í ofsabrimi - Óttar Sveinsson
- Orri óstöðvandi - Heimsfrægur á Íslandi - Bjarni Fritzson, myndh. Þorvaldur Sævar Gunnarsson
- Hulda - Ragnar Jónasson
- Dauðinn einn var vitni - Stefán Máni
- Ævisaga - Geir H. Haarde
- Lára fer á fótboltamót - Birgitta Haukdal
- Kvöldið sem hún hvarf - Eva Björg Ægisdóttir
- Í skugga trjánna - Guðrún Eva Mínervudóttir
- Atli eignast gæludýr - Birgitta Haukdal
- Sextíu kíló af sunnudögum - Hallgrímur Helgason
- Stella segir bless - Gunnar Helgason
- Himintungl yfir heimsins ystu brún - Jón Kalman Stefánsson
- Tjörnin - Rán Flygenring
- Bluey - 5 mínútna sögur - Joe Brumm, þýð. Andri Karel Ásgeirsson
- Prumpulíus brelludreki - Kai Lüftner, myndh. Wiebke Rauers
- Bakað með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal og Sylvía Haukdal
- Þegar Trölli stal jólunum - Dr. Seuss,þýð. Þorsteinn Valdimarsson
- Verstu skrímsli í heimi - David Walliams, þýð. Guðni Kolbeinsson
Skáldverk
- Ferðalok - Arnaldur Indriðason
- Ég læt sem ég sofi - Yrsa Sigurðardóttir
- Hulda - Ragnar Jónasson
- Dauðinn einn var vitni - Stefán Máni
- Kvöldið sem hún hvarf - Eva Björg Ægisdóttir
- Í skugga trjánna - Guðrún Eva Mínervudóttir
- Sextíu kíló af sunnudögum - Hallgrímur Helgason
- Himintungl yfir heimsins ystu brún - Jón Kalman Stefánsson
- Jólabústaðurinn - Sarah Morgan,þýð. Birgitta Hassell og Marta Magnadóttir
- Ég færi þér fjöll - Kristín Marja Baldursdóttir
- Þegar sannleikurinn sefur - Nanna Rögnvaldardóttir
- Jólabókarleitin - Jenny Colgan, þýð. Helga Soffía Einarsdóttir
- Hittu mig í Hellisgerði - Ása Marin
- Rétt áðan - Illugi Jökulsson
- Kul - Sunna Dís Másdóttir
- Speglahúsið - Benný Sif Ísleifsdóttir
- Morðin á heimavistinni - Lucinda Riley, þýð. Arnar Matthíasson
- Hjartabein - Colleen Hoover, þýð. Sunna Dís Másdóttir
- Í djúpinu - Margrét S. Höskuldsdóttir
- Jarðljós - Gerður Kristný
Fræðbækur og rit almenns efnis
- Útkall í ofsabrimi - Óttar Sveinsson
- Ævisaga - Geir H. Haarde
- Stóra brauðtertubókin - Ýmsir höfundar
- Pabbabrandarar 3 - Þorkell Guðmundsson
- Börn í Reykjavík - Guðjón Friðriksson
- Ullaræði: Villahullu 2 - Heli Nikula, þýð. Guðrún Hannele Henttinen
- Öxin, Agnes og Friðrik - Síðasta aftakan á Íslandi - Magnús Ólafsson
- Fangar Breta - Sindri Freysson
- Ég átti að heita Bjólfur - Æskuminningar - Jón Ársæll Þórðarson
- Til taks - Þyrlusaga Landhelgisgæslu Íslands - Benóný Ásgrímsson, Júlíus Ó. Einarsson og Páll Halldórsson
- Í veiði með Árna Bald - Árni Baldursson
- Þjóðin og valdið - Fjölmiðlalögin og Icesave - Ólafur Ragnar Grímsson
- ADHD í stuttu máli - Edward M.Hallowell, þýð. Nanna Rögnvaldardóttir
- Fólk og flakk - Sagnakvöld af baksviði stjórnmálanna - Steingrímur J. Sigfússon
- Fótboltaspurningar Illuga Jökulssonar - Illugi Jökulsson
- Duna - Saga kvikmyndagerðarkonu - Kristín Svava Tómasdóttir og Guðrún Elsa Bragadóttir
- Ég skal hjálpa þér - Saga Auriar - Herdís Magnea Hübner
- Frasabókin – ný og endurbætt íslensk snjallyrði - Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson
- Morðleikir - 100 auðveldar til ómögulegar gátur - G.T. Karper, þýð. Ingunn Snædal
- Churchill - Stjórnvitringurinn framsýni - James C. Humes, þýð. Magnús Þór Hafsteinsson
Barna- og ungmennabækur
- Orri óstöðvandi - Heimsfrægur á Íslandi - Bjarni Fritzson, myndh. Þorvaldur Sævar Gunnarsson
- Lára fer á fótboltamót - Birgitta Haukdal
- Atli eignast gæludýr - Birgitta Haukdal
- Stella segir bless - Gunnar Helgason
- Tjörnin - Rán Flygenring
- Bluey - 5 mínútna sögur - Joe Brumm, þýð. Andri Karel Ásgeirsson
- Prumpulíus brelludreki - Kai Lüftner, myndh. Wiebke Rauers
- Bakað með Láru og Ljónsa - Birgitta Haukdal og Sylvía Haukdal
- Þegar Trölli stal jólunum - Dr. Seuss, þýð. Þorsteinn Valdimarsson
- Verstu skrímsli í heimi - David Walliams, þýð. Guðni Kolbeinsson
- Vörubílar og vinnuvélar - Örn Sigurðsson
- Risaeðlugengið 6: Leyndarmálið - Lars Mæhle, myndh. Lars Rudebjer
- Fíasól í logandi vandræðum - Kristín Helga Gunnarsdóttir, myndir Halldór Baldursson
- Kærókeppnin - Embla Bachmann, myndir Blær Guðmundsdóttir
- Lína bjargar jólunum - Astrid Lindgren, þýð. Silja Aðalsteinsdóttir
- Kúkur, piss og prump - Vísindalæsi 5 - Sævar Helgi Bragason, myndir Elías Rúni
- Dagbók Kidda klaufa 18: Ekkert mál - Jeff Kinney, þýð. Helgi Jónsson
- Bluey - ömmur - Joe Brumm, þýð. Andri Karel Ásgeirsson
- Ævintýri Orra og Möggu - Ótrúleg uppátæki - Bjarni Fritzson, myndir Þorvaldur Gunnarsson
- Hvolpasveitin: Voff-voff björgunartæki - Keith Chapman, þýð. Andri Karel Ásgeirsson
Uppsafnað frá áramótum
- Ferðalok - Arnaldur Indriðason
- Ég læt sem ég sofi - Yrsa Sigurðardóttir
- Ævisaga - Geir H. Haarde
- Lára fer á fótboltamót - Birgitta Haukdal
- Útkall í ofsabrimi - Óttar Sveinsson
- Orri óstöðvandi - Heimsfrægur á Íslandi - Bjarni Fritzson, myndir Þorvaldur Sævar Gunnarsson
- Dauðinn einn var vitni - Stefán Máni
- Hildur - Satu Rämö, þýð. Erla Elíasdóttir Völudóttir
- Hulda - Ragnar Jónasson
- Kvöldið sem hún hvarf - Eva Björg Ægisdóttir
- Sextíu kíló af sunnudögum - Hallgrímur Helgason
- Atli eignast gæludýr - Birgitta Haukdal
- Lykillinn - Kathryn Hughes, þýð. Ingunn Snædal
- Fóstur - Claire Keegan, þýð. Helga Soffía Einarsdóttir
- Í skugga trjánna - Guðrún Eva Mínervudóttir
- Sjö fermetrar með lás - Jussi Adler-Olsen, þýð. Jón St. Kristjánsson
- Stella segir bless - Gunnar Helgason
- Prumpulíus brelludreki - Kai Lüftner, myndir Wiebke Rauers
- Fíasól í logandi vandræðum - Kristín Helga Gunnarsdóttir, myndir Halldór Baldursson
- Himintungl yfir heimsins ystu brún - Jón Kalman Stefánsson