Skoðun

Kjósum breytingar og já­kvæðni í þágu al­mennings og sam­fé­lags

Valdimar Breiðfjörð Birgisson skrifar

Kjördagur er nú runninn upp og því mikilvægt að þú gerir tvennt í dag. Í fyrsta lagi að nýta kosningaréttinn þinn, því lýðræðið og rétturinn til að kjósa er ótrúlega dýrmætur og alls ekki sjálfgefinn eins og við eigum öll að vita. Hitt sem er mikilvægt, er að þú kjósir Viðreisn með því að setja x við C. Mig langar að færa þrenns konar rök fyrir því að þið kjósið Viðreisn í dag: 

1. Meira frelsi 

Viðreisn setur frelsið í forgang. Við ætlum ekki að vera flokkurinn sem sífellt þarf að hafa vit fyrir fólki heldur treysta fólki til þess að haga lífi sínu eins og það kýs. Frelsi til þess elska þann sem við viljum, frelsi til þess að ráða yfir eigin líkama og auk þess raunverulegt frelsi til athafna en ekki hagsmunabarátta fyrir útvalda í nafni frelsisins. 

2. Skynsamleg hagstjórn fyrir lægri verðbólgu

 Verðbólga hefur haft alvarleg áhrif á íslenskan almenning undanfarið og dregið úr kaupmætti. Fylgifiskur verðbólgu eru háir vextir sem hafa alvarleg áhrif á efnahag heimila og fyrirtækja. Viðreisn leggur áherslu á stöðugleika með ábyrgri hagstjórn. Markmiðið er að lækka verðbólgu og vexti, greiða niður skuldir ríkisins og minnka þar með vaxtabyrði ríkisins. Þetta gerum við með markvissari nýtingu opinbers fjár, þar á meðal með því að sameina stofnanir og draga úr óþarfa verkefnum. 

3. Velferð barna og ungmenna í öndvegi

 Líðan barna og ungmenna hefur versnað síðustu ár, og fjölmargar fjölskyldur eiga í erfiðleikum af þeim sökum. Viðreisn leggur til aukið aðgengi að sálfræðiþjónustu í skólum og meiri stuðning við fjölskyldur barna í vanda. Við ætlum að eyða biðlistum eftir greiningum barna, efla forvarnir og tryggja meðferðarúrræði fyrir börn. Það er grundvallarhlutverk samfélagsins að tryggja velferð næstu kynslóðar. Við mælum velferð samfélaga út frá því hvernig við komum fram við okkar veikasta fólk. Við ætlum að efla forvarnir á öllum sviðum og auka fræðslu í samstarfi við unga fólkið okkar. 

Að lokum við ég árétta hve mikilvægt það er að takast á við verkefnin með jákvæðni og bjartsýni að leiðarljósi því það hefur Viðreisn sýnt í þessari kosningabaráttu að hún gerir. Fólkið í Viðreisn er tilbúið til þess að vinna að nauðsynlegum breytingum á samfélaginu og taka höndum saman með þeim sem vilja gera það líka. Öll okkar stefnumál hafa hagsmuni almennings og samfélagsins að leiðarljósi og allar okkar ákvarðanir miðast við að þær komi sem best út fyrir fólkið í landinu. Því getur þú treyst og þess vegna skaltu kjósa Viðreisn í dag. 

Höfundur skipar 5. sæti á lista Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Konur hlusta á konur og karla, karlar hlusta á karla

Ásta Björg Björgvinsdóttir,Elíza Geirsdóttir Newman,Helga Ragnarsdóttir,Katla Vigdís Vernharðsdóttir,Lára Rúnarsdóttir,Lilja Sól Helgadóttir,Sóley Stefánsdóttir,Steinunn Camilla Stones skrifar

Skoðun

Enginn á að vera hryggur um jólin

Aldís Amah Hamilton,Hulda Jónsdóttir Tölgyes,Klara Ósk Elíasdóttir,Ragnheiður Gröndal,Rósa Líf Darradóttir,Valgerður Árnadóttir skrifar

Sjá meira


×