Uppeldi frá gamla einmenningar eins-skin-litar viðhorfum Matthildur Björnsdóttir skrifar 5. október 2024 18:01 Hin meiriháttar orð Hrafnhildar Ming Þórunnardóttur ættu að vera það sem þau sem ala upp börn í dag noti sem fyrirmynd. Hún er svo heppin að hafa fengið rétta móður með rétt uppbyggjandi viðhorf. Móðir sem skilur greinilega mikilvægi sjálfsöryggis og hefur byggt hana upp með því. Það réttlætir þó ekki, að aðrir sýni slíkan dónaskap og tillitsleysi. Svo er það mitt annað nýja orð: Húð-litar-fóbía. Viðhorf sem of margir á landinu eru enn með, og skilja ekki að sá húðarlitur sem mannveran hefur, kemur frá því hvernig sólarstaða og magn þess voru og eru á þeim hluta jarðar sem DNA mannverunnar kemur frá. Orð hennar að sá dónaskapur hafi styrkt sjálfstraust hennar, vitandi að hún myndi ekki haga sér þannig eða tala á þann hátt til annarra. Er það sem segir mér að Hrafnhildur hefur fengið það sjálfstraust og sjálfs væntumþykju víraða inn frá upphafi tíma hennar með mömmu sinni. Það er að vera bæði röklega og taugakerfislega víruð fyrir sjálfs ást og traust. Sú vírun er mjög líkleg til að gera manneskjuna mun heilbrigðari í svo mörgu í lífi sínu. Það viðhorf sem er í sumum, að allir á Íslandi eigi að hafa sömu hvítu húðina virðist vera ansi vírað inn í alla vega einhvern hluta þjóðarinnar, eins og fleiri með öðru vísi lita húð hafa tjáð sig um í blöðunum. Kringumstæður heims eru að sýna að við erum öll mannverur sama hvaða húðlit við fæðumst með. Og kannski er það almættis kerfi að sjá um að fá mannkyn til að skilja það, meðtaka og sjá sem eðlilegt með að hlutir gerast sem hvetja til blöndunar á húðlitum í samfélögum sem voru ekki vön slíku. Einmenningar venjur geta orðið ansi þröngar. Að læra röklega að við séum fædd með virði, er bara ekki nóg. Alla vega ekki fyrir nærri alla. Ef mannveran hefur ekki fengið það sett í sig frá ást og uppbyggingu frá upphafi. Þá er mun líklegra að sambönd og annað fari ekki eins og vænst er. Atriði sem ég áttaði mig á að við eigum öll að hafa fengið, en færri fengu. Blessunin hún Louise L Hay. Kona í Ameríku sem ég segi að hafi komið frá framtíðinni, dó níræð fyrir nokkrum árum síðan. Hún leiðrétti þá túlkun presta sem sáu það orð sjálfs-elska sem eigingirni. En er í raun mikilvægt fyrir að geta líka elskað aðra og þá betur. Ef ástartankurinn í einstaklingi er tómur eða með lítið í, þá er kannski erfitt að finna nóg af henni handa öðrum? Ef einhverjir unglingar þá fengu þá kennslu frá foreldrum voru þau heppin. Hugtakið „Emotional Intelligense“ Tilfinninga-viska-þroski, var ekki heldur til. Enda hefði það orð og það sem það þýðir, ekki verið séð sem æskilegt þá. Ég heyrði ekki um það fyrr en eftir að koma til Ástralíu og læra um nýja bók um það. Það er dæmi um orð og hugtök og hugsanir sem voru ekki til á Íslensku. Svo hverjar voru ástæðurnar fyrir að þessum og öðrum íhaldssömum hugmyndum var haldið að þjóðinni í svo margar aldir. Og það áður en útvarp kom. Svo seinna aðrir fjölmiðlar eins og dagblöð. Þá gátu einstaklingar ekki lifað frá neinu nema sínum takmörkuðu veruleika heimum og hvaða magni af tilfinningum þau höfðu náð að hafa. Lítið land sem Norðmenn höfðu fundið á flótta sínum frá Haraldi Hárfagra. Land með fátt af þeim hlutum sem fólk þarf að borða eða öðru. Það var mest bara fiskur í sjónum sem ég veit ekki hvenær var nýtt sem fæða þá. Svo var það veðrið, fámenni, langir dimmir vetrar með snjó og kulda. Það er líklegt til að herða eitt og annað í sálum og hugum þeirra sem taka sér það vald að stjórna þjóðinni. Ég tek eftir því að sumir af minni kynslóð eru harðánægðir með að halda í einmenningar hvít-húðar lífið sem þau ólust upp í, og við. Svo að það gæti því miður þýtt að þeir einstöku einstaklingar með aðra húðliti sem setjist að á landinu, eigi eftir að fá slíkar slettur eins og Hrafnhildur fékk. Það er þá hugsanlega frá því að foreldrarnir hafa ekki kennt þeim mannasiði né um að hvaða húðlit manneskjur hafi skipti ekki máli. Heldur skiptir máli hver þau séu og að þau eru á landinu til að veita allt mögulegt gott og lítríkt. Sagan um það sem gerðist í Helgafellsskóla er að minni sýn frá hinum fornu viðhorfum til tilfinninga. Eins og kom fram í blöðum um þetta með sæðisgjöf að það sé mikilvægt að það verði ekki slys mikilla skyldleika í því hvert þau fara. Þá er á hreinu að einmenningar þjóðin verði að fá ný DNA í safnið til að forðast úrkynjun. Höfundur er Íslendingur sem hefur verið búsettur í Ástralíu um langan tíma. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Matthildur Björnsdóttir Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar