Samstarf

GreenCoat er um­hverfis­vænasta litaða stál­klæðningin sem völ er á

Límtré Vírnet
Andri Daði Aðalsteinsson er forstöðumaður sölusviðs Límtrés Vírnets.
Andri Daði Aðalsteinsson er forstöðumaður sölusviðs Límtrés Vírnets.

Límtré Vírnet býður upp á byggingarlausnir og vörur sem henta íslenskum aðstæðum og kröfum en leitast líka við að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif.

Af þeim sökum ákvað fyrirtækið nýlega að hætta við sölu á polyester húðuðu stáli og bjóða framvegis eingöngu upp á GreenCoat® húðun í lituðu stáli. GreenCoat® er litað stál sem er framleitt með sjálfbærni og endingu í huga.

Stálið er notað í þakklæðningar, veggklæðningar og þakrennukerfi að sögn Andra Daða Aðalsteinssonar, forstöðumanns söludeildar Límtrés Vírnets. „GreenCoat vörurnar eru húðaðar með lífrænum hráefnum með sænskri repjuolíu sem er einstök lausn á markaði í dag og gerir GreenCoat litaða stálið umhverfisvænasta kostinn fyrir litaðar stálklæðningar. Úrval lita er fjölbreytt og er innblásið af íslenskri náttúru og menningu.“

GreenCoat® smellpassar í íslenska náttúru og umhverfi. Arkitekt er Sigrún Sumarliðadóttir og Mark Smyth, Studio Bua. Mynd/SSAB

GreenCoat húðaða stálið er framleitt af SSAB í Svíþjóð en fyrirtækið hefur skuldbundið sig að gera framleiðslu sína sjálfbæra og er þátttakandi í samvinnuverkefni sem kallast HYBRIT. „Markmið verkefnisins er að hætta notkun jarðefnaeldsneytis í stálframleiðslu fyrir árið 2036. Til þess að það markmið náist þarf að skipta út notkun á koksuðum kolum, sem yfirleitt eru nauðsynleg við stálframleiðslu, fyrir vetni sem framleitt er með endurnýjanlegri orku.“

Þetta mun skila fyrstu stálframleiðslutækni sögunnar sem ekki notast við jarðefnaeldsneyti og þar sem kolefnisfótsporið er nánast ekkert. „Stál hefur verið framleitt á sama hátt í yfir 1000 ár þar sem koksuð kol eru notuð til framleiðslu sem gerir stáliðnaðinn að einum mest mengandi iðnaði í heimi. Við erum því að ræða um algjöra byltingu í stáliðnaðinum.“

GreenCoat hentar á allar gerðir bygginga að sögn Andra, hvort sem er um að ræða á veggi eða þök og eiga alls ekki betur við á einum stað frekar en öðrum. „Kostir þess að nota GreenCoat í byggingar á Íslandi er sú öfluga tæringarvörn sem varan hefur og ekki skemmir fyrir að þetta er umhverfisvænasta litaða stálklæðningin sem völ er á. Tæringaflokkar eru fimm talsins og flokkast GreenCoat undir RC5 sem er hæsta tæringarvörn sem völ er á í stálklæðningum.“

Límtré Vírnet tók þátt í stórsýningunni Verk og vit sem fór fram í Laugardalshöll nýlega. „Þátttaka í sýningu eins og Verk og vit er gríðarlega mikilvæg fyrir fyrirtæki eins og Límtré Vírnet. Þetta er helsti stóri vettvangurinn á Íslandi þar sem byggingariðnaðurinn kemur saman á glæsilegri sýningu til að kynna sig og sína vöru. Þarna koma saman allir hlutaðeigandi aðilar á markaðinum, hvort sem það eru iðnaðarmenn, byggingarverktakar, hönnuðir o.s.frv. Svo er þetta líka bara svo skemmtilegt, svona sameiginleg árshátíð byggingariðnaðarins.“

Nánari upplýsingar á limtrevirnet.is.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×