Rafíþróttir

Ofurlaugardagur í Ljósleiðaradeildinni

Snorri Már Vagnsson skrifar
Ravle og Allee, leikmenn NOCCO Dusty og Þór. Liðin eru í harðri toppbaráttu og þurfa að vera á tánum í dag.
Ravle og Allee, leikmenn NOCCO Dusty og Þór. Liðin eru í harðri toppbaráttu og þurfa að vera á tánum í dag.

Fjórar viðureignir fara fram í Ljósleiðaradeildinni í Counter-Strike í dag.

Heil umferð fer fram í dag, en fjórir leikir verða spilaðir í stað fimm, þar sem Atlantic hafa verið dæmdir úr leik á tímabilinu. ÍBV áttu leik gegn þeim, en fá dæmdan sjálfkrafa sigur eins og öll önnur lið munu fá gegn Atlantic það sem eftir lifir tíambils.

Dagskrá Ofurlaugardagsins, sem hefst kl. 17:00 má sjá hér fyrir neðan.

Dagskrá Ofurlaugardagsins.

Í fyrsta leik mætast FH og NOCCO Dusty. Dusty eru jafnir Þórsurum á toppi deildarinnar með 22 stig en FH eru í fimmta sæti með fjórtán stig.

ÍA og Ármann mætast í öðrum leik dagsins, en Ármann þurfa á sigri að halda til að halda sér í toppbaráttunni. Þeir eru jafnir Sögu í 3-4 sæti með 14 stig. Nýtt lið ÍA er enn að leita að sínum fyrsta sigri, en þeir eru í áttunda sæti með 10 stig.

Breiðablik mætir Þór klukkan 19:00, en Blikar eru í hörkubaráttu á miðri töflu.

Lokaleikur dagsins hefst kl. 20:00 þegar Saga og Young Prodigies mætast. Saga getur blandað sér í vægast sagt óvænta toppbaráttu, sigri þeir leik sinn. Young Prodigies eru í sjöunda sæti með 14 stig.

Leikirnir verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Esports, sem og í vefspilara á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×