Atvinnulíf

Vísir, Heimildin, Mogginn og Viðskiptablaðið undir góðri tónlist

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Tinni Sveinsson vaknar við morgunútvarpið á morgnana og skannar síðan alla helstu miðlana undir góðri tónlist áður en vinnudagurinn hefst. Í laumi væri Tinni til í að vera Teitur Magnússon söngvaskáld, væri hann sjálfur tónlistarstjarna.
Tinni Sveinsson vaknar við morgunútvarpið á morgnana og skannar síðan alla helstu miðlana undir góðri tónlist áður en vinnudagurinn hefst. Í laumi væri Tinni til í að vera Teitur Magnússon söngvaskáld, væri hann sjálfur tónlistarstjarna. Vísir/Vilhelm

Það fyrsta sem Tinni Sveinsson framkvæmdastjóri LóuLóu gerir á morgnana er að setja góða tónlist á fóninn og skanna síðan alla helstu miðlana. Jafn tæknivæddur og Tinni er, skrifar hann lista á gamla mátann til að halda utan um verkefnin sín.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Ég rumska við morgunútvarpið upp úr sjö. Það tekur mig smástund að sigla í gang og ég fer fram úr um klukkan átta.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Ég byrja oftast á því að setja góða tónlist á fóninn. Það er gott að hlusta á tónlist á morgnana. Brynjan sem fylgir oft daglegu amstri er ekki komin upp og skilningarvitin eru opin.

Svo les ég fréttir og það sem mér finnst forvitnilegt á Vísi og víðar. Ég sakna þess svolítið að fá dagblöð inn um lúguna á morgnana, enda var ég alinn upp við blöðin og vann lengi á þeim. 

Kann að meta það í byrjun dags að fara yfir fjölbreytta pakka sem ritstjórnir setja saman eftir kúnstarinnar reglum. 

En ég les þó Heimildina, Moggann og Viðskiptablaðið í spjaldtölvu.“

Hvaða tónlistarstjarna dreymir þig um í laumi að vera?

„Ég er nú frekar sáttur í eigin skinni en gæti nefnt Teit Magnússon, sem er í uppáhaldi hjá mér. Hann er hæfileikaríkt söngvaskáld, djúpvitur og með tímalausa og heillandi sýn á jarðvistina.“

Tinni er alin upp við blöðin og starfaði lengi í fjölmiðlageiranum. Nú hefur hann söðlað um, er að koma á laggirnar sprotafyrirtækinu LóuLóu og segir íslenskt nýsköpunarumhverfi afar heillandi. Þótt Tinni starfi í hugbúnaðargeiranum er hann gamaldags þegar kemur að skipulaginu því þá er það bara gamli góði listinn sem virkar best.Vísir/Vilhelm

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Ég er að koma hugbúnaðarfyrirtækinu Lóalóa á lappirnar með félögum mínum. Það er virkilega gaman og krefjandi. 

Við tókum þátt í viðskiptahraðlinum Startup Supernova hjá Klak núna í haust. Fengum þar góða innsýn til að koma okkur fyrir í sprota- og nýsköpunarumhverfinu á Íslandi, sem er á fleygiferð og ótrúlega heillandi.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

Ég skrifa lista eins og vindurinn. Þeir halda mér á beinu brautinni þannig að ég rati ekki af leið þegar hugurinn fer á flug. 

Ég tek mér oft smástund í skipulagningu í byrjun hvers dags. Þá eru markmiðin í hænuskrefum, svo stækka þau í listum sem ég skrifa fyrir vikur og mánuði.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Á miðnætti. Oftast eftir sjónvarpsgláp. Mig langar, eins og svo marga, að keyra bókalestur betur í gang. Náði mikilvægum áfanga í þessu plani mínu þegar ég fékk mér gleraugu fyrir ekki svo löngu. Var þá búinn að vera fattlaus í tómu brasi að reyna að lesa bækur úr fókus í nokkurn tíma.“


Tengdar fréttir

Erfitt að setja „like“ á myndir af fólki í ræktinni klukkan sex

B týpan Ásta Dís Óladóttir prófessor, stjórnarkona, formaður Jafnvægisvogar FKA og fleira, segist alveg eiga það til að hugleiða það í korter tuttugu mínútur á morgnana hvort nú sé tími til að fara á fætur, áður en hún síðan fer fram úr. 

Konan sér oft um hlátursköstin rétt fyrir svefninn

Teitur H. Syen, framkvæmdastjóri mannauðs og gæða hjá Kynnisferðum, sem starfar undir vörumerkinu Icelandia, segir orkustuðullinn sinn bestan á morganana. Teitur fékk hláturskast í vinnunni um daginn, en segir konuna sína líka lunkna við að fá hann til að hlæja rétt fyrir svefninn.

Forstjórinn sem endar stundum ein á dansgólfinu

B týpan Brynja Baldursdóttir, forstjóri Greiðslumiðlunar Íslands, segir umferðateppuna úr Garðabæ alveg gefa frábærar gæðastundir á morgnana og þegar hún er spurð um tónlist og dans, segir hún það oftast frekar auðvelt að ná sér út á gólfið í sveiflu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×