Atvinnulíf

Óstundvísi: Alltaf sama fólkið og stuðar alla í kring

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Það leiðist öllum að vinna með einhverjum sem er alltaf of seinn. Mætir of seint á morgnana, er aðeins of lengur í hádegi, jafnvel alltaf aðeins of seinn á fundi. En það þýðir ekkert að láta þetta fara í taugarnar á sér: Yfirmenn þurfa að sýna ábyrgð og tækla málið.
Það leiðist öllum að vinna með einhverjum sem er alltaf of seinn. Mætir of seint á morgnana, er aðeins of lengur í hádegi, jafnvel alltaf aðeins of seinn á fundi. En það þýðir ekkert að láta þetta fara í taugarnar á sér: Yfirmenn þurfa að sýna ábyrgð og tækla málið. Vísir/Getty

Það er einn hundleiðinlegur vani sem því miður sumir hafa: Þeir eru alltaf of seinir. Mæta aðeins of seint til vinnu. Eru aðeins lengur í hádegismat, mætir síðast á alla fundi og svo framvegis.

Auðvitað geta allir verið aðeins of seinir stundum. Það þarf ekki nema nokkrar mínútur til að seinka öllu. Smá töf á leikskólanum, óvenju mikil traffík, einn morgun þar sem allir á heimilinu vöknuðu aðeins of seint.

Svo ekki sé talað um dagana þar sem íslenskt veðurfar hefur veruleg áhrif á allt!

En við erum ekki að tala um starfsfólkið sem í einstaka sinnum mætir aðeins of seint eða þarf að taka aðeins lengri hádegishlé. 

Nei, við erum að tala um starfsfólkið sem einfaldlega er óstundvíst og nokkurn veginn mætir alltaf aðeins of seint.

Þetta er hvimleiður vani. Ekki aðeins eitthvað sem vinnuveitandi þarf að takast á við, heldur líka eitthvað sem fer oftast meira í taugarnar á samstarfsfólki viðkomandi en fólkið sjálft áttar sig á.

Því fyrr sem tekið er á þessari tegund óstundvísi, því betra.

Hins vegar eiga stjórnendur það til að ræða við allan hópinn um mætingar og stundvísi, í stað þess að ræða einungis við þann sem málið varðar.

Því já, að ræða persónulega óstundvísi er viðkvæmt umræðuefni.

Hér eru nokkur góð ráð.

Ekki fá í taugarnar

Að taka eftir ítrekaðri óstundvísi hjá starfsmanni og láta það fara í taugarnar á sér er ekki í boði. 

Sem yfirmaður þarftu að takast á við málið og pirringur er ekki að fara að laga neitt. 

Sem stjórnandi eru meiri líkur á að þú tæklir málið á yfirvegaðan og jákvæðan hátt, ef þú bíður ekki of lengi með að takast á við vandamálið.

Ekki ræða málin fyrir framan alla

Það getur verið freistandi að tala um óstundvísina við aðra starfsmenn. Sérstaklega þegar þú veist að þessi óstundvísi fer í taugarnar á öðru starfsfólki líka.

Þetta er ekki viðeigandi. Ekki heldur að andvarpa, ranghvolfa augunum eða tjá þig með einhverjum hætti við aðra starfsmenn til staðfestingar á því að þér finnist þetta jafn óviðunandi og þeim: Sýndu ábyrgð og taktu á málum!

Samtalið sjálft

Samtalið þarf að fara fram í einrúmi og það er mikilvægt að þú undirbúir þig undir það samtal.

Ræddu málin á yfirvegaðan hátt þannig að samtalið virki ekki eins og árás á viðkomandi. Það gagnast síður ef viðkomandi fer í vörn.

Gefðu viðkomandi líka færi á að tjá sig. Hvað veldur því að viðkomandi er alltaf of seinn? Hvernig upplifir viðkomandi sjálfur sína óstundvísi? Hefur kannski eitthvað breyst og er þetta nýtilkomin hegðun?

Eftir gott samtal skiptir þó máli að væntingarnar þínar um breytingar séu mjög skýrar. Þess vegna er gott að ákveða strax annan fund þar sem ætlunin er að ræða málin aftur. Þar með er komin hvati hjá viðkomandi til að bæta úr.

Að líta í eigin barm

Þá er líka alltaf gott að líta í eigin barm: Hvers konar fyrirmynd ert þú sem yfirmaður? Ertu stundvís? Eða vinnur þú oft fram eftir og mætir seinna á morgnana?

Það er alls ekkert víst að starfsfólkið þitt átti sig á því hvort vinnufyrirkomulagið þitt sé þannig að þú mætir seinna á morgnana vegna þess að þú vinnur lengur á daginn, á kvöldin eða um helgar. Ef svo er, þarftu að útskýra það fyrir fólki að vinnutíminn þinn sé öðruvísi en þeirra sem fara heim klukkan fjögur, fimm eða sex.

Í þessu samhengi má líka spyrja: Er þetta fyrirkomulag í boði fyrir aðra starfsmenn einnig? Er sveigjanlegur vinnutími þar sem mæting síðar á morgnana býður upp á að starfsfólk vinni lengur á daginn? Hversu skýrar eru reglurnar á vinnustaðnum og hversu sýnilegar eru þær öllum? Því fólk þarf að vera vel upplýst.

Loks má benda á að samkvæmt rannsóknum, mælist stundvísi betri hjá starfsfólki sem upplifir sig í góðu sambandi við yfirmenn sína.


Tengdar fréttir

Óréttlátt ef aðrir vinna miklu meira en þú

Það getur verið óréttlátt gagnvart samstarfsfólkinu okkar ef við erum gjörn á að sóa mikið tímanum í vinnunni. Sem rannsóknir sýna þó að flestir gera í einhverjum mæli daglega.

Góð ráð: Aftur á vinnumarkaðinn eftir langt hlé

Það getur verið kvíðvænleg tilhugsun að vera að fara aftur á vinnumarkaðinn eftir langt hlé. En svo sem ekkert óalgengt ef stutt er á milli barneigna og/eða þær aðstæður hafa komið upp hjá fjölskyldunni að par ákveður að annað foreldrið sé heimavinnandi um tíma.

Erfitt að ræða launin í vinnunni

Það er staðreynd að eitt af erfiðustu umræðuefnum fólks eru samtöl um peninga. Þessi samtöl eru oft erfið á milli hjóna, þau geta líka verið erfið á milli vina þar sem deila þarf kostnaði eða ræða kostnað.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×