Edda veitti viðskiptavinum ekki fullnægjandi upplýsingar Hólmfríður Gísladóttir skrifar 13. september 2023 11:11 Edda gefur meðal annars út Syrpuna og Disney-bækur á íslensku. Disney Edda útgáfa hf. braut gegn ákvæðum laga nr. 57/2005 um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu með því að upplýsa ekki viðskiptavini um ýmsa skilmála, hvorki í fjarsölu né við sölu á netinu.
Þá var staðfesting samnings ekki send kaupanda á varanlegum miðli þegar gengið hafði verið frá áskrift né voru neytendur upplýstir um frest til að falla frá samningi við Eddu. Þetta er niðurstaða Neytendastofu í máli einstaklings sem þáði áskriftartilboð Eddu í gegnum fjarsölu (í síma) en var tilkynnt að fimm mánaða binditími væri á áskriftinni þegar hann reyndi að segja henni upp. Þrátt fyrir að Edda segði alla viðskiptavini upplýsta um skilmála samkvæmt framlögðu handriti benti Neytendastofa meðal annars á að engin leið væri til að staðfesta að upplýsingarnar hefðu sannarlega komið fram í samtali sölumanns og viðskiptavinar. Edda brást við með því að endursskoða vinnulag og hóf meðal annars að senda tölvupóst á þá sem höfðu áhuga á að kaupa áskrift þar sem allar upplýsingar komu fram. Þá fengu viðskiptavinir senda staðfestingu á samningi áður en fyrsta var var afhent. Enn gerði Neytendastofa athugasemdir, enda kom í ljós við athugun að einnig væri hægt að ganga frá áskrift á netinu, þar sem enn skorti á lögbundna upplýsingagjöf. Þá gerði stofnunin einnig athugasemdir við að upplýsingar vantaði um heildarverð áskriftar að meðtöldum sendingakostnaði og öðrum gjöldum. Það var niðurstaða Neytendastofu að Edda hefði brotið gegn ákvæðum áðurnefndra laga en þar sem fyrirtækið hafði brugðist við og gert fullnægjandi úrbætur á upplýsingagjöf sinni taldi Neytendastofa ekki tilefni til frekari aðgerða.
Neytendur Bókaútgáfa Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Kostnaður við tónleika útskýri hátt miðaverð Neytendur Auglýstu tilboð of títt og fá milljón í sekt Neytendur Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira