Bílar

Tesla Cybertruck á Íslandi

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Tesla Cybertruck togaður áfram af Land Rover á íslenskum jökli.
Tesla Cybertruck togaður áfram af Land Rover á íslenskum jökli. Twitter

Það sást til Cybertruck, óútkomins pallbíls frá Tesla, á Langjökli í gær. Á myndbandi frá jöklinum virðist sem verið sé að taka upp auglýsingu fyrir bílinn sem á að koma út á seinni hluta ársins.

Cybertruck var frumsýndur í desember árið 2019 og vakti strax gríðarmikla athygli. Áhugasamir gátu strax forpantað sér eintak fyrir hundrað Bandaríkjadali. Að sögn Musk voru forp­ant­an­irn­ar orðnar um 250.000 tals­ins á fyrstu vikunni.

Frá því að bíllinn var frumsýndur hefur margt breyst, verð bílsins hækkað mikið frá því sem var upprunalega talað um og hefur útgáfu hans verið seinkað ítrekað.

Nú virðist þó vera farið að sjá fyrir endann á þeirri frestunarsögu ef marka má nýjustu fréttir. Bandarískir miðlar segja framleiðslu á bílnum þegar farna af stað í Texas. Þá hefur sést til stórra flutningabíla ferja Cybertruck-eintök yfir Bandaríkin. Sömuleiðis hafa prótótýpur af bílnum dúkkað upp víða um heim.

Í gær sást til Teslutrukks á íslenskum jökli, sem virðist vera Langjökull. Á Twitter birtist myndband þar sem má sjá Cybertruck keyra eftir jöklinum með svartan Land Rover Discovery á undan sér. Talið er að um sé að ræða auglýsingu fyrir pallbílinn óútkomna.

Á Facebook-síðunni Cybertruck á Íslandi voru einnig birtir myndir af Cybertruck. Af myndinni er greinilegt að um Ísland er að ræða út frá hvítum sendiferðabíl sem er merktur Keyrsla.is. Sennilega er um sama eintak að ræða þar sem einnig má sjá svartan Land Rover á myndinni og kvikmyndatökufólk.

Heldur óskýr mynd af tökustað þar sem sjá má Cybertruck, svartan Land Rover og kvikmyndatökumenn.Facebook

Það er ekki enn búið að greina frá því hvenær Cybertruck kemur út nákvæmlega en Elon Musk, forstjóri Tesla, talaði um að þeim yrði dreift í lok þriðja ársfjórðungs sem myndi þýða í lok september.


Tengdar fréttir

Eintak af Tesla Cybertruck hefur verið smíðað

Tesla hefur smíðað Cybertruck og allar efasemdaraddir þurfa því að draga í land um það að Cybertruck yrði aldrei smíðaður. Myndband af bílnum var birt á Youtube-rás Cybertruck eigendaklúbbsins.

Elon Musk: Tesla Cybertruck hannaður án markaðsrannsókna

Framkvæmdastjóri Tesla, Elon Musk hefur viðurkennt að Cybertruck hafi verið hannaður án rannsókna á óskum og þörfum markaðarins. Hann segir að ef Cybertruck seljist illa þá muni Tesla framleiða hefðbundnari pallbíl í staðinn.

Cybertruck frá Tesla líklega ekki löglegur á götum Evrópu

Það gilda ýmsar reglur um hönnun bíla sem á að selja í Evrópu. Miðað við kynningarútgáfu af Cybertruck frá Tesla er líklegt að hann þyrfti til dæmis að vera með hliðarspegla, að minnsta kosti myndavélaútskot, framljósin þurfa að vera stærri og meiri aðskilnaður á milli þeirra og svo framvegis.

Tesla kynnir pallbíl

Elon Musk, framkvæmdastjóri bandaríksa rafbílaframleiðandas Tesla hefur sagt að pallbíll verði kynntur 21. nóvember næstkomandi. Pallbíllinn hefur fengið vinnuheitið Cybertruck.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×