Samstarf

Burstarnir lentu og jörðin byrjaði að skjálfa

bpro
Wonder Brush burstarnir frá HH Simonsen hafa farið sigurför um heiminn og selst í um sex milljónum eintaka. Nú er kominn á markað Wonder Brush bursti hannaður af íslensku heildsölunni bpro. Mynd/Kári Sverriss
Wonder Brush burstarnir frá HH Simonsen hafa farið sigurför um heiminn og selst í um sex milljónum eintaka. Nú er kominn á markað Wonder Brush bursti hannaður af íslensku heildsölunni bpro. Mynd/Kári Sverriss

Nýi HH Simonsen Wonder Brush hárburstinn, sem er hannaður af íslensku heildsölunni bpro í samstarfi við HH Simonsen, hefur heldur betur slegið í gegn hér á landi undanfarna daga.

Hárburstarnir, sem eru seldir undir merkinu Wonders of Iceland, koma í tveimur útgáfum, annar inniheldur mynd af norðurljósum meðan eldgosið við Fagradalsfjall prýðir hina útgáfuna.

Wonder Brush burstarnir frá HH Simonsen hafa farið sigurför um heiminn og selst í um sex milljónum eintaka. Þeir eru hannaðir til að fara vel með hárið og hársvörðinn en sveigjanlegir SmartFlex pinnar koma í veg fyrir að hárið brotni og endar þess klofni.

Mynd/Thelma Arngríms

„Það hefur alltaf verið draumur hjá mér að framleiða vörur fyrir íslenskan markað í samstarfi við eitthvað af þeim frábæru merkjum sem við bjóðum upp á,“ segir Baldur Rafn Gylfason hárgreiðslumeistari sem rekur heildsöluna bpro ásamt eiginkonu sinni Sigrúnu Bender en þau flytja inn nokkur af flottustu merkjunum í húð- og hárvörum sem fást hér á Íslandi. „Eitt af fyrstu merkjunum sem við kynntum fyrir Íslendingum var danski framleiðandinn HH Simonsen. Fyrirtækið er þekkt um allan heim fyrir hágæða raftæki og hárvörur og hina geysivinsælu og háþróuðu flækjubursta, Wonder Brush, sem Íslendingar bókstaflega elska.“

Mikil vinna var lögð í þróun Wonders of Iceland burstanna en hún hófst áður en Covid skall á. „Það var því mikil gleðistund þegar fyrsta sendingin barst til landsins en svo skemmtilega vildi til að það gerðist tveimur dögum eftir að gosið við Litla-Hrút hófst,“ segir Baldur. Burstarnir eru því skemmtileg viðbót við þá flóru minjagripa sem ferðamenn kaupa hér á landi en ólíkt mörgum þeirra endist burstinn í langan tíma og hefur mikið notagildi. Wonders of Iceland burstarnir henta einnig vel sem tækifærisgjafir fyrir bæði Íslendinga sem og erlenda vini og ferðalanga.

Mikil vinna á bak við nýju burstana

Rekja má upphafið að þróun burstanna til haustsins 2019 en þá fékk heildsalan til liðs við sig Lukku Óðinsdóttur sem starfsnema í markaðsdeild en í dag er Lukka partur af starfsmannateyminu. „Hluti af námi hennar úti í Danmörku var vöruhönnun og fannst okkur því kjörið tækifæri fyrir bæði okkur og hana að nýta það innanhúss. Þannig kviknaði sú hugmynd að hanna og láta framleiða eigin Wonder Brush hárbursta í samstarfi við HH Simonsen.“

Hann segir hugmyndavinnuna hafa farið vel af stað og þau hafi verið mjög spennt fyrir að keyra verkefnið í gang. „En þá skall Covid á heimsbyggðina og eins og svo margt annað í heiminum fór skemmtilega verkefnið aftur ofan í skúffu og við vissum ekkert hvort eða hvenær þetta samstarf hreinlega færi aftur í gang.“

Myndir af norðurljósum og eldgosinu við Fagradalsfjall prýða nýju burstana. Myndir/Thelma Arngríms

En vinir þeirra hjá HH Simonsen voru svo sannarlega ekki búnir að gleyma verkefninu og strax og tækifæri gafst settu þau allt á fullt aftur í nóvember 2022. „Átta mánuðum síðar eru burstarnir komnir til landsins og komnir í dreifingu um land allt. Við erum algjörlega í skýjunum með útkomuna og viðtökurnar og hlökkum bara til að bæta fleiri burstum í línuna. Við erum sem dæmi tilbúin í samstarf við fyrirtæki í ferðaþjónustu ef þau hafa skemmtilegar hugmyndir varðandi myndir á burstana.“

Sem fyrr segir prýða myndir af norðurljósum og eldgosinu við Fagradalsfjall burstana. „Það að taka góða ljósmynd af norðurljósum er ekki á allra færi svo eftir mikla leit af hinni fullkomnu mynd þá varð fyrir valinu ljósmynd úr einkasafni Óðins Eymundssonar sem hann tók af af dansandi norðurljósum rétt fyrir utan Höfn í Hornafirði.“

Mynd/Thelma Arngríms

Það var strax ákveðið að myndin sem ætti að prýða eldgosaburstann þyrfti að vera af því einstaka sjónarspili sem eldgosið við Fagradalsfjall bauð heiminum upp á segir Baldur. „Fyrir valinu varð mynd eftir hinn hæfileikaríka ljósmyndara Andra Jónasson en myndin sýnir vel kraft og fegurð hraungossins.“

Öll grafísk hönnun á burstunum og umbúðum var í höndum Maríu Katrínar Jónsdóttur og um textasmíði sá Ingunn Sigurpálsdóttir.

Baldur segir að Wonder Brush burstarnir ættu að vera til á öllum heimilum enda henti þeir öllum aldurshópum. „Þá skiptir engu máli hvort hárið sé stutt eða sítt, hrokkið eða slétt því burstinn er einstakur fyrir allt hár. Burstinn losar allar flækjur sársaukalaust og hentar mjög vel til að greiða bæði blautt og þurrt hár.“

Á bpro.is getur þú séð allar þær vörur sem bpro býður upp á en þar má einnig finna fullt af fróðleik og góðum ráðum varðandi umhirðu á húð og hári. Hér getur þú skoðað Wonders of Iceland flækjuburstana nánar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×