Þar sem Klara tók fyrir að rannsaka í hvaða tilgangi fólk notar TikTok.
Að sögn Klöru er rannsóknin sú fyrsta sinnar tegundar á heimsvísu. Því þar er sérstaklega rýnt í það hverju fólk er að leitast eftir þegar það notar TikTok.
„Það sem kom mér mest á óvart er í rauninni hversu eldri hóparnir eru í raun stórir á TikTok því notendahópurinn er langt frá því að vera einungis 15 ára krakkar að búa til einhver myndbönd eða fyndin myndbönd,“ segir Klara og bætir við:
Það merkilega er að á TikTok er líka mjög stór hópur sem er að nota þennan samfélagsmiðil í fræðsluskyni, ekki aðeins sér til skemmtunar.
Sjálf spái ég því að TikTok geti orðið stærsti fræðslusamfélagsmiðillinn í framtíðinni.“
Ekki bara unglingar og dansvideó
Klara segir að vissulega sé yngsti notendahópurinn fjölmennastur á TikTok en 67% ungmenna á aldrinum 13-17 ára nota TikTok.
„Ég er sjálf korter í fertugt og tilheyri aldamótakynslóðinni en ríflega 21% þess aldurshóps er á TikTok. X-kynslóðin, sem er næsta kynslóð á eftir og fædd tímabilið 1966-1981 er að mælast um 19% notenda sem er líka nokkuð fjölmennur hópur,“ segir Klara.
Hún segir þó eðlilegt að mörgu leyti að fólk telji aðeins unglinga vera að nota TikTok.
„Það er vegna þess að þau eru dugleg að búa til myndbönd og efni til að birta. Á meðan eldri hóparnir eru að horfa á og fylgjast með, en birta lítið sem ekkert eða kommenta,“ segir Klara.
„Það sem er hins vegar svo áhugavert er að sjá hversu mikið fólk er að leita sér af fræðsluefni. Margir nota TikTok til að finna uppskriftir, fá meðmæli með bókum og ýmislegt annað efni. Þá sýndu niðurstöður að TikTok hefur mikil áhrif á kauphegðun notenda.“
Hvernig þá?
Notendur TikTok eru mjög líklegir til að kaupa vöru eða þjónustu ef fólk upplifir efni því tengt sem jákvæða upplifun á TikTok. Það sama gildir um neikvæða upplifun. Þá er fólk líklegt til að kaupa ekki vöruna eða þjónustuna og þessi tengsl á milli efnis og kauphegðunar virðist vera meiri og sterkari hjá notendum TikTok í samanburði við aðra samfélagsmiðla.“
Klara segir þó alla notendur TikTok eiga það sameiginlegt að vera að nota samfélagsmiðilinn í skemmtanaskyni.
„En þriðjungur aðspurðra segist nota miðilinn í fræðsluskyni.“
Þá segir Klara niðurstöður sýna að konur eru fjölmennari hópar en karlar og kynsegin notendur.

Húsasmiðjan, Krónan og Domino‘s oftast nefnd
Eitt af því sem Klara rannsakaði sérstaklega var sýnileiki íslenskra fyrirtækja á TikTok.
„Aðeins 123 fyrirtæki eða vörumerki voru nefnd sem er afar lítið miðað við heildina. Þau fyrirtæki sem oftast voru nefnd voru Húsasmiðjan, Domino‘s og Krónan.“
Í samanburði við aðra samfélagsmiðla er áhugavert að velta fyrir sér hvernig TikTok er að skapa sér öðruvísi sess meðal notenda í samanburði við aðra samfélagsmiðla.
„Við notum Facebook sérstaklega sem samskiptamiðil og þá Messenger mest eða til að fylgjast með hópum sem við erum í. Almennt hefur Facebook hins vegar verið að þróast meira í að vera tilkynningamiðill, á meðan Messenger er samskiptaleiðin,“ segir Klara.
Hún segir Instagram og Snapchat ekki heldur vera samfélagsmiðla sem fólk er að nota í fræðsluskyni, til viðbótar við skemmtanagildið. Að þessu leytinu til virðist TikTok því vera að skapa sér sérstöðu.
„Það væri einna helst YouTube sem kæmist nálægt því að hafa þetta fræðslugildi fyrir notendur.“
Í ljósi niðurstaða, hvaða ráð myndir þú gefa fyrirtækjum sem vilja skoða TikTok sem auglýsingamiðil?
„Ég sé mikil tækifæri í TikTok sem fræðslumiðil. Þar sem efni er kannski að sýna vöru eða þjónustu en með nýrri nálgun. Ég nefni sem dæmi vöru þar sem notendum er sýnt svolítið á bakvið tjöldin hvernig hún verður til, eða hreinlega vidjó af því þegar hún er keyrð út og svo framvegis. Eitthvað sem getur verið í senn fræðsla en líka skemmtilegt efni,“ segir Klara.
Því þarna er notendahópur sem er ekki aðeins að skoða efni til að sjá eitthvað fyndið.
Misskilningurinn liggur síðan líka í því að auglýsendur telji aðeins unglinga og ungt fólk vera að nota TikTok.
Eldri notendur eru einfaldlega frekar ósýnilegir þarna, en eru augljóslega að fylgjast með.“
Ert þú að nýta þér TikTok sem auglýsingamiðil?
„Ég er að undirbúa það en var í rauninni að bíða svolítið eftir niðurstöðunum sjálf. Markmiðið er að nálgunin á TikTok verði þá í samræmi við það sem niðurstöður rannsóknarinnar sýna.“