Viðskipti erlent

Jólagjöf Norðmanna sögð stór gaslind í Barentshafi

Kristján Már Unnarsson skrifar
Borpallurinn Transocean Enabler. Gaslindin í Barentshafi er sögð stærsti fundurinn á norska landgrunninu í ár.
Borpallurinn Transocean Enabler. Gaslindin í Barentshafi er sögð stærsti fundurinn á norska landgrunninu í ár. Transocean

Norska olíufélagið Vår Energi, sem er að meirihluta í eigu hins ítalska Eni, tilkynnti á Þorláksmessu um stóran gasfund á svokölluðu Lupa-svæði nærri Golíat-olíusvæðinu í Barentshafi. Frumathugun bendir til að stærð gaslindarinnar jafngildi 57 til 132 milljónum tunna af vinnanlegri olíu.

„Þetta er stærsti fundurinn á norska landgrunninu þetta árið og kemur eins og jólagjöf,“ sagði leitarstjóri Vår Energi, Alessandro Barberis, í yfirlýsingu.

Það var áhöfn borpallsins Transocean Enabler sem boraði niður á gaslindina en þar er um 400 metra dýpi niður á hafsbotn. Vår Energy á 50% hlut í leyfinu en Aker BP á hinn helminginn. Leyfinu var úthlutað í febrúar 2021.

Vinnslupallurinn Golíat þegar hann var dreginn á nyrsta olíusvæði Noregs, sem er í Barentshafi norðan heimskautsbaugs.

Norska olíustofnunin sagði í yfirlýsingu að sérleyfishafar myndu kanna þann möguleika að tengja gaslindina við þá innviði sem þegar væru til staðar á Golíat-vinnslusvæðinu, sem er um 85 kílómetra norðvestur af Hammerfest. Lupa-svæðið er svo 25 kílómetrum norðaustan Golíats.

Í forsendum fjárlagafrumvarps norsku ríkisstjórnarinnar í haust var boðað að olíuframleiðsla Noregs myndi aukast um 15% á árinu 2023. Ástæðan var einkum sögð aukin framleiðsla á Johan Sverdrup-svæðinu, nýjustu gullkvörn Norðmanna.

Og Norðmenn eru hvergi hættir að leita. Í síðasta olíuleitarútboði norskra stjórnvalda í september sóttu 26 olíufélög um ný sérleyfi en þau voru boðin út í Barentshafi.

Hér má sjá norska ráðamenn fagna opnun Johan Sverdrup-svæðisins fyrir þremur árum:


Tengdar fréttir

Norsk stjórnvöld gefa út 53 ný olíuleitarleyfi

Norsk stjórnvöld hafa úthlutað 53 nýjum sérleyfum til leitar og vinnslu olíu á landgrunni Noregs. Á sama tíma er skýrt frá því að aldrei í sögunni hafi tekjur Norðmanna af olíu- og gasvinnslu verið eins miklar og á nýliðnu ári.

Fimmtíu ár frá upphafi norska olíuævintýrisins

Það var á Þorláksmessu árið 1969 sem ráðamenn Phillips-olíufélagsins hringdu í norska iðnaðarráðuneytið og tilkynntu um að þeir hefðu fundið olíulind á Ekofisk-svæðinu í Norðursjó.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×