Atvinnulíf

Hversu vel eiga þessi atriði við um yfirmanninn þinn?

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Sterk tilfinningagreind er sögð eitt þeirra atriða sem mun sífellt skipta meira máli hjá starfsmönnum framtíðarinnar og margir vilja meina að yngra fólki sé yfir höfuð tamara að ræða tilfinningar sínar og líðan. En hvernig stendur yfirmaðurinn þinn sig í þessu?  
Sterk tilfinningagreind er sögð eitt þeirra atriða sem mun sífellt skipta meira máli hjá starfsmönnum framtíðarinnar og margir vilja meina að yngra fólki sé yfir höfuð tamara að ræða tilfinningar sínar og líðan. En hvernig stendur yfirmaðurinn þinn sig í þessu?   Vísir/Getty

Það er talað um að tilfinningagreind sé eitt af því sem mun gera starfsfólk eftirsóttara til framtíðar, enda ekki nema von því í allri þeirri tæknibyltingu sem nú er, vitum við þó að eitt mun tæknin seint ráða við: Að skilja hvernig tilfinningaflóran okkar er eða líðan.

Sérfræðingar segja yngri kynslóðir reyndar betri í tilfinningagreind en margt fólk sem eldra er. Sem skýrist einfaldlega af því að ungt fólk er vanari því og finnst eðlilegt að ræða tilfinningar sínar og líðan.

Margir yfirmenn eru hins vegar af allt annarri kynslóð og í nýlegri grein á Fastcompany eru nefnd sjö atriði sem við getum mátað við okkar yfirmenn, til að átta okkur á því hversu tilfinningagreindur okkar yfirmaður telst vera.

Því jú, tilfinningagreind er að sjálfsögðu eitthvað sem telst sterkur eiginleiki hjá leiðtogum.

Þessi sjö atriði eru:

1. Einlægnin er augljós

Einlægni og heiðarleiki einkennir fast þeirra og framkomu og þessi yfirmaður hefur mjög mikla trú á því sem við erum að gera í vinnunni.

2. Er tilbúinn til að takast á við erfið mál

Hér erum við að tala um yfirmanninn sem tekst á við erfiðu málin, þótt það þýði að hann/hún þarf að fara úr sínum eigin þægindaramma.

3. Heldur ró sinni

Þetta er yfirmaðurinn sem nær að halda ró sinni sama hvað gengur á eða kemur upp. Þessi eiginleiki er sá sem oftast hjálpar starfshópum að halda betur einbeitingu og ró, þar til lausn finnst eða krísa er yfirstaðin.

4. Hreinskiptin samskipti

Þessi yfirmaður kemur til dyranna eins og hann er klæddur. Hreinskiptin í tali og skýr og starfsfólk þarf ekkert að efast um hver markmiðin eru.

5. Samskipti á mannlegum nótum

Þetta er yfirmaðurinn sem fólk þorir að tjá sig við, einfaldlega vegna þess að maður uppsker því sem maður sáir. Samskipti eru ekki aðeins einlæg og skýr, heldur einnig á mannlegu nótunum og trúverðug.

6. Þrautseigja

Þá er það þrautseigjan og staðfestan sem einkennir viðkomandi. Sem gefst ekki upp þótt á móti blási eldur brettir upp ermarnar og hvetur sitt fólk til dáða.

7. Tekur ekki þátt í neikvæðu tali né nöldri

Það er misjafnt dagsformið á okkur öllum og jákvæðasta fólk getur kveinkað sér eða kvartað á einstaka dögum. Þessi yfirmaður lætur neikvæðni hins vegar eins og um eyru þjóta og blæs frekar byr í sitt fólk.


Tengdar fréttir

Að æfa þakklæti í vinnunni getur margborgað sig

Rannsóknir til fjölda ára hafa sýnt mjög sterkt samband á milli þess að vera þakklát fyrir það sem við eigum og höfum og hamingju. Skiptir þá engu máli hvar eða hver við erum. Að lifa í þakklæti hefur hreinlega mjög jákvæð áhrif á það hvernig okkur líður.

Ellefu vísbendingar um að jafnvægið sé í klúðri

Í hinum fullkomna heimi væri jafnvægið á milli heimilis og vinnu ekkert mál. Þótt starfsframinn sé á fullri ferð samhliða því að reka heimili, ala upp börn og stunda jafnvel áhugamálin.

Kulnun eftir Covid áberandi hjá 18-24 ára og sölu- og markaðsfólki

„Það sem gerir niðurstöðurnar fyrir 18 til 24 ára sláandi er hversu mikil breyting er á milli ára. Kulnun hjá þessum aldurshópi mælist 6 til 7% fyrir og í Covid en eykst hratt og mælist 17% eftir Covid. Sú starfsgrein þar sem kulnun mælist líka mjög há er til dæmis hjá sölu- og markaðsfólki,“ segir Trausti Heiðar Haraldsson framkvæmdastjóri Prósent.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×