Jól

Hrekkj­óttir álfar valda usla á ís­lenskum heimilum

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Viðbúið er að margir vakni með nýjan heimilismeðlim í fyrramálið. Það fylgir ekki sögunni hvort kötturinn á myndinni hafi verið ánægður með uppátæki þess rauðklædda.
Viðbúið er að margir vakni með nýjan heimilismeðlim í fyrramálið. Það fylgir ekki sögunni hvort kötturinn á myndinni hafi verið ánægður með uppátæki þess rauðklædda. Facebook

Sífellt fleiri íslensk heimili taka að sér álfa í aðdraganda jóla. Þetta eru engir venjulegir álfar heldur sérstakir aðstoðarmenn jólasveinsins, oft nefndir hrekkjaálfar. Þeir eru einnig þekktir sem „álfar á hillu“ eða „elf on a shelf“.

Álfarnir eru gæddir töframætti en eru algjörir prakkarar. Þeir vakna til lífsins á nóttunni og framkvæma ýmis prakkarastrik. Þeir eru mjög hugmyndaríkir og þessum allra frumlegustu tekst oft að koma sér í hinar ótrúlegustu aðstæður.

Í Facebook hópnum „Elf on the shelf Ísland" má finna fjölbreyttar hugmyndir að álfa-prakkarastrikum.Facebook

Á facebook hópnum „Elf on the shelf Íslandi“ má sjá myndir af uppátækjum álfanna og fá alls konar hugmyndir.

Mjög misjafnt er hvenær álfurinn kemur í heimsókn. Algengast er að hann komi aðfaranótt 1. desember og sé til 12. desember, eða þar til fyrsti jólasveinninn mætir til byggða. Þeir allra metnaðarfyllstu eru þó alveg fram til 24.desember.

Misjafnar reglur

Hefð er fyrir því að börn lesi bók um álfinn eða horfi á myndina og kynnast honum þannig, skrifi síðan bréf og bjóða hann velkominn á heimilið. Þegar hann mætir er honum svo gefið nafn. 

Epladjús eða álfapiss? Þessir álfar eru nú meiri prakkararnirFacebook

Það má alls ekki snerta álfinn því þá missir hann töfrana.

Sumir vilja meina að hlutverk álfanna sé að fylgjast með börnunum fyrir jólasveinana, hvort þau séu nú ekki örugglega stillt og prúð. En í þessu eins og flestu öðru eru engar reglur og hver hefur þennan skemmtilega sið eftir sínu höfði. 

Smá vesen.Facebook
Þessi álfur skipti kreminu í oreo kexi út fyrir tannkrem.Facebook

Það er ljóst að það er vissara að hafa varann á ef þú ætlar að bjóða hrekkjaálf velkominn á heimilið í desember. 








×