Jól

Leita að jólagjöf ársins

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Getty

RSV (Rannsóknasetur Verslunarinnar) leitar eftir tillögum að jólagjöf ársins. Jogginggalli var valin gjöf ársins í fyrra. Þá verður fróðlegt að sjá hvort neytendur og verslanaeigendur séu sammála viðskiptavinum Elko sem völdu loftsteikingapott sem vinsælustu gjöfina í ár. 

Miðað er við að jólagjöf ársins sé vara sem selst vel, sé vinsæl meðal neytenda og falli vel að tíðarandanum. Rannsóknarsetur Verslunarinnar aflar nú upplýsinga frá neytendum og verslunum um vinsælar sérvörur í aðdraganda jóla. Óskað er eftir að verslanaeigendur sendi upplýsingar um þrjár mest seldu vörur í verslun þeirra á tímabilinu 1. október til 20. nóvember. 

Jólagjöf ársins í fyrra var jogginggalliGetty

Valdir neytendafrömuðir sem skipa rýnihóp RSV koma svo saman og velja jólagjöf ársins út frá gefnum upplýsingum og forsendum.

Elko þegar búið að velja jólagjöf ársins

Raftækjaverslunin Elko er þegar búin að velja jólagjöf ársins. Það kemur kannski ekki mörgum á óvart að loftsteikingarpottur (e.air fryer) er jólagjöf ársins samkvæmt könnun meðal viðskiptavina verslunarinnar, en tækið hefur notið mikilla vinsælda undanfarna mánuði. Í öðru sæti í könnun verslunarinnar var snjallsími og PS5 leikjatölva í því þriðja.

Air Fryer loftsteikingarpottur er jólagjöf ársins samkvæmt ElkoElko



Jólagjafir ársins síðustu ár samkvæmt RSV eru:

2006 Ávaxta- og grænmetispressa

2007 GPS staðsetningatæki

2008 Íslensk hönnun

2009 Jákvæð upplifun

2010 Íslensk lopapeysa

2011 Spjaldtölva

2012 Íslensk tónlist

2013 Lífstílsbók

2014 Nytjalist

2015 Þráðlausir hátalarar eða heyrnartól


Tengdar fréttir

Jogginggallinn jólagjöf ársins

Jogginggallinn er jólagjöf ársins 2021 að mati Rannsóknaseturs verslunarinnar (RSV). Miðað var við að gjöfin væri vara sem selst vel, væri vinsæl meðal neytenda og falli vel að tíðarandanum. 








×