Samstarf

Bílaskrá.is - hjálpar þér að finna rétta bílinn

Bílaskrá.is
Dimitri Plugari eigandi Bílaskrá.is
Dimitri Plugari eigandi Bílaskrá.is

Verðlistar allra bílaumboða á einum stað.

Þegar kemur að leit að nýjum bílum hefur hingað til þurft að fara á vef hverrar bíltegundar eða umboðs fyrir sig, hlaða niður bækling eða verðskrá hvers og eins og gera samanburð. Ef verið er að bera saman nokkrar tegundir bíla hefur þetta oft tekið langan tíma. Bílaskrá.is leysir þetta vandamál.

Einföldum bílaleit!

Það eru yfir 270 gerðir nýrra bíla til á markaði og yfir 1120 mismunandi útfærslur af þeim í boði. Á bílaskrá.is er hægt að leita eftir framleiðanda, gerð, stærð, verði, orkugjafa, aukabúnaði og bera saman við alla nýja bíla sem uppfylla leitarskilyrðin. Þar til núna hefur þetta ekki verið hægt með bíla “beint úr kassanum”. Vinsælustu leitarskilyrðin í dag eru samanburður nýrra rafbíla, drægni þeirra og verð.

Spörum tíma og pening með verðvakt

Fyrir utan tímasparnað með einfaldara leitarferli getur verðvaktin okkar gert kaupendum kleift að spara háar fjárhæðir við kaup á nýjum bíl. Þú stillir verðvaktina, vistar hana og við sendum þér áminningu ef verð lækkar. Dæmi er um að kaupandi hafi sparað 600.000 krónur við bílakaupin sín með þessari einföldu aðferð. Á síðasta ári skilaði verðvaktin okkar sparnaði fyrir bílkaupendur upp á samtals 230 milljónir króna.

Meira á einum stað

Við erum í samstarfi við Bílablogg.is varðandi aukaefni og viðbótarupplýsingar um bíla. Umfjöllun þeirra og myndbönd við reynsluakstur eru tengd við niðurstöður leitar hjá okkur. Þetta gefur kaupendum viðbótarupplýsingar um hentugleika bílana, plássnýtingu þeirra, eyðslu, eiginleika í akstri og margt fleira. Reynsla okkar sýnir að þetta aðstoðar við ákvörðunartöku og auðveldar hana. Þess má geta að allt efnið er á íslensku.

Ekki bara nýir bílar, líka notaðir! - nútíma bílasöluvefur

Það hafa margir beðið eftir nýjum bílasöluvef fyrir notaða bíla. Við tókum það verkefni að okkur og bjuggum til hraðvirkan vef með notendavænu viðmóti sem býður upp á leitir eftir nokkrum bíltegundum í einu. Fyrst við vorum byrjuð ákváðum við að að búa líka til fyrsta bílasöluappið á Íslandi en það má nálgast fyrir bæði Apple og Android snjalltæki.

Ókeypis fyrir alla

Við þróuðum vefinn til hagræðis fyrir hinn almenna bílakaupanda en einnig fyrir allar bílasölur landsins. Aðgangur að vefnum okkar er ókeypis fyrir bæði kaupendur og bílasölur! Ef þú ert með bíl á söluskrá hjá bílasölu sem hefur ekki tengst okkur, þá getur þú fyllt út formið hér og við göngum í málið. Við bjóðum alla velkomna til okkar og stöndum fast við einkunnarorðin okkar: Bílinn selst betur á Bílaskrá!





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×