Veiðimenn eru svo sem ekki allir sammála því hvaða flugur eru bestar hverju sinni eftir ám og árstíma en það eru þó nokkrar sem flestir hljóta að vera sammála um að eru einhverra hluta vegna veiðnari þegar líður á sumarið og haustið tekur við. Ein af þeim sem oftast er nefnd er Undertaker en þrátt fyrir að flugan sé ansi dökk er pínulítið grænt og rautt aftast á búknum sem gerir kannski gæfumuninn. Hún er afskaplega veiðin í ánum á vesturlandi síðsumars og á haustin.

Thunder and Lightning er svo alveg í hina áttina við Undertaker. Rústrauð flugan hefur reynst mörgum veiðimanninum afskaplega vel á haustin og þegar það er smá grámi á vatninu í ánum. Þriðja flugan sem er vert að nefna er Black Ghost. Þessi fluga er upprunalega hnýtt sem straumfluga en hún hefur líka verið hnýtt sem hefðbundin fluga og virðist veiða langsamlega best í hausthúminu. Það eru fleiri flugur sem vert er að nefna en þessar þrjár komu oftast fram þegar tekin var lausleg könnun hjá nokkrum vel völdum veiðimönnum.
