Samstarf

KKÍ og Ölgerðin endurnýja samstarf

KKÍ
Jóhannes Páll Sigurðarson vörumerkjastjóri óáfengra drykkja hjá Ölgerðinni og Hannes S. Jónsson formaður KKÍ.
Jóhannes Páll Sigurðarson vörumerkjastjóri óáfengra drykkja hjá Ölgerðinni og Hannes S. Jónsson formaður KKÍ.

KKÍ og Ölgerðin hafa endurnýjað sitt góða samstarf með undirritun á nýjum samningi en Ölgerðin og vörumerkið Kristall hefur verið góður samstarfsaðili KKÍ undanfarin ár.

Það voru þeir Hannes S. Jónsson formaður KKÍ og Jóhannes Páll Sigurðarson vörumerkjastjóri óáfengra drykkja hjá Ölgerðinni sem skrifuðu undir samninginn í Tómasarstofu í húsakynnum Ölgerðarinnar. Nýr samningur gildir út árið 2024.

„Ölgerðin hefur unnið vel með okkur í KKÍ og körfuboltafjölskyldunni undanfarin ár og það er mjög ánægjulegt þegar aðilar endurnýja sitt samstarf og efla það enn frekar eins og við gerum núna sem er merki um að báðir aðilar eru ánægðir. Það eru einnig spennandi tímar framundan hjá Ölgerðinni sem er gaman að fá taka þátt í með þeim.“ sagði Hannes formaður KKÍ og Jóhannes Páll Ölgerðinni bætti við „Við erum gríðarlega ánægð að bæði endurnýja okkar góða samstarf við KKÍ og að gefa í. Það eru mikil sóknartækifæri í körfuknattleiksíþróttinni og samstarfi Kristals og KKÍ.“

Samstarf Ölgerðarinnar og KKÍ hefur verið afar farsælt undanfarin ár og Ölgerðin komið margvíslegum verkefnum KKÍ og landsliðum Íslands sem nú stefna í hin ýmsu verkefni en framundan eru um 100 landsleikir á vegum KKÍ frá lok júní og fram í lok ágúst. Ísland leikur við Holland í fyrir umferð undakeppni HM á föstudaginn í Ólafssal á Ásvöllumþar sem búast má við fullu húsi.

Í morgun fór svo rúmlega 70 manna hópur frá KKÍ til Finnlands þar sem NM U16 og U18 hefst í Kisakallio. Það er því nóg framundan og verðmætt fyrirKKÍ að hafa jafn öflugan samstarfsaðila og Ölgerðina með í KKÍ fjölskyldunni ásamt þeim fjölmörgu öðru góðu samstarfsaðilum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×