Atvinnulíf

Skemmti­legt hvernig sex­tugs­aldurinn ein­kennist af virkni, lífs­gleði og rómantík

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Í betra formi nú en þegar hann var þrítugur enda segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, að það hafi komið honum skemmtilega á óvart hvernig það að verða 50+ einkennist af virkni, lífsgleði og rómantík. Ekki aðeins er hann orðinn duglegri að hreyfa sig, heldur líka farinn að ferðast um á hjólhýsi! Ólafur segir líka ótrúlega skemmtilegt að horfa á börnin sín breytast í flott fullorðið fólk en Ólafur á þrjú börn og tvö bónusbörn.
Í betra formi nú en þegar hann var þrítugur enda segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, að það hafi komið honum skemmtilega á óvart hvernig það að verða 50+ einkennist af virkni, lífsgleði og rómantík. Ekki aðeins er hann orðinn duglegri að hreyfa sig, heldur líka farinn að ferðast um á hjólhýsi! Ólafur segir líka ótrúlega skemmtilegt að horfa á börnin sín breytast í flott fullorðið fólk en Ólafur á þrjú börn og tvö bónusbörn. Vísir/Vilhelm

Það er af gefnu tilefni sem Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda heldur vel utan um dagbókina sína en almennt segir Ólafur um lífið að mjög margt hafi komið honum skemmtilega á óvart við að verða 50+.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Ég er B-maður sem hefur með aldrinum þróast í A-týpu og vakna yfirleitt fyrir klukkan sjö.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Flestir dagar byrja á því að ég fæ mér gott kaffi, spjalla við kærustuna og renni yfir fréttir dagsins í símanum.

Næsta verk er að hreyfa sig. Útihlaup eru uppáhaldshreyfingin mín. Ég bý innan við kílómetra bæði frá Elliðaárdalnum og Fossvogsdalnum og tek morgunhlaup í öðrum hvorum dalnum þrisvar eða fjórum sinnum í viku.

Suma daga skelli ég mér í Laugardalslaugina og einstaka sinnum reyni ég að ögra eigin stirðleika á jógadýnunni. Þá er maður klár í vinnudaginn.“

Hvað hefur komið þér skemmtilega á óvart við að vera orðinn 50+?

Það kemur skemmtilega á óvart að sextugsaldurinn, sem einhvern tímann leit út sem fordyri elliheimilisins, einkennist af virkni, lífsgleði og rómantík. 

Gamli antisportistinn sá alls ekki fyrir sér að vera í daglegri hreyfingu kominn yfir fimmtugt og í mun betra formi en þegar hann var þrítugur.

Mér datt heldur ekki í hug að ég yrði orðinn hjólhýsapakk og á ferð og flugi um landið allt sumarið með lítinn ferðavagn.

Svo er ótrúlega skemmtilegt að horfa á börnin sín vaxa úr grasi og breytast í flott fullorðið fólk. Ég á þrjú og tvö bónusbörn til viðbótar þannig að það eru endalaus ánægjuefni.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Verkefnin hjá Félagi atvinnurekenda eru jafngríðarlega fjölbreytt og félagsmennirnir, þannig að það er erfitt að nefna eitt ákveðið.

Og þó; ég er nýbúinn með verkefni sem mér fannst mjög skemmtilegt. Við settum í loftið hlaðvarpsþátt sem er kallaður Kaffikrókurinn og er aðgengilegur á YouTube og Spotify. 

Þar tók ég viðtöl við oddvita allra átta framboðanna sem fengu menn kjörna í borgarstjórn Reykjavíkur um stefnu þeirra og hagsmunamál fyrirtækjanna í borginni. 

Þetta gerðum við af því að okkur fannst vanta fókus á atvinnulífið og málefni fyrirtækjanna í kosningabaráttunni, þrátt fyrir að atvinnurekendur séu kjósendahópur upp á meira en tuttugu þúsund manns.

Niðurstaðan varð að mér fannst, mjög gagnleg og upplýsandi viðtöl.

Svo er líka skemmtilegt að tækniþróunin geri gömlum blaðamanni, sem aldrei vann í útvarpi eða sjónvarpi, kleift að vera með sinn eigin útvarps- og sjónvarpsþátt á netinu.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Lykilatriði númer eitt er að halda vel utan um dagbókina sína. Ég var einu sinni mjög lélegur í því og það endaði oft með alls konar óheppilegum uppákomum, eins og þegar 30 norskir blaðamenn biðu eftir aðstoðarritstjóra Morgunblaðsins, sem var í sundi.

Mér hefur farið fram með dagbókina en ég nota ekki mikið af öðrum rafrænum tólum. Verkefnalistinn minn er til dæmis bara uppi á tússtöflu á skrifstofunni.

Í svona starfi eins og ég sinni skiptir miklu máli að átta sig á hvað er á sjóndeildarhringnum, til dæmis í pólitíkinni, og hvernig umræðan í þjóðfélaginu er að þróast þannig að maður hafi áhrif á mál þegar þau eru að mótast en þurfi ekki að bregðast við orðnum hlut.

Við starfsmenn FA tökum þess vegna oft umræður um það við hverju megi búast á næstu vikum, mánuðum og árum. Síðast en ekki síst er mér að lærast að skipuleggja mig þannig að vinnan éti ekki kvöldin og helgarnar, heldur séu sæmilega skýr skil á milli vinnu og fjölskyldulífs.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Eins og ég sagði hef ég verið að umbreytast í A-manneskju og er yfirleitt kominn í bólið með góða bók upp úr klukkan tíu. Best að vera sofnaður fyrir klukkan ellefu, þá vaknar maður ferskur klukkan sjö eftir átta tíma svefn.“


Tengdar fréttir

Besta leiðin til að brjóta niður stereótýpur er að hlægja að þeim

Rúna Magnúsdóttir markaðs- og kynningastjóri Samtaka verslunar- og þjónustu (SVÞ) og leiðtogamarkþjálfi segir stereótýpur eitt af því sem fær hana alltaf til að springa úr hlátri. Enda hafi hún lært að það að hlægja að þeim sé besta leiðin til að brjóta þær niður.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×