Makamál

Annar hver segist hafa reynslu af viðhaldi í ástarsambandi

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Mikil þátttaka var í síðustu könnun Makamála sem snerist um framhjáhald. 
Mikil þátttaka var í síðustu könnun Makamála sem snerist um framhjáhald.  Getty

Mikil þátttaka var í síðust könnun Makamála sem vakti töluverða athygli en tæplega fimmþúsund manns svöruðu könnuninni sem fjallaði um framhjáhald. 

Rétt rúmlega helmingur segist enga reynslu hafa af viðhaldi í sambandi

Framhjáhald getur verið allavega og margs eðlis en einnig er misjafnt hvernig fólk skilgreinir framhjáhald. 

Þegar manneskja í sambandi á í leynilegu ástarsambandi við aðra manneskju kallast sú manneskja viðhald. 

Samkvæmt niðurstöðunum má sjá að stór hluti þeirra sem svöruðu hafa einhverja reynslu af viðhaldi í sambandi, eða samtals 45%. 

8% segja maka hafa átt viðhald en 37% verið viðhald og/eða átt viðhald það eru því aðeins 55% lesenda sem segjast enga reynslu hafa hafa viðhaldi í sambandi.  


Niðurstöður*

Já, hef bæði átt og verið viðhald - 16%

Já, hef átt viðhald - 8%

Já, hef verið viðhald - 13%

Nei, en maki/fyrrverandi maki hefur/á viðhald - 8%

Nei - 55%


Ertu búin(n) að svara nýjustu Spurningu vikunnar?

*Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Allar kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.


Tengdar fréttir

Hefur þú átt eða verið viðhald?

Í kjölfarið umfjöllunar undanfarið um sambandsformið fjölástir hafa vaknað upp miklar umræður á kommentakerfum sem og kaffistofum landsins. Spurningin „Afhverju halda þau ekki bara framhjá?“ er ein þeirra sem oft kemur upp. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×