Innlent

Svona var 195. upp­­­lýsinga­fundurinn vegna Co­vid-19

Vésteinn Örn Pétursson og Hólmfríður Gísladóttir skrifa
Auk þeirra Víðis og Þórólfs verður Selma Barðdal Reynisdóttir á fundinum. Hún er fræðslustjóri í sveitafélagi Skagafjarðar og fulltrúi í vöktunarteymi menntamálaráðuneytisins um skóla- og frístundastarf og sóttvarnaráðstafanir.
Auk þeirra Víðis og Þórólfs verður Selma Barðdal Reynisdóttir á fundinum. Hún er fræðslustjóri í sveitafélagi Skagafjarðar og fulltrúi í vöktunarteymi menntamálaráðuneytisins um skóla- og frístundastarf og sóttvarnaráðstafanir. Vísir/Vilhelm

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis hafa boðað til upplýsingafundar um stöðu Covid-faraldursins hér á landi, klukkan 11 í dag. Fundinum verður streymt beint hér á Vísi og á Stöð 2 Vísi.

Á fundinum fara Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn Almannavarna fara yfir stöðu mála vegna COVID-19 faraldursins.

Á fundinum verður einnig Selma Barðdal Reynisdóttir, fræðslustjóri í sveitafélagi Skagafjarðar. Selma er fulltrúi í vöktunarteymi menntamálaráðuneytisins um skóla- og frístundastarf og sóttvarnaráðstafanir.

Hægt er að sjá fyrri upplýsingafundi almannavarna og landlæknis á sérstakri undirsíðu á Vísi. 

Uppfært: Fundinum er lokið en hér má sjá upptöku af honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×