Rafmögnuð jeppasýning Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 29. september 2021 07:01 Jeep bílar sem verða til sýnis á laugardag. Ísband, umboðsaðili Jeep og RAM á Íslandi blæs til glæsilegrar og rafmagnaðrar jeppasýningar laugardaginn 2. október. Þar verður 4xe Plug-In-Hybrid línan frá Jeep sýnd, Jeep Wrangler Rubicon 4xe, Jeep Compass 4xe og Jeep Reneagde 4xe, jeppar með alvöru fjórhjóladrifi í Plug-In-Hybrid útfærslu.
Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá Ísband. Jeep Wrangler Rubicon 4xe verður sýndur í Launch Edition útgáfu sem er sérlega öflugur og vel útbúinn jeppi sem svo sannarlega hefur slegið í gegn. Með alls 373 hestafla vél og 670 Nm í togi, 100% driflæsingum að framan og að aftan og með aftengjalegri jafnvægisstöng að framan. Mjög vinsælt er að breyta Wrangler Rubicon og býður Breytingarverkstæði ÍSBAND upp á fjölbreytt úrval breytingapakka með 35”, 37” og 40” breytingum. 37” og 40” breyttir Wrangler Rubicon 4xe verða sýndir á sýningunni. Verð á Jeep Wrangler Rubicon er frá: 9.899.000 kr. Jeep Compass 4xe verður sýndur í þremur útfærslum. Í Limited og Trailhawk útfærslum sem nú þegar hafa vakið verðskuldaða athygli íslenskra bílakaupenda og frumsýndur verður Compass S, en hann kemur til landsins síðar á árinu. Glæsileg og sportleg útfærsla, með Panorama glerþaki og á 19” felgum. Um áramótin mun virðisaukaskattur hækka á Plug-In-Hybrid bíla. Jeep Compass 4xe og Jeep Renegade 4xe Plug-In-Hybrid munu hækka um 480.000 kr. þar af leiðandi. Það er því tilvalið að tryggja sér núna alvöru jeppa með alvöru fjórhjóladrifi í forsölu, en áætlað er að bílarnir verði til afhendingar í desember. Verð á Jeep Compass er frá: 6.699.000 kr. og Jeep Renegade kostar 5.750.000 kr. Vinsælu RAM 3500 pallbílarnir verða einnig til sýnis á sýningunni. Líkt og með Jeep þá býður Breytingarverkstæði ÍSBAND upp á breytingapakka fyrir RAM með 37” og 40” breytingum, en 40” breyttur RAM verður til sýnis. Sýningin er opin á milli kl. 12-16 og er í sýningarsal ÍSBAND í Mosfellsbæ, Þverholti 6.
Vistvænir bílar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Fleiri fréttir Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Fær einn af sextíu forsetaframbjóðendum upp í bíl til sín Sjá meira