Velferð stúdenta er á ábyrgð háskólans Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar 24. mars 2021 09:30 Eftir viðburðaríkt ár er mikilvægt að staldra við, anda og setja sér markmið fyrir það sem koma skal. Að þessu sinni miðast ár nemenda líklega ekki við áramót heldur fyrsta samkomubann COVID-19, þann 13. mars 2020. Vegna alls sem á undan hefur gengið er mikilvægt að Stúdentaráð og Háskóli Íslands vinni saman að því að huga að líðan nemenda innan sem utan skóla. Það hefur orðið gríðarleg framför í málefnum andlegrar heilsu á síðustu árum en betur má ef duga skal. Háskólinn ber ekki einungis ábyrgð á menntun nemenda, heldur einnig líðan þeirra á meðan námsvegferð stendur. Þessi ábyrgð snýst ekki einungis um það að útvega nemendum greiðari aðgang að hefðbundinni geðheilbrigðisþjónustu eins og sálfræðingum, að auki er mikilvægt að aðgengi sé tryggt fyrir öll að námi og félagslífi skólans. Jafnframt þarf að gæta þess að vinnuálag sé í samræmi við þann einingafjölda sem nemendur safna í lok áfanga. Þegar talað er um jafnt aðgengi fólks að námi er nauðsynlegt að hugsa um fjölbreytileika samfélagsins og þar af leiðandi þeirra sem stunda nám innan Háskóla Íslands. Öll viljum við að tekið sé tillit til þeirra málefna sem snerta okkur sjálf, hvort sem það er fjölbreytileiki í námsefni sem við getum speglað okkur í, eða að við getum hlustað á upptöku af tíma vegna veikinda eða vinnu og gert okkar besta. Að við getum öll mætt í tíma, í vísó eða á Októberfest og skemmt okkur með samnemendum, án þess að þurfa að hafa áhyggjur af aðgenginu á svæðinu. Háskólinn getur gert betur, og þarf að gera betur. Jafnvægi skóla og lífs utan hans þarf að skoða gaumgæfilega í kjölfar COVID-19 og þeirra áskorana sem hafa orðið á vegi stúdenta og þjóðarinnar allrar. Ef Háskóli Íslands vonast til þess að útskrifa sem flest fræðafólk í góðu jafnvægi, tilbúið fyrir áskoranirnar sem vinnumarkaðurinn og lífið býður upp á þarf hann að byrja að forgangsraða líðan nemenda. Betra er seint en aldrei. Höfundur er nemi í stjórnmálafræði og skipar 1. sæti á lista Vöku á félagsvísindasviði fyrir stúdentaráðskosningar Háskóla Íslands 2021. Student welfare is the university’s responsibility After an eventful year it is important to pause for a moment, breathe and create goals for what lies beyond. At this time, many probably feel the year didn’t change on New Years Eve, but when the first ban on gatherings due to COVID-19 occurred on the 13th of March 2020. Due to everything that has been going on it is important that the Student Council and the University of Iceland work together to think about how the students are feeling, both within the walls of the school and outside of it. There have been extraordinary improvements regarding matters of mental health in the last few years but we can always do better. The university is not only responsible for the education of students but also for their mental well-being during their years at school. This responsibility does not only revolve around getting students easier access to traditional mental health care services like psychologists. It is also important that access is secured for all of those that are studying and participating in social activities at the school. At the same time it is important to make sure that the workload of classes is in accordance to the amount of credits students get when finishing the course. When you talk about equal access for studying it is important to think about the diversity of our society and those that study at the University of Iceland. We all want consideration for the issues that directly apply to us, whether it is diversity in the curriculum, or that we can listen to a recording of our class due to sickness or work and do our best. That we can all show up for class, to science trips or to Oktoberfest and have a fun time with our fellow students without worrying about the access at the area. The university can and needs to do better. The balance between school and our life outside school needs to be examined carefully in wake of COVID-19 and the challenges that students and the nation have faced. If the University of Iceland hopes to graduate as many educated people in good balance as possible, ready for the challenges that the workplace and life offers, it needs to step up to the plate and prioritise the wellbeing of students. Better late than never. The authoris studying Political Science and is in 1st place on Vaka’s list on the School of Social Sciences for the student council elections at the University of Iceland 2021. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hagsmunir stúdenta Mest lesið Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Hvað gerist ef meirihlutinn segir „já“ í sumar? Jón Pétur Zimsen Skoðun Halldór 14.03.2026 Agnar Már Másson Halldór Er skólafólk ómarktækt? Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ábyrgðarleysi í fiskeldi undir formerkjum uppbyggingar Björn Gunnar Jónsson Skoðun Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun Enn og aftur, Alma Möller Arnar Helgi Lárusson Skoðun Handjárn eða heilbrigð tengsl Sigurður Árni Reynisson Skoðun Heppni hjúkrunarfræðingurinn sem á að græða helling Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Það er gott að hafa „góðar tengingar“ í Kópavogi. 2 af 4. Theodóra S. Þorsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er óheppni hjúkrunarfræðingurinn raunverulega óheppinn? Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Það er gott að hafa „góðar tengingar“ í Kópavogi. 2 af 4. Theodóra S. Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Handjárn eða heilbrigð tengsl Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Er skólafólk ómarktækt? Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Ábyrgðarleysi í fiskeldi undir formerkjum uppbyggingar Björn Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvað gerist ef meirihlutinn segir „já“ í sumar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Kerfið er brotið af því þú þolir það þannig Anna Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Til leiðtoga í stjórnmálum og stjórnsýslu: Málefni barna og ungmenna Þóra Björg Jónsdóttir skrifar Skoðun Skerðing í Kópavogi Stefán Vilbergsson skrifar Skoðun Sigurvíma Trump Hannes Örn Blandon skrifar Skoðun Hesturinn í umferðinni Ólafur Gestur Arnalds skrifar Skoðun Hvað er eldsneytið þitt? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Er ESB „hnignunarbandalag“? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Heppni hjúkrunarfræðingurinn sem á að græða helling Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Davíð kvaddur Ámundi Loftsson skrifar Skoðun Hvað gerðist með „sérlausn“ Írlands? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Kennsla í skugga skráninga Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar Skoðun Hvað hefur oddviti Framsóknar í Kópavogi að fela? Theodóra Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Loftslagspólitík sem gagnast bændum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Þorgerður Katrín treystir ekki þjóðinni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Kaþólska kirkjan og uppbygging íslensks heilbrigðiskerfis Árni Már Jensson skrifar Skoðun Kópavogsleiðin er merkilegt fyrirbæri Tinna Gunnur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ófrjósemi og andleg líðan Ástdís Pálsdóttir Bang skrifar Skoðun Til hamingju, Kópavogsbúar – þið eigið von á góðu! Elísabet Sveinsdóttir skrifar Skoðun Við erum að taka hlutverkin frá eldra fólki Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Að byggja upp samfélagslegt umboð í afskekktum samfélögum: Hvernig ábyrgt fiskeldi styrkir Vestfirðina Daníel Jakobsson skrifar Skoðun Hvernig verjum við Ísland? Finnur Beck skrifar Skoðun Enn og aftur, Alma Möller Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Reikniskekkja Viðreisnar í Kópavogi Orri Vignir Hlöðversson skrifar Sjá meira
Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun
Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun
Skoðun Það er gott að hafa „góðar tengingar“ í Kópavogi. 2 af 4. Theodóra S. Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Til leiðtoga í stjórnmálum og stjórnsýslu: Málefni barna og ungmenna Þóra Björg Jónsdóttir skrifar
Skoðun Að byggja upp samfélagslegt umboð í afskekktum samfélögum: Hvernig ábyrgt fiskeldi styrkir Vestfirðina Daníel Jakobsson skrifar
Frá nauðungarsölum til 5 milljarða í arð á ári Jón Ferdínand Estherarson,Guðný Benediktsdóttir,Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun
Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun