Atvinnulíf

Að jafna sig á erfiðleikum í vinnunni

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Flestir hafa upplifað eitthvað í vinnunni sem þeim líður illa yfir. En þá er gott að fara í smá sjálfsvinnu til þess að okkur fari að líða betur.
Flestir hafa upplifað eitthvað í vinnunni sem þeim líður illa yfir. En þá er gott að fara í smá sjálfsvinnu til þess að okkur fari að líða betur. Vísir/Getty

Við erum með alls kyns orðatiltæki um hvernig okkur eigi að líða sem best. „Að lifa í núinu,“ „að njóta,“ „lífið er núna,“ og svo framvegis. Allt er þetta gott og blessað en hvernig eigum við að jafna okkur á erfiðri reynslu í vinnunni eða jafnvel eitruðu andrúmslofti sem hefur haft áhrif á okkur? Og það sem meira er: Erum við alltaf að gera okkur grein fyrir því, hvernig erfiðleikar í vinnu hafa áhrif á okkur?

Hér eru þrjú atriði sem geta hjálpað okkur.

1. Hvað gerðist?

Stundum þegar okkur líður illa, eigum við erfitt með að koma því í orð hvað er að valda þessari vanlíðan. En ef okkur líður illa er það vísbending um að við þurfum að vinna úr tilfinningum.

Sem dæmi um hvað getur gerst þegar að við vinnum ekki úr þessum tilfinningum, er að við endurupplifum aðstæður eða samtöl aftur og aftur. Hugurinn dvelur við það sem miður fór.

Góð leið til að byrja að takast á við tilfinningarnar, er að skrifa niður hvað það er sem er að valda okkur vanlíðan. Hvað gerðist eða hvað er það í umhverfinu sem okkur finnst svona erfitt? Í þessu er gott að gefa sér tíma og leggja áherslu á að skrifa niður þær hugsanir eða tilfinningar sem fylgja því sem gerðist.

2. Lærdómurinn

Annað sem gerir okkur gott er að gefa sér tíma í að velta fyrir sér, hvaða lærdóm við getum dregið af því sem gerðist. 

Voru til dæmis einhverjar vísbendingar sem við hefðum átt að átta okkur á? Áttum við kannski að breyta einhverju hjá okkur sjálfum til að forðast aðstæður? Eða hefði verið betra fyrir okkur ef við hefðum sjálf brugðist öðruvísi við?

Einfalt dæmi úr vinnuumhverfinu okkar gæti verið tengt verkefni sem við vorum ekki nægilega vel undirbúin undir, sem síðan hafði einhverjar afleiðingar. Lærdómurinn þar væri þá að varast að slíkar aðstæður gætu komið upp aftur.

3. Fyrirgefningin

Sú staða getur komið upp í vinnunni að atburður eða aðstæður, jafnvel rifrildi eða togstreita, gera það að verkum að við viljum ekki hafa samneyti við ákveðið samstarfsfólk. Algeng viðbrögð eru þá að hunsa það fólk, sýna því með hegðun að þú viljir ekkert með það hafa og að eitthvað sé „geymt en ekki gleymt.“

Fyrir sjálfan þig, skiptir hins vegar miklu máli að þú fyrirgefir viðkomandi. Aðeins þannig losar þú þig undan þeirri vanlíðan sem er að trufla þig. Að fyrirgefa er mikilvægt skref til að jafna sig á erfiðleikum þannig að þeir tilheyri fortíðinni.

Að fyrirgefa kemur líka í veg fyrir að það dragi úr þér orku í hvert sinn sem þú sérð eða heyrir af þessu samstarfsfólki þínu. 

Í stað þess að festast í gremju eða sárindum, er gott að hugsa frekar um hvernig þú sérð framtíðina fyrir þér.  Hvernig sérðu til dæmis fyrir þér að samskiptin þín og samneyti við samstarfsfólk sé almennt háttað til framtíðar? 


Tengdar fréttir

Að ræða erfið mál í vinnunni

Það geta alls kyns aðstæður í vinnunni kallað á að stundum þurfi að ræða einhver erfið eða viðkvæm mál. Þessi samtöl eru alls ekkert einskorðuð við að vera samtöl yfirmanns við undirmann. Stundum er þörf á því að samstarfsfélagar ræði saman eða að starfsmaður ræði við yfirmann sinn.

Megrunarátakið í vinnunni

Það þykir reyndar ekki vinsælt í dag að tala um ,,megrun“ og eflaust réttara að tala um lífstílsbreytingu. En í upphafi árs eru það þó margir sem hafa sett sér markmið um að léttast á nýju ári og þá er um að gera að huga að vinnudögunum og hvernig best er að huga að átakinu þar.

Einkenni og afleiðingar fitufordóma á vinnustöðum

Getur verið að þú haldir um margt fólk í ofþyngd að það séu hálfgerðir letingjar? Eða að viðkomandi sé ekkert rosalega klár? Ertu með yfirlýsingar um að fólk í ofþyngd sé með litla sjálfstjórn og almennt ekki hraust? Finnst þér fólk í ofþyngd minna spennandi í ásýnd og útliti? 

Kapphlaupið við tímann í vinnunni

Það kannast flestir við kvíðahnútinn sem getur myndast í maganum því við erum að drepast úr stressi í vinnunni. 





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×