Guðlaug er þrjátíu og eins árs, þriggja barna móðir í Laugardalnum og starfar sem skrifstofudama og sminka. Hún er mikill fagurkeri og elskar fátt meira en að ferðast og njóta ævintýra hvers dags.

„Ég er ofboðslega spennt fyrir nýja árinu, hef miklar væntingar um að þetta verði gott ár og að við getum farið að horfa meira til eðlilegri tíma þar sem fólk getur hagað lífinu eftir sínu höfði. Til dæmis skroppið í gott frí erlendis.“
Framundan segir Guðlaug spennandi tíma í vinnunni en hún sé þó farin að renna hýru auga til vorsins.

„Ég er að fara að sminka fyrir tíu vikna þáttaseríu næstu helgar sem ég er virkilega spennt fyrir. En svo er ég mikil vor og sumar týpa og tel því niður í strigaskó, sumarkjóla og skemmtileg sumarkvöld.“
Hér fyrir neðan deilir Guðlaug því með lesendum hvað henni finnast aðlaðandi og óaðlaðandi eiginleikar í fari karlmanna í viðtalsliðnum Boneorðin 10.
ON:
- Frumkvæði - Maður sem tekur ákvarðanir og framkvæmir þær er fljótur að kveikja hjá mér áhuga.
- Heilsuhreysti - Maður sem stundar hreyfingu og hugsar vel um sjálfan sig. Það er virkilega heillandi.
- Húmor - Að vera með húmor fyrir sjálfum sér og fá aðra í kringum sig til að hlægja finnst mér vera ómissandi eiginleiki.
- Einlægni - Að vera einlægur í því sem maður segir og gerir. Yfirborðskennd má vera annars staðar.
- Ævintýraþrá - Einhver sem er til í að gera eitthvað annað en að horfa á fótbolta á sunnudögum. Einhver sem vill vakna snemma um helgar og fara til dæmis í sund eða óvænt road-trip - Þetta þarf ekki að vera flókið, bara vera tilbúinn að gera eitthvað annað en að hanga.
OFF:
- Metnaðarleysi - Að vera alltaf í því sama og hafa ekki metnað fyrir stærri draumum. Hlaupa áfram í hamstrahjólinu og hafa enga löngun til að taka áhættur og eltast við eitthvað annað er eitthvað sem ég tengi ekki við.
- Leikmenn - Óheiðarlegir menn sem geta ekki tjáð hugsanir sínar og leika alla leikina. Þeir sem þurfa að leika leiki til þess að heilla aðra, þurfa að endurhugsa planið sitt.
- Framtaksleysi - Það þarf að framkvæma hlutina svo að þeir verði að veruleika. Að vanta allan drifkraft er ekki sexí.
- Tölvuleikir - Þegar fullorðið fólk eyðir öllum sínum stundum fyrir framan tölvur í tölvuleikjum og finnst ekkert eðlilegra en að senda sína eina í rúmið á kvöldin. Þá er hægt að taka númer annars staðar.
- Hroki sem sprettur út frá eigin minnimáttarkennd - Ókurteisi og pirringur gagnvart öðrum, eins og til dæmis fólki sem er í þjónustustörfum. Þetta slekkur mjög hratt í glóðunum.

Fyrir áhugasama er hægt að nálgast Instagram prófíl Guðlaugar hér.

Ef þú ert með ábendingu um einhleypa og áhugaverða einstaklinga getur þú sent póst á makamal@syn.is.