Skemmdarverk í Vatnsmýri 4. október 2005 00:01 Eftir því sem líður á framkvæmdirnar við nýju Hringbrautina kemur betur í ljós hversu fáránlegar þær eru. Orð þeirra sem vöruðu við þessu hafa aldeilis ræst – og gott betur. Það sem blasir við þarna í norðanverðri Vatnsmýrinni er algjör óskapnaður. Nú stendur fyrir dyrum samkeppni um skipulag á lóð Landspítalans og önnur samkeppni sem á að snúast um framtíð Vatnsmýrarinnar. Alveg er óskiljanlegt hvers vegna ekki mátti bíða með vegaframkvæmdirnar þangað til yrði ljóst hvernig menn hugsa sér svæðið í framtíðinni. Maður hefur hefur ekki heyrt neinar skýringar á óðagotinu – en hefur þó grun um þetta eigi upptök í pólitískum hrossakaupum.--- --- ---Þarna er allt í einu komin þriggja akgreina hraðbraut, mun stærri en mann óraði fyrir. Bílstjórar gefa í á þessum spotta, en beggja vegna taka þrengri götur við umferðinni – flöskuhálsar sem valda því að minnka þarf hraðann snögglega aftur. Þessu fylgja stórar aðreinar sem taka mikið svæði; mörgum finnst nánast ómögulegt að botna í hvernig þær liggja.Á sama tíma er verið að lagfæra gömlu Hringbrautina. Það virðist hafa verið misskilningur að hún yrði lögð niður. Þannig eru komnar tvær hraðbrautir hlið við hlið – sem saman skera Vatnsmýrina endanlega frá Miðbænum. Var ekki hugmyndin einmitt þveröfug – að auka tengslin þarna á milli?Ennfremur hafa verið reistar tvær göngubrýr, mikil mannvirki. Þær vekja spurn hjá öllum sem fara þarna framhjá. Hver á að nota þessar brýr – hvert á það fólk að vera að fara? Brýrnar enda úti í móa, alveg bókstaflega. En kannski verður hægt að skipuleggja Vatnsmýrina þannig að þeirra verði einhvern tíma þörf.--- --- ---Allt lítur þetta út eins og þarna hafi verið á ferðinni verkfræðingur á ógurlegu flippi. En það er svosem ekki nýtt að verkfræðilegur gígantismi stjórni skipulaginu hér í borginni. Þetta virkar ótrúlega klossað, gamaldags og óaðlaðandi. Nær ekki einu sinni því markmiði að flýta för akandi fólks. En sjálfsagt hafa verktakar grætt vel á þessu. Það væri nokkuð forvitnilegt að vita hver er orðinn kostnaðurinn við allt dæmið.Borgarstjórnin sem stendur fyrir þessu rugli heldur nú samgönguviku. Hún hefur gefist upp við að halda bíllausa daginn, enda kom í daginn að enginn borgarfulltrúi tók mark honum. Þeir ætluðust til að aðrir færu gangandi. Þannig rekst hvað á annars horn. Það liggur við að maður taki undir með konunni sem sagði eftir að hafa farið um Hringbrautina um daginn:"Ég ætla aldrei aftur að kjósa fólkið sem framdi þetta skemmdarverk."--- --- ---Bendi svo á grein um Baugsmálið eftir Karl Th. Birgisson sem er á öðrum stað hér á síðunni. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Pistlar Silfur Egils Mest lesið Þið dirfist að kalla mig fasista og rasista? Davíð Bergmann Skoðun Opið bréf til Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra Anna Margrét Hrólfsdóttir,Lilja Guðmundsdóttir Skoðun Ætla stjórnvöld virkilega að eyðileggja eftirlaunasjóði verkafólks endanlega? Vilhjálmur Birgisson Skoðun Ísland smíðar – köllum á hetjurnar okkar Einar Mikael Sverrisson Skoðun Rödd barna og ungmenna hunsuð í barnvænu sveitarfélagi? París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir Skoðun Án greiningar, engin ábyrgð Gísli Már Gíslason Skoðun Fagleg rök fjarverandi við opinbera styrkveitingu Bogi Ragnarsson Skoðun Hvenær kemur að okkur? Hjördís María Karlsdóttir Skoðun Réttlæti næst ekki með ranglæti Ingibjörg Isaksen Skoðun Myndir þú hætta að flokka ruslið? – Sjálfbærni er ekki tíska Helga Björg Steinþórsdóttir,Eva Magnúsdóttir Skoðun
Opið bréf til Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra Anna Margrét Hrólfsdóttir,Lilja Guðmundsdóttir Skoðun
Ætla stjórnvöld virkilega að eyðileggja eftirlaunasjóði verkafólks endanlega? Vilhjálmur Birgisson Skoðun
Rödd barna og ungmenna hunsuð í barnvænu sveitarfélagi? París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir Skoðun
Myndir þú hætta að flokka ruslið? – Sjálfbærni er ekki tíska Helga Björg Steinþórsdóttir,Eva Magnúsdóttir Skoðun
Opið bréf til Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra Anna Margrét Hrólfsdóttir,Lilja Guðmundsdóttir Skoðun
Ætla stjórnvöld virkilega að eyðileggja eftirlaunasjóði verkafólks endanlega? Vilhjálmur Birgisson Skoðun
Rödd barna og ungmenna hunsuð í barnvænu sveitarfélagi? París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir Skoðun
Myndir þú hætta að flokka ruslið? – Sjálfbærni er ekki tíska Helga Björg Steinþórsdóttir,Eva Magnúsdóttir Skoðun