Matur

Jólaboð Evu: Allar uppskriftirnar úr lokaþættinum

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Jón Jónsson kíkti við í Jólaboð Evu og tók með henni lagið.
Jón Jónsson kíkti við í Jólaboð Evu og tók með henni lagið. Jólaboð Evu

Á sunnudaginn var lokaþátturinn í Jólaboð Evu. Í þættinum eldaði Eva Laufey í beinni útsendingu í eldhúsinu heima hjá sér. Fékk hún til sín góða gesti samhliða því sem hún útbjó flotta smárétti sem tilvalið er að bera fram um hátíðirnar eða við annað gott tilefni.

Hér fyrir neðan má finna uppskriftirnar úr fjórða þætti af Jólaboð Evu. 

Eva Laufey eldaði í beinni útsendingu á Stöð 2 á sunnudagJólaboð Evu

Piparkökutriffli með saltaðri karamellusósu

  • 400 g piparkökur
  • 500 g vanilluskyr
  • 400 ml rjómi, þeyttur
  • 2 msk flórsykur
  • Söltuð karamellusósa, uppskrift hér að neðan

Aðferð:

  1. Best er að byrja á því að útbúa saltaða karamellusósu og kæla hana á meðan þið undirbúið afganginn.
  2. Myljið piparkökur þar til þær eru orðnar að fínni mylsnu.
  3. Þeytið rjóma og blandið skyrinu saman við, setjið einnig flórsykur saman við og það má líka bæta vanilludropum út í.
  4. Setjið piparkökumylsnu í eitt stórt fat eða glös, setjið um það helming af mylsnunni og setjið síðan skyrblöndu og því næst karamellusósu. Endurtakið leikinn einu sinni eða þar til hráefnið er búið.
  5. Kælið trifflið í nokkrar klukkustundir, frábært yfir nótt.

Söltuð karamellusósa

  • 150 g sykur
  • 4 msk smjör
  • 2 dl rjómi rjómi
  • sjávarsalt á hnífsoddi

Aðferð:

  1. Bræðið sykur á pönnu við vægan hita, best að hafa alls ekki háan hita og fara hægt af stað.
  2. Takið pönnuna af hellunni þegar sykurinn er allur bráðinn og bætið smjörinu saman við í nokkrum skömmtum.
  3. Hellið rjómanum út í karamelluna og hrærið þar til karamellan er orðin þykk og fín.
  4. Í lokin bætið þið saltinu saman við.
  5. Leyfið sósunni að kólna alveg.
PiparkökutriffliJólaboð Evu

Sjávarrétta tartalettur

  • 1 msk ólífuolía + 1 msk smjör
  • 5 sveppir
  • 5 aspas stönglar
  • 1 hvítlauksrif
  • 400 g blandaðir sjávarréttir
  • 500 ml rjómi
  • Salt og pipar
  • ½ sveppakraftsteningur
  • 2 msk smátt söxuð steinselja
  • Tartalettu skeljar

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Hitið olíu og smjör á pönnu.
  3. Skerið sveppi og aspas smátt, steikið á pönnu og bætið rifnu hvítlauksrifi út á pönnuna.
  4. Skolið og þerrið sjávarréttina, setjið út á pönnuna og steikið í smá stund.
  5. Hellið rjómanum út á og kryddið vel með salti, pipar og smátt saxaðari steinselju.
  6. Bætið hálfum sveppakraftstening út í og leyfið sósunni að malla smávegis.
  7. Skiptið blöndunni niður í tartalettu skeljar og setjið inn í ofn við 180°C í nokkrar mínútur.
  8. Berið strax fram og njótið vel!
Tartalettur EvuJólaboð Evu

Snittur með ljúffengu þeyttu ostakremi

  • 1 baguette
  • 1 msk ólífuolía
  • 400 g hreinn rjómaostur
  • 1 krukka fetaostur
  • Salt og pipar
  • 1 msk smátt söxuð steinselja

Tillögur að áleggi:

  • Steikt hráskinka, klettasalat og parmesan
  • Reyktur lax og dill
  • Kirsuberjatómatar, basilíka og ólífuolía

Aðferð:

  1. Skerið baguette brauðið í jafn stórar sneiðar, hitið olíu á pönnu og steikið í smá stund á báðum hliðum þar til brauðið er stökkt.
  2. Setjið rjómaost, fetaost en munið að hella olíunni sem er í krukkunni frá og steinselju í matvinnsluvél. Kryddið til með salti og pipar.
  3. Smyrjið ostakreminu á stökka baguette brauðið og setjið allskyns góðgæti á brauðið.
Snittur með ostakremiJólaboð Evu

Tengdar fréttir

Eldar fyrir jólaboð í beinni útsendingu í fyrsta skipti

Á sunnudag er síðasti þátturinn af Jólaboð Evu og verður hann með óhefðbundnu sniði því matreiðsluþátturinn verður sýndur í beinni útsendingu. Eva Laufey Kjaran mun elda hátíðarmáltíð fyrir áhorfendur og gefa góð ráð varðandi jólamáltíðirnar.

Jólaboð Evu: Allar uppskriftirnar úr þriðja þætti

Í nýjasta þættinum af Jólaboð Evu eldaði Eva Laufey Kjaran hátíðarmat. Þar á meðal var Humar Risotto,  Beef Wellington, jólaís og fleira. Eva Laufey er með þættina Jólaboð Evu, alla sunnudaga fram að jólum. Hér má finna allar uppskriftirnar úr þriðja þætti af Jólaboð Evu.

Jólaboð Evu: Allar uppskriftirnar úr öðrum þætti

Í Jólaboð Evu í síðustu viku ldaði Eva Laufey Kjaran kalkúnabringur með öllu. Einnig útbjó hún ristaðar möndlur, Créme Brulée og Pavlovur. Allar uppskriftirnar birtast hér á Vísi en næsti þáttur er sýndur annaðkvöld á Stöð 2.

Jólaboð Evu: Kalkúnabringur með öllu tilheyrandi

Í Jólaboð Evu um helgina eldaði Eva Laufey Kjaran kalkúnabringur með öllu. Einnig útbjó hún ristaðar möndlur, Créme Brulée og Pavlovur. Allar uppskriftirnar munu birtast hér á Vísi en þættirnir eru á dagskrá á Stöð 2 alla sunnudaga fram að jólum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×