Heimsmarkmiðin

Viðbúið að rýma þurfi SOS barnaþorp í Eþíópíu vegna stríðsátaka

Heimsljós
Ljósmynd frá barnaþorpi SOS í Eþíópíu/ SOS
Ljósmynd frá barnaþorpi SOS í Eþíópíu/ SOS

SOS Barnaþorpin í Eþíópíu eru í viðbragðsstöðu og reiðbúin, ef til þess kemur, að rýma SOS barnaþorpið í Makalle, höfuðborg Tigray héraðs, vegna stríðsátaka sem þar geisa. „Það gengur erfiðlega að fá upplýsingar frá barnaþorpinu því lokað hefur verið á fjarskiptasamband og aðgangur að héraðinu er takmarkaður,“ segir Hans Steinar Bjarnason kynningarstjóri SOS barnaþorpanna.

Í SOS barnaþorpinu í Makalle búa 234 börn og ungmenni og 38 þeirra eiga SOS-styrktarforeldra á Íslandi. Starfsmenn SOS í barnaþorpinu eru 73. Þar er einnig rekið fjölskyldueflingarverkefni. „Það síðasta sem ég heyrði frá okkar fólki í Makalle var að allir væru óhultir," skrifaði Sahlemariam Abebe, framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna í Eþíópíu í svari við fyrirspurn frá skrifstofu alþjóðasamtakanna.

Harðir bardagar hafa geisað í héraðinu undanfarið milli stjórnarhers Eþíópíu og TPLF, þjóðfrelsisfylkingar Tigray, með þeim afleiðingum að tugir þúsunda almennra borgara hafa flúið yfir til nágrannalandsins Súdans og talið er að hundruð hafi látið lífið. Samkvæmt tölum frá UNICEF þurfa 2,3 milljónir barna á mannúðaraðstoð að halda.

SOS Barnaþorpin í Eþíópíu, Makalle næst landamærunum við Eritreu.

Sahlemariam segir erfitt að gera sér grein fyrir hvernig ástandið er nákvæmlega í barnaþorpinu vegna fyrrgreindra fjarskiptavandamála. Hann hefur þurft að fara krókaleiðir að því að skiptast á skilaboðum við framkvæmdastjóra barnaþorpsins í gegnum starfsfólk samhæfingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA). Hann segir að átakasvæðin séu víða en næst SOS barnaþorpinu í 47 km fjarlægð.

Sahlemariam segir að Sameinuðu þjóðirnar eigi í viðræðum við yfirvöld um aðgengi að héraðinu fyrir hjálparsamtök. „Ef ástandið versnar og átökin hafa bein áhrif á SOS-fjölskyldur þá munum við hefja rýmingu. Við höfum fengið grænt ljós á það frá OCHA," segir hann.

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×