Lífið

Ein vinsælasta YouTube-stjarna heims í sólarhring inni í íshúsi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mr Beast er með 46 milljónir fylgjenda. 
Mr Beast er með 46 milljónir fylgjenda. 

Jimmy Donaldson, betur þekktur sem MrBeast, sýndi frá áskorun sem hann tók á YouTube-rás sinni á dögunum en þar sat hann fastur inni í íshúsi í einn sólarhring.

Donaldsson er ein allra vinsælasta YouTube-stjarna heims og er í dag metinn á 22 milljónir dollara eða því sem samsvarar 2,8 milljarða íslenskra króna.

Hann er með tæplega 46 milljónir fylgjenda á miðlinum en í þessu innslagi má sjá hvernig þetta gekk allt saman fyrir sig.

Félagar hans voru allan tímann fyrir utan húsið og fékk hann mat og drykki senda inn í húsið. Á tíma var MrBeast aftur á móti alveg að gefast upp.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×