Erlent

Skutu Reinoehl til bana við hand­töku

Atli Ísleifsson skrifar
Michael Reinoeh var skotinn til bana í Lacey í Washington-ríki.
Michael Reinoeh var skotinn til bana í Lacey í Washington-ríki. Getty

Lögreglumenn í Washinton-ríki á vesturströnd Bandaríkjanna skutu til bana mann sem var grunaður um að hafa drepið hægriöfgamanninn Aaron Danielson í óeirðunum í Portland í Oregon um síðustu helgi.

Michael Reinoehl var 48 ára gamall og lögregla var með mál hans til rannsóknar, en hann hafði haldið því fram í samtölum við fjölmiðla ytra að hann hafi skotið Danielson í sjálfsvörn.

Ekki liggur fyrir hvað gerðist sem leiddi til þess að lögreglan skaut Reinoehl en fjölmiðlar hafa eftir ónefndum lögreglumönnum að hann hafi gripið til vopna þegar átti að yfirheyra hann.

Mikil mótmæli hafa verið í Portland síðustu mánuði eða síðan lögreglumenn drápu George Floyd í maí og síðustu vikur hefur komið til tíðra átaka á milli vinstrisinnaðra mótmælenda og hægrisinnaðra stuðningsmanna Donalds Trump forseta.


Tengdar fréttir

Enn enginn handtekinn vegna morðsins í Portland

Lögreglan hefur ekki enn haft hendur í hári Michael Forest Reinoehl, sem grunaður er um að hafa skotið mann til bana í Portland í Bandaríkjunum, aðfaranótt sunnudagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×