Makamál

Spurning vikunnar: Hefur þú stundað kynlíf í svefnástandi?

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Vissir þú að það væri til svefnröskun sem heitir Kynlíf í svefnástandi eða Sexomnia?
Vissir þú að það væri til svefnröskun sem heitir Kynlíf í svefnástandi eða Sexomnia? Getty

Flestir hafa heyrt af fólki sem talar upp úr svefni, labbar í svefni eða jafnvel borðar í svefni. Allt er þetta tengundir af viðurkenndum svefnröskunum. 

En hvað með það þegar fólk stundar kynlíf í svefnástandi? 

Kynlíf í svefnástandi, stundum nefnt Sleep-sex eða Sexsomnia, er ákveðin gerð af svefnröskun sem lýsir sér þannig að einstaklingur, sem haldinn er þessari röskun, tekur þátt í kynferðislegum athöfnum af einhverju tagi algjörlega ómeðvitað. 

Einstaklingur sem hefur þessa röskun er því í  svefnástandi þegar hann byrjar í kynferðislegum athöfnum en getur litið út fyrir að vera vakandi því að augu hans eru yfirleitt opin, líkt og getur gerst með fólk sem gengur í svefni. Fyrir þá aðila sem eru haldnir þessari röskun getur þetta, eðli máli samkvæmt, valdið miklu erfiðleikum og sama á við um maka og bólfélaga. 

Í sumum tilvikum þá vaknar einstaklingurinn (sem haldinn er þessari röskun) upp þegar þetta á sér stað og er þá mjög ringlaður og veit ekki hvað er að gerast.  Í öðrum tilvikum þá getur einstaklingurinn átt í kynferðislegum samskiptum við bólfélaga, lítandi út fyrir að vera vakandi, og ekki munað það daginn eftir því að hann var fastur í svefnástandi.

Kynlíf í svefnástandi eða Sexomnia er viðurkennd svefnröskun og hefur Makamál sett sig í samband við fagaðila til að fjalla ítarlegra um þetta mál á næstu dögum. 

Einnig munum við birta viðtal við konu sem er haldin þessari röskun og heyra hennar reynslu. 

Spurning vikunnar er því að þessu sinni: 

Hefur þú stundað kynlíf í svefni?

*Greinin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Bone-orðin 10: „Kynorkan er lífsorkan okkar“

Gleðigjafinn og fjölmiðlakonan Sigga Lund hefur komið víða við á ferli sínum og var hún ekki nema 17 ára þegar hún stjórnaði sínum fyrsta útvarpsþætti. Flest allir landsmenn ættu að þekkja rödd Siggu sem þykir hljóma einstaklega vel á öldum ljósvakans.

„Ég elska konur, ég elska kynsegin fólk, ég elska karla“

„Ég geri mitt besta að sýna allskonar fólk í verkum mínum og mennta mig um baráttur þeirra eins og fötlunarfordóma, fitufordóma, hinseginfordóma og fleira í þeim dúr. Ég vil að þau sem hafa ekki séð sjálf sig í myndlist geti séð sig í mínum verkum.“ Þetta segir Alda Hrannardóttir listakona í viðtali við Makamál.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×