Atvinnulíf

Að segja yfirmanninum að þú sért honum ósammála

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Það getur verið mismunandi hversu aðgengilegir stjórnendur eru fyrir því að hlusta á skoðanir starfsmanna sinna.
Það getur verið mismunandi hversu aðgengilegir stjórnendur eru fyrir því að hlusta á skoðanir starfsmanna sinna. Vísir/Getty

Það er ekkert endilega á færi allra að segja yfirmanninum sínum að þeir séu honum ósammála. Að minnsta kosti veigra sér margir við það og eins þarf fólk líka að velta því fyrir sér hvenær það er rétt að láta sína skoðun í ljós og hvenær ekki. Því auðvitað er það yfirmaðurinn sem ræður ef út í það er farið. 

Í umfjöllun Harvard Business Review segir að það sé í mannlegu eðli okkar að forðast það að vera ósammála yfirmanni okkar eða einhverjum sem er okkur æðri. Hins vegar er fólk hvatt til þess að segja yfirmönnum sínum það oftar ef það er honum ekki sammála. Til dæmis þegar yfirmaðurinn hefur boðað einhverjar aðgerðir eða fyrirætlanir sem þú ert hreinlega sannfærð/ur um að séu ekki rétt ákvörðun. 

Hér eru nokkur góð ráð um það hvernig best er að bera okkur að.

Áhættan

Áður en farið er af stað er ágætt að velta því fyrir okkur hvort samtalið er líklegt til að hafa einhverjar afleiðingar. Mjög líklega verða viðbrögð yfirmannsins ekkert slæm en það er þó mælt með því að við veltum því fyrir okkur hvort einhver áhætta sé fyrir hendi og ef já, í hverju væri hún fólgin?

Tímasetningin

Að mótmæla yfirmanni sínum þarf að gerast á réttum stað og á réttum tíma. Mælt er með því að taka samtalið í einrúmi með yfirmanninum en ekki á fundi eða fyrir opnum tjöldum.

Markmiðið

Það getur ekki verið markmið í sjálfu sér að láta einungis skoðun sína í ljós. Þannig þarf samtalið að fela í sér einhvers konar tillögur eða lausnir af þinni hálfu þannig að ekki þurfi að efast um það að þú berð hag vinnustaðarins fyrir brjósti.

Að vera sammála um að vera ósammála

Þá velja sumir þá leið að láta skoðun sína í ljós undir því fororði að fá „að vera sammála um að vera ósammála.“ Þannig getur þú látið yfirmann þinn vita að þú sért kannski ekki sannfærður um að hans leið sé sú rétta að fara en ætlir þó að virða það.

Ekkert uppnám

Þá er mikilvægt að taka samtalið ekki í uppnámi. Auðvitað gæti það svo sem verið að þú finnir roða færast yfir andlitið eða einhvern kvíðahnút vera í maganum en því rólegri og yfirvegaðari sem þú ert, því betra. Að draga andann djúpt og telja upp á tíu er því gott ráð áður en farið er af stað.

Passaðu þig líka á að tala hægt og verða ekki óðamála af stressi.

Berðu virðingu fyrir skoðun yfirmannsins

Þótt ætlunin sé að láta yfirmann þinn vita að þú sért honum ekki sammála, er mikilvægt að það komi fram í þínu tali að þú berir virðingu fyrir því sem hann er að boða. Kurteis leið til að hefja samtalið er að spyrja hreinlega „Má ég eiga við þig orð um X…..?“

Þá þarftu líka að fara yfir það í huganum hvort þú sért ekki örugglega að skilja í hverju boðun yfirmannsins felst þannig að samtalið falli nánast um sjálft sig í byrjun því þú varst að misskilja eitthvað.

Vandaðu orðavalið

Rökstuddu mál þitt vel og vandlega og passaðu það vel að slá ekki fram einhverjum dómhörðum fullyrðingum. Haltu þig við staðreyndir og því meira sem þú getur týnt til með gögnum því betra.

Auðmýkt og kurteisi

Þótt þú sért yfirmanninum ósammála er ekki þar með sagt að þú hafir rétt fyrir þér. Mögulega mun yfirmaðurinn skýra eitthvað út þannig að þú skilur betur það sjónarmið sem ræður för. Sýndu auðmýkt og kurteisi í rökræðum. Til dæmis gæti verið góð leið að segja ,,leiðréttu mig ef ég hef rangt fyrir mér….“ Þannig heyrir yfirmaður þinn strax að þú ætlar þér engan yfirgang þótt þú viljir ræða málin.

Virtu stjórnendamörkin

Loks er á það bent að þegar allt kemur til alls, er það yfirmaðurinn sem ræður. Kannski blasa við aðstæður sem kalla á erfiðar ákvarðanir af hans hálfu og kannski er yfirmaðurinn þinn undir pressu frá sínum yfirmanni. Þegar allt kemur til alls, liggur ábyrgðin hjá yfirmanninum en ekki þér sem þýðir að þótt þín skoðun muni ekki hljóta hljómgrunn er ekki þar með sagt að yfirmaðurinn þinn meti það ekki við þig að hafa látið þína skoðun í ljós.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×