Óttast faraldur beinbrunasóttar í Jemen Heimsljós kynnir 28. janúar 2020 14:30 Heilbrigðisstarfsmenn á vegum Barnaheilla - Save the Children að störfum í flóttamannabúðum í Jemen. Save the Children
Fulltrúar Barnaheilla – Save the Children óttast að beinbrunasótt í Jemen geti verið upphaf faraldurs en rúmlega 52 þúsund tilfelli hafa verið skráð í landinu og staðfest eru 192 dauðsföll af völdum sóttarinnar. Af þeim sem hafa látist eru 78 börn. Beinbrunasótt (dengue) er veirusjúkdómur sem smitast með moskítóflugum og smit hafa verið skráð í flestum landshlutum Jemen á síðustu mánuðum. Flest tilfellin, eða um 60 prósent, hafa verið skráð í borgunum Hodeidah og Adan. „Ef ekki er gripið til ráðstafana, til þess að styðja við heilbrigðiskerfið og efla aðstöðu til þess að greina smit snemma, er hætta á að tala dauðsfalla hækki verulega,“ segir Guðrún Helga Jóhannsdóttir verkefnastjóri kynningarmála og erlendra verkefna. Að sögn hennar hafa átök í landinu og mikil úrkoma raskað vatnsbirgðum og vegna þessara truflana hefur fólk sjálft þurft að safna regnvatni. „Það hefur meðal annars stuðlað að útbreiðslu moskítóflugna á viðkomandi svæðum og leitt til aukinnar smithættu á beinbrunasótt,“ segir Guðrún Helga. Barnaheill – Save the Children hafa dreift sjúkrabirgðum á starfssvæði sín til þess að bregðast við beinbrunasóttinni og einnig er unnið markvisst að því að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu moskítóflugna og miðla þekkingu til heilbrigðisstarfsmanna um það hvernig bregðast eigi við beinbrunasóttinni. Guðrún Helga segir að vegna stöðugra átaka í Jemen síðastliðin fimm ár sé erfitt að bregðast skjótt við. Friður í landinu gæti tryggt enduruppbyggingu heilbrigðiskerfisins en það stendur frammi fyrir hruni þar sem meira en helmingi heilbrigðisstofnananna hefur verið lokað, meðal annars vegna þess að sjúkrahús hafa orðið fyrir loftárásum eða vegna þess að skortur er á nauðsynlegum lyfjum og hæfu starfsfólki.Nánar á vef Barnaheilla Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Jemen Þróunarsamvinna Mest lesið Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Innlent Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Erlent „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent