Atvinnulíf

Smærri fyrirtæki: Sjö leiðir til að forðast þrot

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Atvinnurekendur standa frammi fyrir erfiðum áskorunum.
Atvinnurekendur standa frammi fyrir erfiðum áskorunum. Vísir/Getty

Staðan er svipuð um allan heim: Fyrirtæki berjast í bökkum, stjórnvöld reyna að ráðast í aðgerðir og bjóða fram alls kyns úrræði og smátt og smátt er dregið úr höftum svo samfélag og atvinnulíf geti farið að aðlagast á ný.

Þá er ferðaþjónustan að fara illa um allan heim og veitingastaðir, verslanir og fleiri tala um 50-75% tekjufall að meðaltali, hjá sumum blasir þrot nú þegar við á meðan aðrir reyna hvað þeir geta að snúa vörn í sókn.

Karen Mills starfar hjá Harvard Business School í dag en veitti áður samtökum smærri fyrirtækja í Bandaríkjunum forstöðu og er einn þekktasti álitsgjafi fjölmiðla vestanhafs þegar kemur að rekstri smærri fyrirtækja. Í viðtali við CNBS gaf hún smærri fyrirtækjum eftirfarandi sjö ráð til að forðast þrot.

Stjórnvöld og bankar

Nýtið ykkur þau úrræði sem stjórnvöld bjóða upp á og eiga við og það sama gildir um banka fyrirtækisins.

Skerið niður og endursemjið

Yfirfarið alla kostnaðarliði, forgangsraðið þeim, skerið niður það sem er hægt að reynið að endursemja um lægra verð fyrir þá kostnaðarliði sem enn standa eftir.

Innheimta

Setjið aukinn kraft í að innheimta ef einhverjar kröfur eru útistandandi. Semjið um greiðsludreifingu frekar en að fá ekkert greitt ef þess þarf.

Ef fyrirtæki eru með viðskiptavini sem eru líklegir til að geta inn á borgað fyrir verkefni þá er um að gera að nýta sér það, þó ekki væri nema til að létta á útlögðum kostnaði áður en verkefni eru innheimt að fullu.

Lækkið launakostnað

Þetta hljómar sem köld aðgerð enda eru uppsagnir erfiðar en þegar spurningin snýst um að bjarga fyrirtækinu eru uppsagnir oftast óhjákvæmilegar í einhverjum mæli.

Hér er þó tilefni til að benda á að á Íslandi er hlutastarfaleiðin það úrræði sem flest fyrirtæki reyna að nýta.

Aukið framleiðni

Nú þarf að reyna að ná sem mestu út úr hverri vinnandi stund því öll vinna þarf að skila sér með eins mikilli framleiðni og kostur er.

Að sögn Mills eru líkur á betri framleiðni ef unnið er í fámennum hópum í marga klukkustundir frekar en fjölmennum hópum í færri klukkustundir.

Breytið pantana- og innkaupaverklagi

Víða hafa fleiri en eigendur eða framkvæmdastjóri getað pantað inn vörur þegar þarf, til dæmis kaffi, salernispappír, skriffæri og fleira. Þá þarf oft að panta eða kaupa vörur í reikning til að fylgja eftir einhverjum verkefnum fyrir viðskiptavini.

Til að halda öllum kostnaði í lágmarki er mælt með því að engin útgjöld verði leyfð án skriflegs samþykkis frá einum aðila. Þetta er talið geta lækkað kostnað um eitthvað en skert á allri yfirsýn yfir útgjöld, stór sem smá.

Viðskiptavinurinn

Að þjónusta viðskiptavini vel er alltaf markmið en aldrei jafn mikilvægt og nú þegar kreppir að.

Á þessum tíma þarf markmiðið um mjög góða þjónustu að breytast í framúrskarandi þjónustu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×