Sannleikurinn: Hóta að slíta öll tengsl við þá sem gefa þeim mjúka pakka Andri Þór Sturluson skrifar 20. desember 2013 08:19 Í yfirlýsingu bræðranna voru þeir sem gáfu mjúka pakka seinustu jól hvattir til að sýna iðrun og bæta þeim það upp þessi jól.
Bræðurnir Bergur og Ívar Sigurðssynir sendu út yfirlýsingu til vina og vandamanna um helgina þar sem þeir hóta að slíta öll tengsl við þá sem gefa þeim mjúka pakka í jólagjöf og skiptir þá engu máli hvort um er að ræða nánustu skyldmenni eða aðra. Segjast þeir neyðast til að grípa til aðgerða eftir að hafa fengið föt, sængurver og „einhverja heimska kuldagalla" seinustu jól. Munu bræðurnir ekki hika við að beita refsiaðgerðum á þá sem gefa þeim mjúkan pakka þessi jólin og slíta öll tengsl við viðkomandi. En það þýðir að bræðurnir munu neita að tala við þann brotlega í síma, brosa til hans eða kyssa bless. Ennfremur hóta bræðurnir því að verði þeir á annað borð neyddir til að fara í heimsókn til viðkomandi, af foreldrum sínum eða öðrum, munu þeir sýna allar sínar verstu hliðar, grenja, öskra og jafnvel brjóta einhverja glerskál ef þeir komast í hana. Bergur segir að sannanir séu fyrir hendi sem sýni fram á að amma Stína ætli að gefa sér skólatösku í jólagjöf og hann sé því knúinn til aðgerða. Seinustu jól fékk hann nánast ekkert spennandi í sínum pökkum á meðan Gústi í bekknum hans fékk sleða, fjarstýrða þyrlu og sannfærandi eftirlíkingu af geislaskotvopni úr framtíðinni. Segir Bergur þessar aðgerðir vera lið í að tryggja eðlilega endurnýjun leikfanga á heimilinu en staðan í þeim málum er til skammar fyrir alla aðila.Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu sem við fengum í jólagjöf 2009.
Harmageddon Mest lesið Agent Fresco á toppi árslista X977 Harmageddon Ekki hissa á því að ríkisstjórnin reyni að leggja niður Sérstakan saksóknara Harmageddon Segir Nasista hafa litið vel út í Hugo Boss Harmageddon Barði í Bang Gang í hljómsveit með Jean-Benoit úr Air Harmageddon Sannleikurinn: Þetta hefði getað verið ég sem missti vinnuna í dag Harmageddon Sá eini sem getur komið í veg fyrir stríð núna er Ólafur Ragnar Harmageddon Er píkan óhrein? Harmageddon Með rokkið í blóðinu Harmageddon Meira frá John Grant á X-inu 977 Harmageddon Sannleikurinn: Sjónvarpsmaður á RÚV sagði brandara Harmageddon