Breski seðlabankinn spáir minni hagvexti á árinu 12. maí 2011 07:00 nefjum stungið saman Breski seðlabankastjórinn Mervyn King, sem hér ræðir við kollega sinn Ben Bernanke, segir hækkun á hrávörumörkuðum hægja á efnahagsbatanum. Fréttablaðið/AFP
Verðbólga í Bretlandi verður líklega yfir markmiðum og hagvöxtur minni en áætlað var næstu tvö árin, samkvæmt ársfjórðungsspá Englandsbanka sem birt var í gær. Breska dagblaðið The Guardian hefur eftir seðlabankastjóranum Mervyn King að horfur til skamms tíma hafi versnað frá því í febrúar. Í spánni kemur fram að almenn hækkun á vöruverði samhliða hækkun á virðisaukaskatti í Bretlandi muni koma illa við neytendur. Það hægi svo á efnahagsbatanum eftir fjármálakreppuna. Breski seðlabankinn gaf síðast út verðbólguspá í febrúar. Þar er gert ráð fyrir því að verðbólga verði í kringum 2,0 prósent um næstu áramót en einu prósentustigi hærri að ári. Í nýju spánni er gert ráð fyrir að verðbólga verði í kringum 5,0 prósentin næstu tvö ár og að hagvöxtur verði 1,7 prósent um áramótin í stað 2,0 prósenta. Gert er ráð fyrir 2,2 prósenta hagvexti á næsta ári í stað 3,0 áður. Greiningaraðilar höfðu almennt reiknað með því að Englandsbanki myndi draga úr horfum frá í febrúar, ekki síst þar sem hagvöxtur var 0,3 prósentustigum undir hagspá bankans á fyrsta ársfjórðungi. Dagblaðið hefur eftir seðlabankastjóranum King að erfitt sé að spá fram í tímann, einkum vegna öfgafullra sveiflna á hrávöruverðsmörkuðum. Ekki megi útiloka að stýrivextir verði hækkaðir fyrir árslok einmitt til að hindra að verðbólga fari úr böndunum. - jab
Fréttir Mest lesið Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira