Nám fyrir leiðsögumenn í stangveiði Karl Lúðvíksson skrifar 6. mars 2019 10:49
Nú í dag hefst nám sem Ferðamálaskóli Íslands býður upp á fyrir áhugasama aðila sem vilja gerast leiðsögumenn innlendra og erlendra veiðimanna í ám og vötnum landsins. Veiðileiðsögunámið er hagnýtt og nýtist í senn starfandi leiðsögumönnum og áhugasömum aðilum sem hafa áhuga á að sinna slíkri leiðsögn. Námið gefur innsýn í grunnatriði og ítarlegri þætti er varða veiðileiðsagnarþjónustu. Sérfróðir leiðsögumenn kenna undirstöðuatriði stangveiða og sérfræðingar miðla fróðleik um fiskana er við sögu koma og vistfræði þeirra.Meðal kennsluefnis eru undirstöðuatriði er varða líffræði og lífshætti íslenskra ferskvatnsfiska. Meðal annars er fjallað um árstíðabundnar göngur fiska, gönguhegðun þeirra í ferskvatni og sjó og samspil þátta er koma við sögu. Farið er yfir þætti er varða umgengni leiðsögumanna við veiðimenn allt frá móttöku þeirra, til veiðanna og annara ráða er varða dvöl í veiðihúsum.Farið verður í tveggja daga ferð í Ytri Rangá þar sem tekin verður fyrir kasttækni með einhendum og tvíhendum.Lögð er áhersla á Skyndihjálp og áfallahjálp þar sem litið er sérstaklega til þátta er tengjast hættum við ár og vötn.Farið er yfir handtök er varða frágang á afla eftir veiði, blóðgun og flökun á fiski. Samhliða verður farið yfir grunnþætti sem varða meðhöndlun fiska með hliðsjón af "veiða og sleppa" veiðihættinum.Allir leiðbeinendur hafa áratuga reynslu sem leiðsögumenn eða vísindamenn hver á sínu sviði.Námið er alls 70 stundir og fer bæði fram í kennslustofu og á bökkum Ytri Rangár. Leiðbeinendur eru: Þröstur Elliðason, fiskeldisfræðingur - Strengir Jóhannes Sturlaugsson, líffræðingur – Laxfiskar Jóhannes Hinriksson, rekstrarstjóri – Ytri Rangá Reynir Friðriksson, sjávarútvegsfræðingur – Fulltrúi frá Landsambandi veiðifélaga Björn Rúnarsson, Vatnsdalsá. Björn Theodórsson, fiskeldisfræðingur og leiðsögumaður Kristinn Helgason, Landsbjörg Sr. Bragi Skúlason, LandspítalinnNánari upplýsingar og skráning fer fram í síma 898-7765 Friðjón eða fs@menntun.is
Mest lesið Ekkert lát á góðri veiði í Þingvallavatni Veiði Fín byrjun í Tungufljóti í Biskupstungum Veiði Kropp í kuldanum við Þingvallavatn Veiði 23 laxar á land á Nessvæðinu í gær Veiði Veitt með Vinum frítt á Youtube Veiði Ágæt byrjun hjá mörgum rjúpnaskyttum Veiði Öflug fluga í köld vötn að vori Veiði Fjórir á land við opnun Selár Veiði Veiði að glæðast í Straumunum Veiði Verður laxinn snemma á ferðinni í ár? Veiði