Skortur á stjórnvisku í Lala-landi Þórlindur Kjartansson skrifar 30. ágúst 2019 09:00 Nokkur undanfarin ár hafa áhyggjurnar byrjað á vorin og þær ágerst yfir sumarið en náð hámarki að hausti. Sagan hefur svo verið sú sama. Veturinn hefur byrjað betur en á horfðist en svo hefur syrt í álinn og fljótlega upp áramótum er orðið ljóst í hvað stefnir. Í febrúar og mars vita aðdáendur Los Angeles Lakers að öll von er úti og allt var unnið fyrir gýg. Nú hefur hinu sögufræga liði mislukkast að komast í úrslitakeppni NBA-deildarinnar sex ár í röð. Síðast féll liðið snautlega úr keppni gegn San Antonio árið 2013. Síðan þá hafa aðdáendur eins sigursælasta íþróttaliðs heims ekki getað stært sig af neinu öðru en sívaxandi auðmýkt. Lakers hafði nefnilega einungis fimm sinnum áður mistekist að komast í úrslitakeppni NBA-deildarinnar frá stofnun hennar árið 1949. Það er mikill og hraður viðsnúningur á stríðsgæfu eins íþróttaliðs.Allt verður að ógæfu Síðasta haust virtist allt vera á réttri leið. Lebron James, sem gæti átt gott tilkall til að kallast besti körfuknattleiksmaður sögunnar, gekk til liðs við Lakers og var félaginu umsvifalaust spáð miklum viðsnúningi. En í fyrsta sinn á ferli sínum mátti Lebron sætta sig við að sitja heima þegar úrslitakepppnin fór fram. Meiðsl og óheppni settu strik í reikninginn hjá Lakers á síðasta ári, en kvíðavænlegri merki um óstjórn var hins vegar að finna á skrifstofum félagsins þar sem allt virðist loga í illdeilum. Þeir sem fylgst hafa með hinu sögufræga liði eru fljótir að benda á að fjölskylduerjur í eigendahópi liðsins hafi grafið mjög undan rekstri og ákvarðanatöku. Magic Johnson, sem hafði verið kallaður til að koma böndum á innbyrðisdeilur í eigendahópnum, sagði starfi sínu lausu þegar þolinmæði hans brast gagnvart pólitískum bakstungum, illmælgi og oflátungshætti í hópi eigenda og stjórnenda. Óhamingju Englaborgarinnar verður allt að vopni. Meira að segja maðurinn sem best allra kunni að láta aðra njóta sín réð ekki við hið rotna umhverfi á skrifstofum liðsins.Of stór egó En fleira kemur til. Í vikunni bárust fréttir af því að enn á ný væru tvær fyrrverandi stórstjörnur Lakers komnar í hár saman þótt báðir séu orðnir sköllóttir og meira en fimmtán ár síðan þeir léku síðast saman. Kobe Bryant og Shaquille O’Neal mynduðu í upphafi aldarinnar hryggjarstykkið í óárennilegu liði Lakers. Þeir unnu saman þrjá meistaratitla í röð og fátt virtist líklegt til að koma í veg fyrir að þeir gætu haldið áfram að færa aðdáendum Lakers sigur- og sælustundir á færibandi næsta áratuginn. Rétt eins og Magic Johnson og Kareem Abdul-Jabbar gerðu Lakers að stórveldi 9. áratugarins áttu Shaq og Kobe að ríkja saman sem ósigrandi tvíeyki. En það kom í ljós að mikill munur var á kynslóðunum tveimur. Á meðan Magic og Jabbar voru stórstjörnur vegna þess hvað þeir gerðu fyrir liðið og liðsfélagana, þá voru Shaq og einkum Kobe aldir upp í þeim hugsunarhætti að meðspilararnir væru eins og aukaleikarar í bíómynd, og allt ætti að snúast um stjörnurnar. Slíkur hugsunarháttur hefur löngum þótt óboðlegur í hópíþróttum en komst í tísku þegar persónudýrkunin í kringum Michael Jordan fór úr böndunum á tíunda áratugnum.Allir fyrir einn en ekki einn fyrir alla Ýmsir kostir eru við stór egó og botnlaust sjálfstraust í íþróttum. En þessir kostir eiga eingöngu við þegar þeir eru nýttir í þágu árangurs liðsheildarinnar. Ef íþróttamenn byrja að ruglast á sjálfum sér og hlutverki sínu þá líður ekki á löngu fyrr en þeir fara að verða skaðlegir öðrum liðsfélögum, árangri liðsins og að lokum sjálfum sér. Það var einmitt þetta sem gerðist hjá þeim Kobe og Shaq. Þeir gátu ekki komist að niðurstöðu um það hvor þeirra ætti að vera „aðal“—og báðir gengu þeir út frá þeirri kolröngu forsendu að það væri bráðnauðsynlegt að það væri „bara einn aðal“. Á endanum þrifust þeir ekki undir sama þaki og stjórnendur Lakers ákváðu að senda Shaquille frá liðinu til þess að rýma fyrir hinu útblásna egói hins yngri manns. Yfirburðahæfileikar Kobe Bryant, og snjallar ráðningar á leikmönnum og þjálfurum, gerðu Lakers kleift að vinna tvo titla í viðbót áður en núverandi þurrkatíð hófst. En þegar líkamleg geta Bryants fór dvínandi má segja að örlög alls liðsins hafi verið kirfilega bundin við fallandi stjörnu. Þótt öllum væri ljóst að getu stórstjörnunnar færi hratt hnignandi þá hélt allt áfram að snúast um að nudda egó hetjunnar. Meira að segja þegar tölfræðigreiningar sýndu fram á að Kobe væri orðinn einn lélegasti leikmaður deildarinnar voru örlög liðsins áfram bundin honum—og honum einum. Aðrir leikmenn fengu ekki að þroskast eða reyna sig almennilega, því allt liðið snérist áfram um það að gera stórstjörnunni geðstirðu til geðs. Hræðilegur árangur Lakers um þessar mundir má því rekja beint til þeirrar skekkju í hugarfari sem fékk að ráða í lok hins magnaða leikmannsferils Kobe Bryant.Vitjunartíminn Sögurnar af því þegar afreks- og valdafólk þekkir ekki vitjunartíma sinn eru vel þekkt minni. Rómverjarnir til forna höfðu vit á því að setja í lög að þeir sem tímabundið tóku sér alræðisvald á hættutímum þyrftu að yfirgefa borgina í tíu ár að valdatíma þeirra loknum svo þeir freistuðust ekki til að viðhalda völdum sínum. Þar höfðu Rómverjarnir fyrirmynd í hinum dyggðuga Cincinnatusi sem kallaður var til valda á hættutímum en snéri umsvifalaust og óumbeðið aftur til bóndabæjar síns eftir að hlutverki hans lauk. Bandarísku landsfeðurnir þekktu þessa sögu vel; og þótt enginn hefði getað komið í veg fyrir ævilanga þaulsetu George Washington á forsetastóli þá ákvað hann sjálfviljugur að láta af embætti og stjórnmálaafskiptum eftir tvö kjörtímabil; og hélst sú venja og þótti heilög þar til Franklin Roosevelt lét kjósa sig fjórum sinnum. Síðar var samþykkt að takmarka embættistíð Bandaríkjaforseta við tvö kjörtímabil.Betri tíð Alls staðar togast á í einstaklingum eigin þrár og hagsmunir stærri heildar. Kobe Bryant er auðvitað enginn Cincinnatus eða George Washington, og í heimi íþróttanna þurfa þjálfarar og stjórnendur liða að sjá til þess að liðið sjálft sé ætíð haft í æðra öndvegi heldur en dýrðarfýsn hnignandi stjarna. Í stjórnmálum má hins vegar gera ráð fyrir að góðir menn geti haft vit fyrir sjálfum sér, þekki vítin sem varast þarf og stilli sig um að setja eigin þarfir um völd og aðdáun ofar hagsmunum þeirra sem tekið hafa við keflinu. Á þessu munu þó vera misbrestir. En, eins og allir sjá, þá er þetta pistill um körfubolta en ekki stjórnmál. Samt er ekki annað hægt en að velta fyrir sér hversu heimur Lakers aðdáenda væri betri ef Kobe Bryant hefði haft aðeins meiri stjórnvisku. En öll él birtir upp um síðir; og nú má leyfa sér að vona að Lebron James og Anthony Davis þrífist betur saman en Kobe og Shaq gerðu á sínum tíma. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Þórlindur Kjartansson Mest lesið Hermenn Viðreisnar Jón Pétur Zimsen Skoðun Opið bréf til heilbrigðisráðherra Sif Huld Albertsdóttir Skoðun Af hverju má ekki segja nei? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hverra hagsmuna er verið að gæta? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason,Birna Björnsdóttir,Guðmundur Steingrímsson,Hildur Harðardóttir,Kristín Vala Ragnarsdóttir,Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir,Silja Elvarsdóttir,Svandís Egilsdóttir,Tinna Jóhannsdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Brynhildur Davíðsdóttir,Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir Skoðun Evrópuhugsjónin á sakamannabekknum Arnar Sigurðsson Skoðun Ísland í sama flokki og Norður Kórea í námsefnisgerð? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Vörðum leiðina afdráttarlaust í mögulegum aðildarviðræðum Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun Fullveldi, upplýst umræða og ábyrg ákvörðun Ingibjörg Isaksen Skoðun Bandaríkin draga úr hernaðarframlögum til NATO á hættu-og ófriðartímum Arnór Sigurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Gullhúðun, yfirheyrslur og sektir í boði Alþingis Benedikt S. Benediktsson,Bjarni Benediktsson,Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Tékkar vilja halda krónunni og sömu rök eiga við um Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Ísland í sama flokki og Norður Kórea í námsefnisgerð? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Opið bréf til heilbrigðisráðherra Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Ísland og nýja djobbið Dóra Magnúsdóttir skrifar Skoðun Evrópuhugsjónin á sakamannabekknum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Bandaríkin draga úr hernaðarframlögum til NATO á hættu-og ófriðartímum Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Raunhæf áætlun um endurheimt íslenskra fiskimiða Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun STEM menntun þarf langtímasýn Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Af hverju má ekki segja nei? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hverra hagsmuna er verið að gæta? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þrír af hverjum fjórum Íslendingum styðja dánaraðstoð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vörðum leiðina afdráttarlaust í mögulegum aðildarviðræðum Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hermenn Viðreisnar Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Fullveldi, upplýst umræða og ábyrg ákvörðun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Opið bréf til skóla- og velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar vegna fordómafulls orðalags í matslista á vanda barna Mamiko Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Sorrý ég hélt að þetta væri skólablýantur Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hafró setur kíkinn fyrir blinda augað Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Er Borgarlína eina lausn umferðarvanda höfuðborgarsvæðisins? Óskar Halldór Valtýsson skrifar Skoðun Að þora ekki að ræða við nágranna sína Ragnar Sverrisson skrifar Skoðun Umhverfisvænn söngvari óskast Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hvenær ber læknir ábyrgð á mistökum annarra? Það þarf að áfrýja héraðsdómi í plastbarkamálinu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Barn lemur sig í andlitið með hamri – hvað er til ráða? Þórdís Elva Þorvaldsdóttir,Benedikta Sörensen skrifar Skoðun Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason,Birna Björnsdóttir,Guðmundur Steingrímsson,Hildur Harðardóttir,Kristín Vala Ragnarsdóttir,Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir,Silja Elvarsdóttir,Svandís Egilsdóttir,Tinna Jóhannsdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Brynhildur Davíðsdóttir,Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvenær heyrði hann já? Helga Benediktsdóttir skrifar Skoðun Framúrakstur á ekki að ráðast af þolinmæði og heppni Hólmar Erlu Svansson skrifar Skoðun Skæri fyrir örvhenta Þórgunnur Oddsdóttir skrifar Skoðun Þegar þögn laganna verður að banni Bergur Hauksson skrifar Skoðun Ljósmyndin á öld lögvakans Kristján Logason skrifar Skoðun Af hverju heldur Gigtarfélagið fjölskylduhátíð? Stefán Magnússon skrifar Sjá meira
Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason,Birna Björnsdóttir,Guðmundur Steingrímsson,Hildur Harðardóttir,Kristín Vala Ragnarsdóttir,Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir,Silja Elvarsdóttir,Svandís Egilsdóttir,Tinna Jóhannsdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Brynhildur Davíðsdóttir,Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir Skoðun
Skoðun Gullhúðun, yfirheyrslur og sektir í boði Alþingis Benedikt S. Benediktsson,Bjarni Benediktsson,Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Bandaríkin draga úr hernaðarframlögum til NATO á hættu-og ófriðartímum Arnór Sigurjónsson skrifar
Skoðun Vörðum leiðina afdráttarlaust í mögulegum aðildarviðræðum Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til skóla- og velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar vegna fordómafulls orðalags í matslista á vanda barna Mamiko Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Er Borgarlína eina lausn umferðarvanda höfuðborgarsvæðisins? Óskar Halldór Valtýsson skrifar
Skoðun Hvenær ber læknir ábyrgð á mistökum annarra? Það þarf að áfrýja héraðsdómi í plastbarkamálinu Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Barn lemur sig í andlitið með hamri – hvað er til ráða? Þórdís Elva Þorvaldsdóttir,Benedikta Sörensen skrifar
Skoðun Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason,Birna Björnsdóttir,Guðmundur Steingrímsson,Hildur Harðardóttir,Kristín Vala Ragnarsdóttir,Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir,Silja Elvarsdóttir,Svandís Egilsdóttir,Tinna Jóhannsdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Brynhildur Davíðsdóttir,Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir skrifar
Velsæld og hagsæld - breytum mælikvörðunum Ásgeir Brynjar Torfason,Birna Björnsdóttir,Guðmundur Steingrímsson,Hildur Harðardóttir,Kristín Vala Ragnarsdóttir,Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir,Silja Elvarsdóttir,Svandís Egilsdóttir,Tinna Jóhannsdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Brynhildur Davíðsdóttir,Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir Skoðun