Jól

Gjörningur og stuðuppákoma

Sandra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar
Edda Björgvins segir að upplifun sé besta jólagjöfin.
Edda Björgvins segir að upplifun sé besta jólagjöfin. STEFÁN
Leikhópurinn Leikhúslistakonur 50+ fagnar bráðum fimm ára afmæli og verður af því tilefni með tvær sýningar í Þjóðleikshúskjallaranum eftir áramótin. Edda Björgvins segir miða á sýningarnar fullkomna jólagjöf enda eigi mömmur nóg af náttkjólum. 

Sýningarnar kallast Dansandi ljóð, en Edda Þórarinsdóttir gerði handritið að henni eftir ljóðum Gerðar Kristnýjar, og Konur og krínólín þar sem Edda Björgvins fer á kostum ásamt níu öðrum leikkonum.

„Við köllum þetta tískugjörning. Við lögðum höfuðið í bleyti og hugsuðum hvað væri gaman að gera í kringum búninga, en Helga Björnsson sem margir þekkja, hún var mjög fræg í París á sínum tíma, er hönnuður og ótrúlega mögnuð manneskja, hún er með okkur í þessum hóp,“ segir Edda.

„Við vorum að skoða krínólín og líka áratugina frá þarsíðustu aldamótum og svo annan, þriðja, fjórða og fimmta áratuginn og svo framvegis. Við ákváðum að safna saman búningum og fengum nokkrar yndislegar konur með okkur í það sem hafa aðgang að búningasafni.“

Sýningin Konur og krínólín hefur einu sinni verið sýnd í Iðnó á 17. júní fyrir tveimur árum. „Við héldum að markhópurinn okkar væri aðallega miðaldra konur, en það er bara vitað að konur 40 ára og eldri, þær halda uppi listalífi í hinum vestræna heimi. Þær skipuleggja oftast kaup á miðum, hvort sem það er tónlist, myndlist, leiklist eða bara hvað sem er,“ segir Edda.

Frá sýningu á Konur og krínólín í Iðnó. MYND/LAUFEY ELÍASDÓTTIR
Fylltust grobbi

Edda segir að það hafi því komið henni skemmtilega á óvart að ungir karlmenn á aldrinum 20-25 ára hafi verið í skýjunum yfir gjörningnum. „Allar vinkonur okkar elskuðu þetta, en þegar við fengum þessi góðu viðbrögð frá þessum aldurshópi og kyni þá fylltumst við þvílíku grobbi og ákváðum að einhvern tíma myndum við gera eitthvað við þessa sýningu.“

En þar sem konurnar í leikhópnum eru allar mjög uppteknar og vinna leikhópsins öll unnin í sjálfboðaliðastarfi hafa þær ekki haft tök á að setja sýninguna upp aftur fyrr en núna. „Ari Þjóðleikhússtjóri bauð okkur samstarf og við höfum verið í Þjóðleikhúsinu í vetur og fyrravetur. Við ætlum að halda upp á fimm ára afmæli leikhópsins með uppsetningu á þessum tveimur sýningum í Þjóðleikhúskjallaranum,“ segir Edda.

Í sýningunni Konur og krínólín er brjálæðisleg orka að sögn Eddu. „Það er ekki mikið tal í þessu en ég tengi atriðin svolítið saman með tali inn á milli þar sem ég þykist vera saumakona og hönnuður. Þetta er alveg ofboðslega skemmtileg sýning, fólkið sem sá hana á sínum tíma trylltist alveg í stuði. Við viljum ekki kalla þetta leiksýningu því þetta er ekki nema svona klukkutíma verk. Þetta er frekar gjörningur og stuðuppákoma.“

Frá sýningunni Dansandi ljóð.
Upplifun í jólapakkann

Hin sýningin, Dansandi ljóð, segir Edda að sé undurfalleg ljóðræn sýning. „Helga Björnsson kemur líka að þeirri sýningu en hún hefur töfrað fram undurfallegar umgjarðir og töfrandi búninga,“ segir Edda.

„Fabúla gerir tónlistina og Edda Þórarins leikstýrir en hún leikstýrir líka sýningunni Konur og krínólín með mér. Síðast vorum við ekki með neinn ákveðinn leikstjóra en hún ætlar að vera augun úti í sal og saman erum við svona framkvæmdastjórar í að koma þessu á koppinn, við þurfum auðvitað að breyta einhverju því þetta verður í Þjóðleikhúskjallaranum en ekki Iðnó að þessu sinni.“

Edda segir að konurnar í leikhópnum vonist til þess að þegar fólk er að minnka neysluna og kaupa minna af hlutum og safna minna drasli að jólagjafirnar í ár verði upplifun eins og listviðburðir eða samvera og svo framvegis. „Og þá vonum við auðvitað að fólki vilji gefa þessa upplifun sem við erum að bjóða upp á. Þessar sýningar höfða til allra og ég myndi segja að miðar á þær séu jólagjöfin í ár. Á mamma þín ekki nóg af náttkjólum?“ segir Edda hlæjandi.

Báðar sýningarnar eru sýndar fjórum sinnum, Dansandi ljóð í janúar og Konur og krínólín í febrúar. „Sýningarnar Konur og krínólín eru á mjög skemmtilegum tíma á laugardögum og sunnudögum klukkan 16.00. Það er því alveg tilvalið að fá sér eftirmiðdagskaffi fyrir sýninguna og „happy hour“ á eftir. Það er hægt að gera mjög skemmtilegan dag úr þessu.“

Það er um að gera að bæta smá jólasælgæti með í pakkann með miðunum. Edda segir að þessi uppskrift sé í uppáhaldi með jólakaffinu.

 

Þessir kókossúkkulaðibitar eru í uppáhaldi hjá Eddu.
LÍFRÆNIR KÓKoS SÚKKULAÐIBITAR

Kókosmassi

300 g Rapunzel kókosflögur

60 g Rapunzel hlynsíróp

½ tsk. Rapunzel sjávarsalt

90 g Rapunzel kókosrjómi (veiddur ofan af kókosmjólk úr dós)

Súkkulaðihjúpur

120 g Rapunzel kakósmjör

120 g Rapunzel möndlusmjör

60 g Rapunzel kakóduft

60 g Rapunzel hlynsíróp

½ tsk. Rapunzel sjávarsalt

1 tsk. Rapunzel Bourbon vanilla

Malið kókosflögur meðalgróft í matvinnsluvél, blandið saman við hin hráefnin og hnoðið saman með gaffli. Mótið deigið í mátuleg stykki með höndunum. Kókosstykkin eru síðan sett á bökunarpappír á disk í 10 mín. í frysti. Bræðið kakósmjör yfir vatnsbaði við 30-35 gráður. Þegar smjörið er bráðið er hinum hráefnunum bætt við og hrært vel saman. Takið kókosstykkin úr frystinum, dýfið í súkkulaðihjúpinn og veiðið strax aftur upp úr með gaffli og leggið á kökugrind með bökunarpappír undir. Kókosstykkin eru sett aftur í 5 mínútur í frysti á bökunarpappírnum. Fyrir þykkari súkkulaðihjúp má dýfa bitunum aftur og frysta (uppskriftin nægir í tvær dýfingar). Eftir það eru kókosbitarnir tilbúnir og geymast best í ísskáp eða frysti.






×