Viðskipti erlent

Telja mögulegt að óvissuferð breska skyrbóndans um Ísland skili á endanum milljónum punda

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Sam Moorhouse fór ásamt Þórarni E. Sveinssyni vítt og breitt um landið til að kynna sér skyrgerð.
Sam Moorhouse fór ásamt Þórarni E. Sveinssyni vítt og breitt um landið til að kynna sér skyrgerð. Vísir
Fjárfestar hafa fjárfest í skyrframleiðslu breska bóndans Sam Moorhouse og er ætlunin að fjárfestingin verði til þess að skyrið sem framleitt er í lítilli verksmiðju við ættaróðal Moorhouse í Bretlandi verði efst á blaði á breskum skyrmarkaði. Fjárfestarnir telja að framleiðsla Moorhouse geti orðið „margra milljóna“ punda fyrirtæki þegar fram líða stundir.

Líkt ogVísir fjallaði um á sínum tíma kom Moorhouse til Íslands árið 2014með aðeins eitt markmið. Að læra að framleiða skyr. Hann smakkaði sig áfram þangað til að hann rakst á mjólkurfræðinginn Þórarinn Sveinsson, sem samþykkti að aðstoða Moorhouse við skyrnámið.

Úr varð að Moorhouse ferðaðist vítt og breitt um Ísland með Þórarni, tók nokkrar vaktir hjá Örnu í Bolungarvík áður en hann sneri heim með fullan vasa af hugmyndum um hvernig hann gæti framleitt skyr. Með dyggri aðstoð Þórarins kom Moorhouse sér upp skyrframleiðslu á bóndabæ fjölskyldu hans í Yorkshire-héraði í Bretlandi.

Sjá einnig: Bjargaði fjölskyldufyrirtækinu með óvissuferð til Íslands

Síðan þá hefur skyrið farið sigurför um Bretland og er það nú til sölu í alls 110 verslunum í norðurhluta Bretlands. Moorhouse hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir skyrið og var meðal annars valinnfrumkvöðull ársins á verðlaunahátíð breskra mjólkurbænda árið 2017.

Afrakstur vinnunnar.Vísir

Hafa mikla trú á skyrinu 

Í viðtali við Craven Herald í Bretlandi segir Moorhouse að nú sé hins vegar kominn tími til að auka framleiðsluna og þar spila nýju fjárfestarnir lykilhlutverk.

Ætlunin er að framleiða 55 tonn af skyri á hverju ári en á fyrsta ári verksmiðjunnar runnu níu tonn af skyri úr verksmiðjunni. Þrír starfsmenn starfa fyrir verksmiðjuna en með hinu nýja fjármagni er ætlunin að bæta við sex nýjum starfsmönnum og þrefalda þar með starfsmannafjöldann.

„Langtímamarkmið er að Hesper Farm verði vörumerki núner eitt á skyrmarkaði í Bretlandi auk þess sem að við munum þróa nýjar spennandi mjólkurvörur,“ sagði Moorhouse.

Win Batist, sem fer fyrir fjárfestunum, virðist hafa mikla trú á Moorhouse og framleiðslu hans.

„Sam fékk aðstoð frá foreldrum hans til að byrja með en það er ljóst að hann þurfti mun meira fjármagn til þess að ná markmiðum sínum. Fyrirtækið hans á möguleika á því að verða að margra milljóna punda fyrirtæki, ekki síst vegna strangrar gæðastjórnunar hans,“ er haft eftir Batist á vef Craven Herald.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×