Matur

Mexíkósk „kjúklinga“ súpa laus við dýraafurðir

Hjördís Erna Þorgeirsdóttir skrifar
Þessi súpa er fullkomin á köldum haustdögum. Þá er hún einnig laus við allar dýraafurðir og því kjörin fyrir alla fjölskylduna.
Þessi súpa er fullkomin á köldum haustdögum. Þá er hún einnig laus við allar dýraafurðir og því kjörin fyrir alla fjölskylduna. NORDICPHOTOS/GETTY

Svokallaðar „mexíkóskar“ kjúklingasúpur hafa verið vinsælar á borðum landsmanna undanfarinn áratug eða svo. Líkt og í mörgum öðrum réttum er það ekki síst grænmetið og kryddin sem gera þessar súpur svona bragðgóðar og því er ósköp einfalt að útfæra súpuna án dýraafurða. Súpan er virkilega góð upphituð og er því kjörið að tvöfalda uppskriftina til að eiga yfir vikuna

Hráefni

2 msk. jurtaolía

1 gulur eða rauður laukur, saxaður

2-4 hvítlauksrif, söxuð eða pressuð

3 gulrætur, skornar í bita

1 lítil eða ½ stór sæt kartafla, skorin í litla bita

1 paprika, söxuð (valfrjálst)

½ blaðlaukur, saxaður

1-2 dósir af tómötum

1 lítil krukka af salsa

Vegan rjómaostur (t.d. hafra) eftir smekk

Hafrarjómi eftir smekk

2 bollar grænmetissoð (t.d. bara vatn og grænmetiskraftur)

1 dós pintó- eða svartar baunir – eða vegan „kjúklingur“

Salt, pipar, papriku- og laukduft

Chili eða jalapeño (ef vill)

Ofan á:

Rifinn vegan-ostur

Vegan- (t.d. hafra-) „jógúrt“ eða „sýrður rjómi“ (valfrjálst)

1-2 lárperur, skornar í sneiðar

1 límóna, skorin í sneiðar

Kóríander (valfrjálst)

Nachos, mulið

Aðferð:

Hitið olíu við meðalhita og steikið laukinn ásamt hvítlauknum.

Bætið við sætri kartöflu og gulrótum (og papriku, ef vill), kryddað til og léttsteikt.

Bætið við hökkuðum tómötum úr dós, grænmetissoði, salsasósu og blaðlauk, þá er líka gott að bæta við hvítlauk á þessum tímapunkti fyrir þá sem vilja.

Leyfið suðunni að koma upp, lækkið hitann örlítið og leyfið að malla í 20 mínútur eða svo

Bætið við vegan-rjómaosti, hafra­rjóma og baunum.

Látið malla í örfáar mínútur og smakkið til með kryddum.

Þau sem vilja sterkari súpu geta svo bætt við chili eða jalapeño.

Ef notaður er vegan-kjúklingur er hann steiktur á pönnu samkvæmt leiðbeiningum á meðan súpan mallar og bætt við í lokin.

Borið fram í skálum með rifnum vegan-osti, vegan-„jógúrt“, muldu nachos, lárperusneiðum og safa úr límónu (og kóríander fyrir þau sem vilja).






Fleiri fréttir

Sjá meira


×