Makamál

Af hverju ættir þú að knúsa í þig?

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Hefur þú fundið fyrir fiðrildi í maganum? Ástæðan er oxytoxín. Þegar við erum ástfangin og snertumst streyma ástarhormón í magann okkar og við upplifum þessa yndislegu fiðrildatilfinningu.
Hefur þú fundið fyrir fiðrildi í maganum? Ástæðan er oxytoxín. Þegar við erum ástfangin og snertumst streyma ástarhormón í magann okkar og við upplifum þessa yndislegu fiðrildatilfinningu. Vísir/Ernir
Kúr, knús og og innileg faðmlög. Allt hljómar þetta frekar krúttlegt og sætt, ekki satt? Samkvæmt vísindalegum rannsóknum erum við stórkostlega að vanmeta kosti þessara athafna. Það er ástæða fyrir því að líkamleg snerting er ein aðal leið okkar til að sýna væntumþykju og hrifningu.

Það er ekki bara gott að snertast og kúra heldur gerist margt í líkamanum okkar sem við höfum ekki hugmynd um. Næstum öll tegund snertingar, faðmlög, knús eða kúr, losar um hormónið oxytoxín sem oft er nefnt ástarhormónið. Við finnum vellíðunartilfinninguna streyma fram í æðar og finnum fyrir hamingju.

En hvaða áhrif hefur kúr og snerting á líkamann okkar?

1. Bætir svefn

Rannsóknir sýna að losun oxytoxín út í líkamann fyrir svefn hefur veruleg bætandi áhrif á kæfisvefn og gæði svefns almennt. Ef þið þurfið að sannfæra makann ykkar um meira kúr fyrir svefninn þá ættir þú með góðri samvisku að geta flaggað fánanum KÚR að læknisráði.



2. Kemur í veg fyrir þyngdaraukningu

Þó að það séu margir þættir sem hafa áhrif á þyngdaraukningu fólks þá hafa rannsóknir sýnt að oxytoxín í líkamanum minnkar löngun þína til að borða meira en þú þarft  (eating for pleasure). Þar hafið þið það heilsubloggarar, kúr og knús eru gott fyrir línurnar.



3. Verkjastillandi

Getur það verið að kúr og knús sé stundum betra ráð við hausverk en verkjalyf? Snerting getur haft ótrúlega jákvæð áhrif á verki og hafa rannsóknir sýnt fram á að oxytoxín getur dregið verulega úr almennum verkjum. Einnig hjálpar það við verkjastillingu hjá fólki sem er að kljást við alvarlega sjúkdóma eins og krabbamein. Það má því segja að það sé sjaldan eins mikilvægt að snertast eins og þegar þú ert að ganga í gegnum veikindi eða ná þér eftir slys.  



4. Styrkir ónæmiskerfið

Hefur þú fundið fyrir fiðrildi í maganum? Ástæðan, enn og aftur, oxytoxín. Þegar við erum ástfangin og snertumst streyma ástarhormón í magann okkar og við upplifum þessa yndislegu fiðrildatilfinningu.

75% af ónæmiskerfinu okkar er staðsett í meltingarveginum og hefur aukning oxytoxín í líkamanum áhrif í að styrkja ónæmiskerfið og halda því stöðugu. Fólk sem faðmar oft og mikið er til dæmis mun ólíklegra til að veikjast.

Í pistlunum Kemí séní skoðum við meðal annars líkamleg áhrif tilfinninga á borð við ást, ástarsorg, faðmlaga og fleira.Vísir/Hjalti

5. Minnkar bólgur 

Hver hefði trúað því að knús, og faðmlög væru bólgueyðandi? En aukin losun oxytoxín í líkamanum getur hjálpað verulega til með bólgur. 



6. Minnkar kvíða og stress

Rannsóknir hafa sýnt fram á að kúr og snerting hafa góð áhrif á taugakerfið. Þegar við upplifum góða snertingu af einhverju tagi, róumst við. Ef þú ert að kljást við kvíða eða stress þá getur náin og mikil snerting gert kraftaverk.

Næst þegar þú þarft að róa þig niður prófaðu að halda í höndina á elskunni þinni, faðma hana eða einfaldlega bara hoppa upp í rúm, kúra og slaka. 



7. Dregur úr áhættu á hjartasjúkdómum

Bólgur, stress, kvíði og allt það sem nefnt er hér á undan eru stórir áhættuþættir fyrir hjartasjúkdóma en við losun oxytoxín minnkar áhættan verulega. Það má því sannarlega segja að knús, kúr og faðmlög séu hjartastyrkjandi. Er hægt að finna betri ástæðu til að knúsa í sig?



8. Styrkir sambönd

Þegar stress og álag er mikið getur það haft mjög neikvæð áhrif á sambandið. Með því að taka nokkrar mínútur þegar þú kemur heim alls ekki í kúrustuði þá gætir þú einmitt þurft mest á snertingu að halda. Prófaðu að faðmast í nokkrar mínútur næst þegar þú ert undir álagi. Við getum oft sagt hluti sem við sjáum eftir þegar við erum undir miklu álagi eða stressuð svo að það gæti verið betri hugmynd að loka munninum og opna faðminn. Sjáið hvað gerist. 

Samkvæmt þessum upplýsingum ætti kúr, knús og faðmlög að vera einn stærsti lykillinn  að hamingju og góðri heilsu. Makamál hvetur því alla til að opna faðminn, knúsast og kúra í sig í nafni heilsunnar. 

Pistillinn er byggður á grein Dr. Will Cole, nánar hér.


Tengdar fréttir

Emojional: Þorsteinn B. Friðriksson

Þorsteinn B. Friðriksson, stofnandi Plain Vanilla og forstjóri Teatime Games, kom í emoji-spjall en árið hefur verið ansi viðburðaríkt hjá honum. Ný ævintýri í vinnunni, ný ást og glænýtt barn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×