Breyta örvæntingu í von Heimsljós kynnir 17. apríl 2019 12:15 WPF er með umfangsmikið starf á hamfarasvæðunum. WFP/Alexis Masciarelli
Rúmum einum mánuði eftir að fellibylurinn Idai fór hamförum yfir Mósambík og nágrannaríki hefur Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) veitt einni milljón íbúa mataraðstoð. WFP er önnur tveggja stofnana Sameinuðu þjóðanna sem íslensk stjórnvöld fólu að ráðstafa 25 milljónum króna til nauðstaddra á hamfarasvæðunum. „Strax eftir að óveðrinu slotaði var fólk mjög örvæntingarfullt,“ segir Lola Castro svæðisstjóri WFP í Suður-Afríku. „Það lögðust allir á eitt að veita stuðning og með vinnusemi með útsjónarsemi hefur okkur tekist að bregðast hratt við og breytt örvæntingunni í von.“ Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna vinnur í nánu samstarfi við Náttúruhamfarasjóð Mósambíkur (INGC) og stjórnvöld í landinu og stefnir að því að koma matvælaaðstoð til 1,7 milljóna íbúa í fjórum fylkjum, Sofala, Manica, Tete og Zambezíu. WFP segir í frétt að tekist hafi fyrir örlæti framlagsríkja og annarra að grípa til skjótra aðgerða á vettvangi. Stofnunin þakkar það ekki síst ríkjum ,eins og Íslandi, sem veitir að stærstum hluta kjarnaframlög til WFP, en það eru sveigjanleg framlög sem hægt er að grípa til þar er neyðin er mest hverju sinni. Utanríkisráðuneytið greiðir 50 milljónir króna árlega til Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna. Enn skortir þó talsvert upp á framlög til uppbyggingarstarfs á þeim svæðum sem verst urðu úti í fellibylnum. Í frétt WFP segir 130 milljónir bandarískra dala skorta til þess að standa undir áætlunum sem gerðar hafi verið fram til júníloka.Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent