Jól

Gleðilegt jólaglögg frá matreiðslumanni í heimsklassa

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sigurður Laufdal Haraldsson matreiðslumaður ætlar sér stóra hluti á næsta ári.
Sigurður Laufdal Haraldsson matreiðslumaður ætlar sér stóra hluti á næsta ári.

Sigurður Laufdal Haraldsson, keppandi Íslands á Heimsmeistarakeppni matreiðslumanna, Bocus d´Or, gefur hér lesendum Vísis einfalda uppskrift að dásamlegu jólaglöggi.

Það er nóg um að vera hjá Sigurði Laufdal fyrir þessi jól en hann er við stífar æfingar fyrir Heimsmeistaramót matreiðslumanna, Bocus d´Or, í æfingaeldhúsi Fastus. Sigurður mun keppa við aðra matreiðslumeistara í forkeppninni í Eistlandi í júní en aðalkeppnin fer venju samkvæmt fram í Lyon.

Sigurður gaf sér stund milli stríða til að fræða lesendur Vísis um stórgott en einfalt glögg sem gott er að glæða sér á um hátíðarnar. 

„Gott jólaglögg er eitthvađ sem klikkar sjaldan og er gott ađ gera frá grunni til ađ eiga yfir hátíđinar,“ segir Sigurður.

Uppskrift

Einn kassi rauđvín (3000ml) 

500g. sykur

8stk. epli - skorin í bita

2stk. perur - skornar í bita

10stk. svartur pipar heill

4stk kanilstangir

8stk negulnaglar

1kg Frosin kirsuber eđa hindber

Auka rauđvín til smökkunar

Aðferð 

Byrjað er að brúna sykur í potti. Rauđvínið og restin af uppskriftinni er sett út í. Suđan fengin upp og látiđ malla rólega í 20 minútur. Sigtađ og það er gott ađ smakka til međ örlítið meira af rauđvíni áđur enn boriđ er fram.

Sigurður starfaði á Geranium, sem er þriggja stjörnu Michelin veitingahús í Kaupmannahöfn. Þar á undan bjó hann í Helsinki þar sem hann starfaði á veitingastaðnum OLO sem hefur eina Michelin stjörnu.

Sigurður vann keppnina Kokkur ársins 2011 hér á landi og keppti í Bocuse d’Or fyrir Íslands hönd árið 2013. Hann snýr því á kunnulegar slóðir.






×